Vilja vísa Icesave-máli frá /það væri gott mál!!!!!!

Vilja vísa Icesave-máli frá
Innlent | mbl.is | 20.8.2009 | 9:03
Frá Alþingi.Önnur umræða um frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave-samningana við Breta og Hollendinga er hafin á Alþingi. Framsóknarmenn vilja, að frumvarpinu verði vísað frá og að ríkisstjórninni verði falið að taka upp viðræður á nýjan leik við bresk og hollensk stjórnvöld

Þrjú álit liggja fyrir þinginu frá fjárlaganefnd. Fulltrúar Samfylkingar, VG og Borgarahreyfingarinnar standa að meirihlutaálitinu, fulltrúar Sjálfstæðisflokks skila sérstöku áliti og fulltrúi Framsóknarflokksins sömuleiðis.

Í frávísunartillögu Höskuldar Þórhallssonar, fulltrúa Framsóknarflokks í fjárlaganefnd, segir að  mörg álitaefni og gallar séu á málatilbúnaði ríkisstjórnarinnar við þinglega meðferð málsins. Þá séu samningarnir ekki í samræmi við umboð Alþingis frá 5. desember 2008, sem kvað á um að mál skyldu leidd til lykta á grundvelli hinna umsömdu viðmiða, Brussel-viðmiðanna svokölluðu. Þá séu  endurskoðunarákvæði samninganna þegar virk vegna skuldastöðu þjóðarinnar.

Höskuldur leggur einnig fram breytingartillögur við frumvarpið til vara, m.a. um að vaxtagreiðslur miðist við gildistöku Icesave-samninganna, 27. júlí 2009, en ekki við febrúar eins og samningarnir kveða á um.////þetta svo umdeilt mál að það hálfa væri nóg,að vísa þessu frá væri best og semja uppá nýtt,all ekki samþykkja þetta núna með þessum máttlausu fyrirvörum,við verðum að vona að stjórnarandstaðan standi saman og geri okkur ekki gjaldþrota/Halli gamli


mbl.is Vilja vísa Icesave-máli frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045682

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband