Fáklæddur Jeltsín á rölti /bók sem tekið verður eftir/Clinton var ekki fyrsti kvennsami Forsetinn!!!

Fáklæddur Jeltsín á rölti
Erlent | mbl.is | 21.9.2009 | 20:24

Bill Clinton þurrkar tárin eftir að hafa hlegið að brandara...Búist er við að ný bók, sem kemur út undir lok september, muni vekja mikla athygli. Í bókinni eru rakin samtöl, sem Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, átti við vin sinn, sagnfræðinginn Taylor Branch,

Branch tók alls 79 viðtöl við Clinton upp á segulband og þessi viðtöl eru uppistaða bókarinnar  The Clinton Tapes: Wrestling History with the President. Þeir Clinton og Branch kynntust fyrst árið 1972 þegar þeir störfuðu við forsetaframboð Georges McGoverns. Branch, sem er er virtur og verðlaunaður höfundur, segir frá bókinni og samtölunum við Clinton í löngu viðtali við blaðið USA Today.

Í bókinni segir Clinton m.a. frá heimsókn Bórís Jeltsíns, þáverandi forseta Rússlands, til Bandaríkjanna. Jeltsín var afar drykkfelldur á þessum tíma og öryggisverðir áttu fullt í fangi með að hafa á honum stjórn.

Jeltsín bjó í Blair House, gestahúsi Hvíta hússins, og eitt sinn villtist hann og var að rangla í kjallara hússins þegar öryggisvörður kom að forsetanum, hélt að hann væri innbrotsþjófur og ætlaði að handtaka hann.

Eina nóttina laumaðist Jeltsín út úr húsinu. Bandarískir leyniþjónustumenn fundu hann skömmu síðar á Pennsylvania Avenue á nærbuxunum þar sem hann var að reyna að stöðva leigubíl. Jeltsín gaf þá skýringu að hann hefði ætlað að panta sér pítsu.  

Branch spurði Clinton m.a. um Lewinsky-málið sem hafði næstum orðið honum að falli. Forsetinn vildi lítið tala um það en Branch sagði, að í ágúst 1999, skömmu eftir að öldungadeild Bandríkjaþings samþykkti í atkvæðagreiðslu að svipta hann ekki embætti, hafi Clinton skyndilega opnað sig. Sagði hann, að ástarsambandið við lærlinginn Monicu Lewinsky hefði byrjað vegna þess að hann missti stjórn á sér.  

Þá kemur fram í bókinni, að þeir Clinton og Al Gore, sem var varaforseti Clintons, hefðu rifist harkalega eftir að Gore tapaði forsetakosningunum árið 2000.  Clinton fannst að Gore hefði átt að nýta krafta hans betur í kosningabaráttunni og m.a. senda hann til  Arkansas eða New Hampshire, ríkja þar sem forsetinn var vinsæll.

En Gore svaraði að hneykslanleg hegðun Clintons hefði fylgt sér alla kosningabaráttuna og að hneykslismálin hefðu á endanum leitt til þess að Gore tapaði kosningunum.

Branch segir, að Clinton hafi fengið prófarkir að bókinni til yfirlestrar. Hann hafi hringt stöðugt, greinilega taugaóstyrkur yfir því sem þar kemur fram. Branch segist hins vegar ekki hafa tekið í mál að breyta neinu. á meðan Clinton var enn forseti////Þessi bók verður mikið keypt,og það ýmislegt sem þarna mun koma fram,og ekki fram!!! en þetta er sko ekkert einsdæmi með Forseta að þeir séu kvennasamir/alls ekki ,Einnig að þeir séu skemmtilegir og briljant!!!!Halli gamli


mbl.is Fáklæddur Jeltsín á rölti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045683

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband