Nýr Landspítali efstur á blaði/vittlaus forgangsröðun!!!!!!

Nýr Landspítali, Búðarhálsvirkjun, samgöngumiðstöð við Reykjavíkurflugvöll og ýmis vegagerðarverkefni voru meðal þess sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar og lífeyrissjóðanna ræddu um í gærmorgun, á fundi um aðkomu lífeyrissjóðanna að fjármögnun opinberra verkefna. Ekki verður fundað á ný fyrr en í næstu viku en nokkrir undirhópar vinna að málinu í millitíðinni.

„Mestur tími fundarins fór í að ræða hugmyndir um uppbyggingu á Landspítalalóðinni en það er gríðarlega stórt og mikið verkefni,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða. „Það mál er í eðlilegum farvegi en það tekur sinn tíma enda til margs að líta í þeim efnum.“

Þá var farið yfir stöðu viðræðna við Landsvirkjun varðandi hugsanlega aðkomu lífeyrissjóða vegna Búðarhálsvirkjunar að hans sögn. „Til viðbótar þessu var minnst á stöðu mála varðandi væntanlega samgöngumiðstöð við Reykjavíkurflugvöll en það mál er ekki komið á það stig að það sé hægt að fara að skoða það. Loks var farið almennt yfir verkefni á vegum Vegagerðarinnar sem gætu komið til álita og það má segja að Suðurlandsvegurinn sé þar efstur á blaði. En Vegagerðin er að skoða fleiri atriði sem hún þarf síðan að forgangsraða og finna flöt á að gætu fallið að þessu verkefni.“///Þetta er arfavitlaus forgangsröðun að mínu mati og fl. það er nóg annað sem meiri þörf á ,að gera sem er meira atvinnuskapandi til að gera við lífeyrir okkar///Halli gamli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045801

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband