Bræðurnir seldu sjálfum sér Lyf og heilsu/þetta tekur engan enda svidlið!!!!

Viðskipti | Morgunblaðið | 29.9.2009 | 5:50
Lyf og heilsaFélag í eigu bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona fékk 896 milljónir króna að láni frá Moderna Finance AB, sem var einnig í þeirra eigu, til að kaupa verslunarkeðjuna Lyf og heilsu út úr viðskiptasamsteypunni Milestone í lok mars í fyrra.

Því er Lyf og heilsa ekki á meðal þeirra eigna sem Milestone færði undir Moderna Finance AB á sínum tíma og nú er verið að skoða hvort hægt sé að rifta færslu á á grundvelli gjaldþrotalaga. Slík riftun getur átt sér stað í allt að 24 mánuði eftir skrásettan söludag.

 Greiðist eftir hentugleikum

Félag bræðranna, sem heitir Aurláki ehf., keypti Lyfja og heilsu-verslanirnar út úr Milestone-samsteypunni fyrir um 3,4 milljarða króna, en um 2,5 milljarðar af kaupverðinu voru greiddir með yfirtöku skulda. Í úttekt Ernst & Young á viðskiptum Milestone við tengda aðila kemur hins vegar fram að 896 milljónir króna hafi verið „viðskiptafærðar og skulu greiðast við fyrstu hentugleika samkvæmt samningi“.

Þetta þýðir að Moderna lánaði Wernersbræðrunum tæpar 900 milljónir króna til að þeir gætu keypt út Lyf og heilsu og að þeir ættu að greiða skuldina þegar þeir gætu. Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone, segir að skuldin hafi verið gerð upp skömmu eftir að til hennar var stofnað.

Sex prósent fást upp í kröfur

Milestone var tekið til gjaldþrotaskipta fyrr í þessum mánuði eftir að kröfuhafar félagsins höfnuðu nauðasamningum, en þeir gerðu ráð fyrir að um sex prósent fengjust upp í kröfur. Stærsti einstaki kröfuhafinn er skilanefnd Glitnis með 44 milljarða króna kröfu. Í skýrslu með nauðasamningsumleitunum kom fram að umsjónarmaður þeirra mæti það svo að eignir hefðu verið færðar frá Milestone til Moderna í Svíþjóð án endurgjalds og því hefði verið um gjafagjörning að ræða///þetta ætlar aldrei að taka enda þessi svikamylla sem verið er að framkvæma,þrátt fyrir eftirlit sem er og verið hefur syndarmenska/við getum ekki liðið þetta lengur dæmum menn og hvað eru allir saksónarar að gera og rannsóknarmenn/Halli gamli


mbl.is Bræðurnir seldu sjálfum sér Lyf og heilsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Go Gunners !

Halli (IP-tala skráð) 29.9.2009 kl. 12:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045634

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband