Gleymdu 200 milljörðum/er þetta bara krækiber í helv.

Frétt af mbl.is

Gleymdu 200 milljörðum
Innlent | mbl.is | 20.10.2009 | 14:16
Guðlaugur Þór Þórðarson.Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sakaði þingmenn vinstri grænna í þingræðu fyrir stundu um að hafa gleymt 200 milljarða króna vaxtagreiðslum vegna afborganna af Icesave-skuldahalanum í umræðum sínum um kosti samningsins. Birgir Ármannsson sagði fyrirvara Icesave nú útvatnaða.

Áður en Guðlaugur steig í pontu sakaði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sjálfstæðismenn um að halda uppi efnahagslegum heimsendaspám. Fyrirvararnir, sem Pétur H. Blöndal þingmaður hefði kallað „tæra snilld“, héldu.

Guðlaugur Þór gerði hins vegar ummæli Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, þingflokksformanns Vinstri grænna, um að greiðsluþakið myndi halda eftir nýja Icesave-samkomulagið að umtalsefni. Þau ummæli sýndu að augljóst væri að Guðfríður Lilja þyrfti að kynna sér málið betur.

Með 200 milljarða áætluðum vaxtagreiðslum af Icesave hlyti stuðningur VG við samninginn að vera í uppnámi. Hér væri á ferð upphæð sem jafngilti fjórum nýjum háskólasjúkrahúsum.

Birgir Ármannsson var harðorður um nýja samkomulagið og sagði að í því hefðu fyrirvararnir verið „tættir niður“ og „þynntir út“, líkt og Ragnar H. Hall hefði bent á.

Hinu bæri að halda til haga að Ragnar teldi nýja samkomulagið „snöggtum skárra“ en það leit út í júní.

Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi einnig um Icesave-samkomulagið og sagði ekki hægt að treysta á að eignir Landsbankans gangi upp í 90% af Icesave-kröfunum.

Ísland þyrfti að greiða vexti af Icesave-skuldinni þótt enginn hagvöxtur væri í landinu á greiðslutímabilinu, eða árlega 15 til 50 milljarða króna, samanborið við 10 milljarða árlegt framlag ríkisins til Háskóla Íslands. 

Hætt sé við því að enginn hagvöxtur verði á greiðslutímabilinu og þá kunni sú staða að koma upp að margir telji nauðsynlegt að virkja og ganga á auðlindir landsins eins og hægt er. Á börnum, sem nú séu 1 til 2 ára, kunni að hvíla ævarandi skuld ef enginn hagvöxtur verður á tímabilinu.///hefi verið að hlusta og horfa á umræðurnar á Alþini núna síðasta j klukkufiman,og þar hefur þetta komið skort fram að við eigum að borga þetta hvað sem tautar og raular með hagvöxstin!!jafnvel þó hann sé neikvæður,þetta á akki að vara svona i samningnum frá  í sumar vara þetta ekki svo,og við eigum ekki að borga  ef getum það ekki,það ´ætti að vera öllum ljóst,það kemur betur og betur i  ljós að þetta skal gert,því um það er búið að semja og skrifa undir,þarna eru samningar sem við vitum ekkert  um,um eitthverja  flýtimeðferð okkar inn i ESB,eða það er mitt mat/Halli gamli


mbl.is Gleymdu 200 milljörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045675

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband