4-5 landsframleiðslur af töpuðum lánum/það þarf að skoða þetta vel!!!!

4-5 landsframleiðslur af töpuðum lánum
Innlent | mbl | 6.11.2009 | 11:25

Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra á Alþingi. Á næstu mánuðum munu hér á landi fara fram mestu afskriftir á lánum, í hlutfalli við stærð hagkerfis, sem um getur í sögu vestrænna hagkerfa. Þetta sagði Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, á Alþingi í dag. ,,Líklega tapast fjórar til fimm landsframleiðslur í þessum afskriftum,” sagði Gylfi

Hann minnti þó á að megnið af þessum afskriftum lendir á erlendum kröfuhöfum bankanna, þótt einnig verði þungar búsifjar hjá Íslendingum vegna þeirra. Gylfi var að svara fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, um afskriftir skulda og samkeppnisstöðu fyrirtækja utan dagskrár á þinginu.

Guðlaugur Þór sagði að íslensk fyrirtæki skuldi  tólf til fjórtán þúsund milljarða króna. Framundan séu mestu eignatilfærslur í Íslandssögunni. „Hverjir munu sitja uppi með eignirnar og hvernig verður borgað fyrir þær? Hverjir munu hagnast á uppsveiflu sem verður á næstu árum, nema stjórnvöldum takist gersamlega að klúðra málum,” spurði Guðlaugur Þór.

Guðlaugur Þór spurði meðal annars hvort ráðherrann teldi að samkeppnissjónarmiða hefði verið gætt hingað til, við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja, nægilegt gegnsæi hefði verið viðhaft og hvort að viðmið um afkomu eigenda fyrirtækjanna, um það hvort þeir fái að halda fyrirtækjunum, væru nógu gegnsæ.

Gylfi sagði að allir bankarnir hafi nú sett sér verklagsreglur um þessi mál. Hann teldi þær vera skynsamlegar en einnig þyrfti að liggja fyrir að farið sé eftir þeim reglum. Þess vegna hafi verið ákveðið að skipa sérstaka nefnd sem á að fylgjast með þessum málum. ,,Ekki er rétt að ég sem ráðherra gefi út einhverja línu fyrir hana hér, með því að lýsa því yfir hér og nú hver eigi að verða niðurstaðan úr slíkri rannsókn,” sagði Gylfi.///það þarf engi séní til að sjá að það er erfitt verk fyrir höndum og ekki öfundsvert,en áð verður að vega og meta hverjirt get rekið fyrirtækin áfram sem best með umsjá og hagnaði fyrir leiðarsjósi oft eru þetta mjög svo klárir menn allavega stjórnendur, þó svo sumir eigendur séu ekki,þeir sem við viljum hafa,þetta er erfitt og ber að gera með yfirsýn svo allt fari ekki i kaldar kol/Halli gamli


mbl.is 4-5 landsframleiðslur af töpuðum lánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045649

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband