Minni þörf á skattahækkunum/Bráðum koma blessauð jól !!segir Jóhanna forsætisráðherra!!!

Minni þörf á skattahækkunum
Innlent | mbl | 6.11.2009 | 13:56
Jóhanna Sigurðardóttir Vegna minni samdráttar og atvinnuleysis má reikna með að aðlögunarþörf ríkissjóðs minnki um 20 milljarða á næsta ári og verði 52 milljarðar í stað 72 milljarða. „Það þýðir að ríkið getur dregið úr nauðsynlegum skattahækkunum sem þessu nemur,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á Alþingi

Umræða fór fram á Alþingi í dag um stöðu efnahagsmála í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var málshefjandi umræðunnar og var Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra til andsvara.

Bjarni sagði mikil vonbrigði að ekki hafi verið gengið lengra eftir vaxtalækkunarbrautinni. Bjarni sagði að stærstu mistök ríkisstjórnarinnar væru að einblína ekki á aðgerðir í efnahagsmálum. Finna þurfi sem breiðasta sátt um hvernig staðið verði að niðurskurði og eins þurfi að finna leiðir til að fá tekjustofna ríkisins til að taka við sér. Sagði Bjarni að sjálfstæðismenn teldu óskynsamlegt við núverandi aðstæður að bæta skattahækkunum ofan í ástandið. Hins vegar væri eðlilegt að skattleggja inngreiðslur í lífeyrissjóði.

Bjarni sagði að þær leiðir sem ríkisstjórnin ætlaði að fara væru óskynsamlegar. Hugmyndir ríkisstjórnarinnar væru að auka skatta einstaklinga á næsta ári um 37 milljarðar á sama tíma og spáð væri miklum samdrætti kaupmáttar. Þessi vinnubrögð gengju ekki lengur. Ríksstjórninni hefði tekist að eyðileggja samstöðuna með aðilum vinnumarkaðarins sem náðist í sumar með gerð stöðugleikasáttmálans.

„Það sem okkur skortir er festa og skýr sýn á ástandið og að ríkisstjórnin geri a.m.k. tilraun til að skapa sátt um aðferðafræðina,“ sagði Bjarni. Minnti hann á að sjálfstæðismenn hefðu lagt sitt af mörkum með framlagningu ákveðinna efnahagstillagna.

Óskaði hann eftir svörum ríkisstjórnarinnar um aðrar leiðir sem settar hefðu verið fram til að auka tekjur ríkisins og hvort til greina kæmi að fella úr fjárlagafrumvarpinu allar nýjar hugmyndir um skatta.

Jóhanna Sigurðardóttir sagði að ramminn um efnahagslífið til næstu ára hafi nú verið mótaður en gríðarlega mikið hafi áunnst að undanförnu. Vonandi yrði áframhald á lækkun vaxta í næsta mánuði.

Horfur væru á að verðbólgan færi hratt dvínandi á næstunni. Aukinn gengisstöðugleiki hafi ekki verið á kostnað gjaldeyrisforðans.  Samdrátturinn hefði orðið minni en búist var við. „Við vonumst til að traust á íslenska fjármálakerfinu aukist hratt,“ sagði hún. Þá væri atvinnuleysi ekki eins mikið og óttast var.

Þá minnti hún á að unnið væri að undirbúningi nokkurra stórframkvæmda. Útboð á veigamiklum samgönguframkvæmdum væru vel á veg komnar. Einnig væru t.d. viðræður um Búðarhálsvirkjun í fullum gangi.

Jóhanna hafnaði því að tillögur sjálfstæðismanna um skattlagningu iðgjalda í lífeyrissjóðina væri skynsamleg leið.////vill Jóhanna skattleggja okkur i botn svo ekkert verið lifibrauðið,það verður eitthvað að gera sem fleiri okkur áfram,Sjálfstæðismenn eru með tillögur sem eru umræðuefni en á þá má ekki hlusta,þó svo að þessi skatta álagning lækki um 24 milljarða er hít samt um of,og endanlega gengur ekki upp að skattleggja okkur meira,en orðið er,það ma´skera þessa 60 milljarð af áríkisrekstri það er málið um tíma meðan við erum að retta úr kutunum,svo ekki borga nema part af Icesave og fara í málaferli um það er bara ekki spurning!! við getum aldrei staðið við það/Halli gamli


mbl.is Minni þörf á skattahækkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045652

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband