40 manns á næstu 11 árum/er ástarvikan að skila sér??????

40 manns á næstu 11 árum
Innlent | mbl.is | 7.11.2009 | 11:56

Frá Bolungarvík, þar hefur íbúum fækkað um þriðjung frá árinu 1980. Nýtt aðalskipulag Bolungarvíkur gerir ráð fyrir lítilsháttar fjölgun íbúa á næsta ári og að fjölgunin muni aukast fram til ársins 2020, verði þá orðin 0,6%. Frá þessu greinir á fréttavef Bæjarins besta. Samkvæmt þessu mun Bolvíkingum fjölga um 40 á næstu ellefu árum.

Íbúar Bolungarvíkur voru um 900 um síðustu áramót, en voru um þriðjungi fleiri árið 1980, eða um 1.200 talsins. Á sama tíma hefur landsmönnum fjölgað um 22%.

Í drögum að aðalskipulaginu er tekið fram að margir þættir geti haft áhrif á íbúaþróunina, því sé erfitt að segja nákvæmlega til um mannfjöldabreytingar til ársins 2020. Bent er á smæð sveitarfélagsins og vægi hverrar fjölskyldu. Þannig samsvarar tvær fjölskyldur til um 1% af íbúafjölda sveitarfélagsins.///þetta er kannski bara ástarvikunum að þakka, er það ekki ,eigum við ekki að hafa þær viða,Soffía hlýtur að áætla það allavega og þetta bara gott/Halli gamli


mbl.is 40 manns á næstu 11 árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045652

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband