Aukið lýðræði innan þjóðkirkjunnar rætt/það er löngu tímabært að hluta!!!!

Aukið lýðræði innan þjóðkirkjunnar rætt
Innlent | mbl.is | 7.11.2009 | 13:31
Frá setningu kirkjuþings í dag Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, vakti máls á því í ræðu sinni við setningu Kirkjuþings í dag að alvarlega bæri að „íhuga hvort ekki sé tímabæt að stíga það afdráttarlausa skref í átt til aukins lýðræðis innan þjóðkirkjunnar að allt þjóðkirkjufólk en ekki aðeins trúnaðarmenn í sóknarnefndum njóti kosningaréttar til kirkjuþings !!! 

Sjálfur sagðist Pétur telja það gerlegt að fara þá leið, annaðhvoft samhliða  sveitarstjórnarkosningum eða með rafrænni kosningu á vef kirkjunnar. „Vitaskuld yrði kjörsókn í engu samræmi við kjörsókn í kosningum til sveitarstjórna eða Alþingis, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn, en það skiptir þó ekki öllu máli," sagði Pétur. 

„Miklu mikilvægara er hitt að með þessu móti yrði tryggður réttur þess þjóðkirkjufólks til áhrifa innan kirkjunnar, sem á annað borð lætur sig málefni hennar einhverju skipta - og það fólk er margfalt fleira en sóknarnefndarfólk. Þjóðkirkjan þarf vissulega á auknum styrk að halda í umróti samtímans og til þess að efla ímynd kirkjunnar sem lýðræðislegrar fjöldahreyfingar þarf að leita nýrra og óhefðbundinna leiða. Þetta vil ég biðja þingheim að vega og meta af kostgæfni og alvöru."

Kirkjuþing fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar og samkvæmt núverandi fyrirkomulagi eiga þar sæti 29 kjörnir fulltrúar, þar af 12 vígðir menn og 17 leikmenn, auk þess sem biskup Íslands, tveir vígslubiskupar og einn fulltrúi guðfræðideildar Háskóla Íslands hafa þar málfrelsi og tillögurétt. ////þarna má mörgu breyta og laga til en númer eitt finnst manni að aðskilnaður ríkis og Kirkju  sé það sem þarf að gerast hið fyrsta og ekki seinna en fyrir næsta þing,allir hljóta að sja´að nú er tímin til þessa i kreppuni og mundi spara milljarða,það þíðir ekki lengur fyrir kirkjunnar menn að segja að ríkið hafi ekki efni á   að borga þá út,það gerist bara í áföngum og söfuðurinir sjá um það,svo þarf þessi Biskupstofa að sniða stakk eftir vexti/það kemur strax í ljós og aðskilnaðinn/Halli gamli

 
mbl.is Aukið lýðræði innan þjóðkirkjunnar rætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045651

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband