Fjöldahandtaka á Hvolsvelli/svona á löggæsla að vera!!!!!!

Fjöldahandtaka á Hvolsvelli
Innlent | mbl.is | 9.11.2009 | 23:11

Hvolsvöllur í Rangárþingri eystra. Lögreglan á Hvolsvelli stóð í ströngu í kvöld þegar ráðist var til atlögu gegn hóp manna sem stendur að baki innbrotahrinu á og við Hvolsvöll undanfarin mánuð. Fimm voru handtekin, þrír karlmenn og tvær konur, öll á þrítugsaldri og segir lögreglan að bróðurpartur þýfisins hafi verið endurheimtur.

Samhliða handtökunum voru húsleitir gerðar á þremur stöðum. Að sögn Sveins K. Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns á Hvolsvelli, höfðu málin verið til rannsóknar um nokkra hríð sem varð til þess að slóðin var rakin til fimmenningana. Þau eru öll búsett á Hvolsvelli og höfðu brotist víða inn á síðustu vikum, bæði á heimili og í verslanir og haft á brott með sér ýmis verðmæti, m.a. úr auk þess sem töluverðu af áfengi og tóbaki var rænt úr söluskála í bænum um liðna helgi.

Auk þýfisins lagði lögreglan hald á um 100 lítra af gambra sem var í vinnslu til landaframleiðslu. Leifar af fíkniefnum fundust einnig við húsleitirnar. Að sögn Sveins tengist fólkið allt og hafði staðið í innbrotunum og brugginu í sameiningu. Ekki er talið að fleiri tengist málinu. 

Óhætt er að segja að aðgerðirnar í dag hafi verið óvenju viðamiklar fyrir svo lítið sveitarfélag en Sveinn segir allt hafa gengið ákaflega vel fyrir sig og samkvæmt áætlun. „Þetta var glæsilega unnið af öllum sem að þessu komu og ég er afar ánægður með mitt fólk.“ Lögreglan á Hvolsvelli naut einnig góðs af liðstyrk lögreglunnar á Selfossi auk fíkniefnahunds af Litla-Hrauni og segist Sveinn lukkulegur með vel heppnaða samvinnu. 

Skýrslutökur og yfirheyrslur og hófust yfir fimmegningunum í kvöld og má búast við að þær haldi áfram á morgun.///svona á löggæsla að vera til fyrirmyndar!!!mikið er gott að svona nokkuð kemst upp,og það á þessum stað,að virðist engin óhultur fyrir svona,en kannski þetta verði til að fæla menn svo þjófnuðum og eyðileggingu/Halli gamli


mbl.is Fjöldahandtaka á Hvolsvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1045786

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband