Staðan í skattamálum metin á ríkisstjórnarfundi í dag/// Bíðum spennt!!!!

Staðan í skattamálum metin á ríkisstjórnarfundi í dag
Innlent | Morgunblaðið | 13.11.2009 | 5:30

Formenn stjórnarflokkana reyna finna saman um skattamálin. Ekki náðist endanleg niðurstaða í umræðum um skattatillögur ríkisstjórnarinnar á fundum þingflokka stjórnarflokkanna í gærkvöldi. Formenn flokkanna ræða málið og staðan verður metin á ríkisstjórnarfundi í dag. Ekki er vitað hvenær tillögurnar verða kynntar en umræða fer fram á Alþingi klukkan 11 um áform ríkisstjórnarinnar í skattamálum.

Stefnt að þrepaskiptum skatti

 

Ekki var fyllilega ljóst í gærkvöldi hvort full sátt væri um hugmyndir um þriggja þrepa tekjuskatt. Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, sagði að þingmenn VG teldu það mikilvægt að breyta skattkerfinu og þriggja þrepa tekjuskattur væri meira í anda stjórnarflokkanna en gamla kerfið sem ekki hefði reynst vel. „Það er ekki eina markmiðið að ná í tekjur, þótt það sé fyrsta markmið, heldur viljum við breyta skattkerfinu í leiðinni þannig að það færist ekki aftur til þess tíma þegar allt hrundi,“ segir hann.

Þrepin og tekjuskattsprósentur geta tekið breytingum frá því sem rætt hefur verið um. Björn Valur segir að reynt sé að færa neðsta þrepið upp til að hlífa þeim lægst launuðu en um leið að gæta þess að jaðaráhrif ofar í kerfinu verði ekki of þung fyrir tiltekna hópa.

Þá hefur komið til umræðu að fresta hluta af áformuðum hækkunum á virðisaukaskatti.////það bíða margir spenntir eftir  þessum ákvörðunum,og vona að þetta ver'i sanngjarnara en talað hefur verið um allavega fyrir þá þá sem nynnst mega sýn,það er svo auðvelt að gera vitleisur !!! að það getur gert muninn á að lifa þetta af/Halli gamli


mbl.is Staðan í skattamálum metin á ríkisstjórnarfundi í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 1045654

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband