Össur í höfuðborg spænsks sjávarútvegs/er hann að semja um fiskveiðar!!!!!

Össur í höfuðborg spænsks sjávarútvegs
Innlent | mbl | 22.11.2009 | 12:07

Össur hitti m.a. Corinu Porro, hafnarstjóra í Vigo. Össur Skarphéðinsson utanríkisáðherra hefur undanfarna daga verið í vinnuheimsókn á Spáni, þar sem hann hefur fundað með spænskum ráðamönnum og kynnt sér spænskan sjávarútveg.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Spánverjar taka eins og kunnugt er við formennsku í Evrópusambandinu af Svíum um næstu áramót.

„Utanríkisráðherra átti kvöldverðarfund með Miguel Angel Moratinos utanríkisráðherra og æðstu embættismönnum ráðuneytisins.

Hann átti einnig fund með Evrópumálaráðherranum Diego Lopez Garrido í Madrid og var boðið í spænska þingið þar sem hann átti fund með formanni evrópunefndar þingsins, Manuel Arias Canete og oddvita sósíalistaflokksins í nefndinni, Juan Moscoso.

Þá fundaði ráðherra og fylgdarlið með forystumönnum spænska vinnuveitendasambandsins og sérfræðingum í sjávarútvegsráðuneytinu.

Þá hélt  utanríkisráðherra til Vigo á norð-vesturströnd Spánar þar sem eru höfuðstöðvar spænsks sjávarútvegs.

Þar hitti hann forystumenn útgerðarmanna og fiskiðnaðarins, borgarstjóra Vigo og hafnarstjóra og athafnamenn sem eru í viðskiptum við íslensk fyrirtæki. Í Vigo átti ráðherra fundi með formanni og framkvæmdastjóra samtaka útvegsmanna, forystumönnum fiskiðnaðarins, og fulltrúum íslenskra fiskútflytjenda. Þá hitti hann Abel Caballero borgarstjóra Vigo og Corinu Porro hafnarstjóra sem áður var borgarstjóri. Þá átti ráðherra fund með Alfonso Paz-Andrade varaforseta Pescanova og upphafsmanni sjávarútvegssýningarinnar í Vigo,“ segir um ferðir Össurar í tilkynningunni.hvað er i gangi þarna ,er Össur a' semja um Fiskveiðar þeirra og um ESB eða hvað ,þetta er mjög svo umdeilt að ver þarna á svona viðkvæmu stigi,hann er til alls vís/Halli gamli


mbl.is Össur í höfuðborg spænsks sjávarútvegs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045652

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband