Brown álítur Icesave bindandi/ neyðarlagahöfundurin,Vill ekki hitta Jóhönnu,

Brown álítur Icesave bindandi
Innlent | mbl | 25.11.2009 | 19:21

Jóhanna Sigurðardóttir.Gordon Brown svaraði bréfi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra frá 28. ágúst þann 13. nóvember. Þar leggur hann áherslu á bindandi eðli Icesave-samninganna. Jóhanna Sigurðardóttir svaraði honum 17. nóvember og ítrekaði þá að Ísland ábyrgðist reikningana þó svo því bæri ekki skylda til þess.

Hann segist jafnframt telja þróun málsins síðan í sumar hafa verið mjög góða. Frumvarpið um Icesave-málið sem nú sé verið að ræða á Alþingi, þ.e. seinna frumvarpið um það mál, muni tryggja að lánasamningarnir vegna  málsins verði lögfræðilega skotheldir. Það sé mikilvægt skref fyrir alla aðila. Hann kveðst fagna því að ríkisstjórn Jóhönnu vilji tryggja að skuldbinding íslenska innistæðutryggingasjóðsins sé bindandi.

Hann kveðst jafnframt vona að málið geti nú leysts fljótlega svo hægt sé að líta fram á veginn.

Jóhanna Sigurðardóttir sendi honum annað svarbréf fjórum dögum síðar, þann 17. Nóvember. Þar segir hún að hún verði að bregðast við áherslu Browns á það að ábyrgð íslenska ríkisins sé bindandi.  Hún nefnir fyrirvara Alþingis sem gerðir voru fyrr í haust.  Eftir að þeir hafi verið útlistaðir hafi þó eitt mál staðið sérstaklega út af. Það hafi verið viðurkenningin á þeirri staðreynd, að íslenska ríkið sé að ábyrgjast skuldbindingar, þó svo að því beri ekki ófrávíkjanleg lagaleg skylda til þess.

Í lok bréfs síns segir Jóhanna að ef staða Íslands í málinu myndi skána á einhverjum tímapunkti í framtíðinni, vegna úrskurðar þar til bærs aðila, verði búist við því að Bretar og Hollendingar taki málið þá upp í anda sanngirni og góðvilja./// já er þetta ekki maðurinn sem settu á okkur herlög eða neyðarlögin ,af hverju ættan að eta nokkur ofnana í sig sá andskoti,Við syndum þeim linkynd strax og verðum að taka okkur á,við getum ekki borgað og þar að leiðandi er betra að gera Þeim .rein fyrir þvi nú en ekki seinna þegar allt er komið í þrot/þetta á bar að fara fyrir dómstóla við borgum ekkert meira fyrir það ,þó við töpum sem er ekkert vist,gallinn við þetta EES er .þegar komin fram og við höfum það með okkur/Halli gamli


mbl.is Brown álítur Icesave bindandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 1045648

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband