23.5.2011 | 20:13
Átaksverkefni á öskuslóðum/það er gott og vonandi að þessi velferðaráðherra standi sig er sennilega þeirra skástur kallin!!!
Innlent | mbl.is | 23.5.2011 | 18:35

Fram kemur á vef velferðarráðuneytisins að Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hafi kynnt tillögu þessa efnis á fundi ríkisstjórnar í morgun.
Ráðuneytið segir að efnt hafi verið til sambærilegs verkefnis vegna eldgossins í Eyjafjallajökli síðastliðið sumar en nokkuð hafi verið liðið á gosið þegar verkefnið hófst. Nú sé áhersla lögð á að hrinda verkefninu í framkvæmd sem allra fyrst, í samráði við aðgerðastjórn og sveitarfélög á svæðinu, svo aðstoðin komi að sem mestu gagni.
Fulltrúi velferðarráðuneytisins og Vinnumálastofnunar muni fljótlega funda með aðgerðastjórn og sveitarstjórum sveitarfélaga þar sem áhrif gossins séu hvað mest til að meta þörf fyrir aðstoð og ræða framkvæmd verkefnisins.
Laun þeirra sem ráðnir verði til verkefnisins verða samkvæmt kjarasamningum. Verkefnið verði fjármagnað með framlögum úr ríkissjóði og úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt reglum um átaksverkefni.////við skulum vona að þetta verðir gert og þessi skásti ráðherrann velferða verið til þessa ,og það gott enn þetta er borgað af viðlegasjóði og bætt það sem þar við á og svo að hjálpa til er það einnig ,svo þetta er bara það sem sett vara á eftir snjófljoðin miklu og við borgum i tryggingum okkar,öll og fyrirtækin einnig!! en þetta samt það sem bjargar því sem bjargað verður og það afbragð ,bar að þessu fari að linna fyrir blessað fólikð og fénaðinn,við biðjum fyrir því öllu/Halli gamli
![]() |
Átaksverkefni á öskuslóðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.5.2011 | 15:50
Ráðherrar ætla á gossvæðið/Ekki viss um að það sé rétta leiðin,mönnum mun bara bregað meira!!!!
Innlent | mbl.is | 23.5.2011 | 12:24

Ríkisstjórnin fjallaði í morgun um stöðu mála vegna eldgossins í Grímsvötnum. Á ríkisstjórnarfundinum var farið almennt yfir stöðu mála á gossvæðinu og þær afleiðingar sem gosið hefur þegar haft eða kann að hafa á næstunni.
Á fundinn komu Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn, Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá Almannavörnum og Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði.
Ríkisstjórnin mun í dag og næstu daga meta afleiðingar eldgossins með fjölmörgum sérfræðingum og hagsmunaaðilum og mun í framhaldi af því taka ákvarðanir um nauðsynleg viðbrögð.Þá lýsir ríkisstjórnin yfir mikilli ánægju með framlag allra þeirra sem lagt hafa hönd á plóg við að stuðla að bættu öryggi og afstýra hættu frá því að gosið í Grímsvötnum hófst. Segir í tilkynningu, að vinnubrögð þessara aðila hafi verið fumlaus og samvinna einstaklega góð.///engin gerir grín að gosum og jarðskjálftum als ekki,en að við þessar aðstæður segja að ráðherrar komi a´staðin er kannski ekki gott mönnum bara bregður meira nóg er komið af sjokki fyrir/en allir sem eig hönk uppí bakið á þessum Ráðherrum og ráðamönnum þjóðfélagsins,ein og Heimilin mörg i landinu og sem eru að missa sitt fyrirtækin og bókstafelaga allir sem eiga bátt vegan skulda og fátæktar ,þeir þurfa einnig að tala við það fólk,en gera ekki!!!!!!! það er svo margt ógert í þeim málum ,að það hálfa væri nóg svo talar Forsætisráherra um að leggja niður kvótan og takan eignarnámi af okkur sem eigum hann öll eða er það ekki,einnig að leggja niður landbunað með því að ganga i ESB ,það er allt i upplausn og svo a´að slá sér til riddara með því að skoða afleiðingar gossins/nei góðir hálsar haldið heldur áfram að ger það sem ykkur ber koma okkur út úr kreppunni !!!/Halli gamli
![]() |
Ráðherrar ætla á gossvæðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.5.2011 | 10:20
Icelandair hefur flug síðdegis/gott mál það fyrir alla!!!!
Innlent | mbl.is | 23.5.2011 | 9:26

Í tilkynningu frá félaginu segir að flug til Íslands frá Stokkhólmi, Osló, París, Frankfurt, Amsterdam, Helsinki, London, Kaupmannahöfn og Bergen/Stavanger verði í nokkurri seinkun og muni lenda í Keflavík um kl. 19 í kvöld.
Þá er áætlað að flogið verði til New York, Minneapolis, Seattle, Toronto, Boston og Washington um kl. 21 í kvöld.
Enn fremur verður flogið aukaflug frá Seattle til Íslands sem lendir í Keflavík í fyrramálið og verða tvö flug til og frá London síðdegis og eitt flug til og frá Kaupmannahöfn.
Farþegar eru enn sem áður beðnir um að fylgjast vel með fréttum og komu- og brottfarartímum á textavarpi og á netinu.//þetta gott fyrir flugið og fólkið að komast i prógrammið sem það þarf!!! og vonandi að það taki fljótt endi þetta gos,svo blessað fólkið og fénaður í sveitinni geti komist á rétta ról,en það er ekki eins og er/Halli gamli
![]() |
Icelandair hefur flug síðdegis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innlent | mbl.is | 23.5.2011 | 9:45
Á aðalsafnaðarfundi Lögmannshlíðarsóknar á Akureyri var samþykkt ályktun þar sem harmaður er róttækur niðurskurður á sóknargjöldum á síðustum árum og alþingismenn hvattir til þess að sporna við því að til frekar niðurskurðar komi.
Fundurinn var haldinn í Glerárkirkju í gær. Ályktunin sem samþykkt var er svohljóðandi:
Aðalsafnaðarfundur Lögmannshlíðarsóknar haldinn í Glerárkirkju sunnudaginn 22. maí 2011 harmar þann róttæka og ósanngjarna niðurskurð á sóknargjöldum sem orðið hefur á hinum síðustu árum. Fundurinn varar við því að frekari niðurskurður muni koma alvarlega niður á þjónustu við alla þá aldurs- og þjóðfélagshópa sem til kirkjunnar leita og þiggja þjónustu hennar. Minnt er á að sóknargjöld eru félagsgjöld í eðli sínu sem renna jafnt til safnaða þjóðkirkjunnar sem og annarra skráðra trúfélaga og standa undir grunnþjónustu þeirra og mynda þar með mikilvægan þátt í velferðaruppbyggingu samfélagsins. Fundurinn hvetur háttvirt alþingi til þess að sporna við því að til frekari niðurskurðar komi.////////þetta er mikill miskilningur það er er besta kerfið að ríkið geri þetta fyrir Kirkjuna hvort sem hún er þjóðkirkja eða fríkirkja eð annar söfunum þeir sem eru trúlausir borga bara ekki!!! þetta eigum við inni i hja´ríkinu ekki spurning það ekki meira rukka þetta en RÚV als ekki,og svo bara áfram með aðskilnað fullu við ríkið á annan hátt/kristilegt starf er ómetanlagt!!!!Halli gamli
![]() |
Harma niðurskurð sóknargjalda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2011 | 21:34
Öskufall byrjað í Reykjavík/er bara töluvert í Breiðholti efra !!!!!
Innlent | mbl.is | 22.5.2011 | 20:19

Vindáttin er norðvestlæg og því berst askan frá eldgosinu yfir landið. Staðan er þó léttvæg miðað við það sem íbúar á Suðurlandi hafa mátt þola í dag.
Í athugasemd frá veðurfræðingi á Veðurstofu segir að búast megi við talsverðu öskufalli allvíða SA-lands og einnig megi gera ráð fyrir dálitlu öskufalli á Suðurlandi og sunnan til á Faxaflóasvæðinu til morguns.
Aska er einnig tekin að falla á Eyjafirði eins og sjá má mynd af disk hjón við Hrafnagil settu út í dag./////svona getur þetta skeð að áttirnar í háloftunum eru ráðandi og það eru austanstæðar og þar af kemur þetta yfir okkur og maður finnur það vel,og sér,vonandi að þetta gos sé bara stutt þeirra vegna sem eru við þessar erfiðu aðstæður sem engin getur við ráðið,en við bara biðjum fyrir öll sem eitt/Halli gamli
![]() |
Öskufall byrjað í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2011 | 18:00
Öskumistur á Selfossi/það er að færast vestur á veg öskumisrið !!!!!
Innlent | mbl.is | 22.5.2011 | 17:35

Segja má að brúnt öskuský nái núna yfir allt Suðurland. Það hefur verið að færa sig vestar eftir því sem liðið hefur á daginn. Óvíst er þó hvort það nær til höfuðborgarsvæðisins því það er spáð norðlægum áttum þegar kemur fram á kvöldið.////þarna skipta áttirnar máli miklu og ef þetta helst og færist vestur á við er það ekki gott,betra að það fari á haf út í norðanáttinni,en þetta kemur allt i ljós i siðar i kvöld ,það spáir samt norðan að maður heldur!!og vonandi að það haldist meðan gosið er svona mikið!!!/Halli gamli
![]() |
Öskumistur á Selfossi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2011 | 17:52
Allir úti að smala/þetta er harkan sex sem dugar þarna, og vonar maður að allt fari vel!!!
Innlent | mbl.is | 22.5.2011 | 17:19

Um 800 lömb fæddust í vor á Hunkubökkum og var stór hluti þeirra kominn út þegar eldgosið hófst. Björgvin gat ekkert sinnt því í morgun þegar svart öskuský lagðist yfir svæðið. Upp úr kl 14 í dag fór að rofa til og fór Björgvin þá með fleira fólki að smala og gefa kindunum bæði hey og vatn. Hann segir þetta mikla vinnu, enda er húspláss takmarkað eftir að lömbin eru fædd.
Björgvin sagði að kindurnar virtust hræddar og jörmuðu mikið. Engin lömb hefðu hins vegar drepist og sagðist hann vona að tækist að koma í veg fyrir að þau bæru skaða af öskufallinu.
Svavar Helgason, sem er í svæðisstjórn björgunarsveita á Kirkjubæjarklaustri, sagði að bændur væru á öllum bæjum að sinna búfé. Björgunarsveitarmenn hefðu aðstoðað menn sem þess þyrftu. Hann sagði að tekist hefði að sinna öllum beiðnum um aðstoð við íbúa svæðisins.///það er ekkert annað að gera þar en að takast á við þessar aðstæður þarna sem er ekki góðar ,gæti vart verið verri ,en svona er það engin elsku mamma og bara hella sér í hlutina,hugur okkar allra er með þessu blessaða fólki og fénaði og biðjum þeim blessunar og vonandi að þessu fari að linna ,en það svo að það veit engin ,og þessa vegna er þetta svo átakanlegt allt!!!/Halli gamli
![]() |
Allir úti að smala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2011 | 16:24
Spánverjar „eru Ísland“/við skulum allavega vona að þeir fái ekki svona stjórn eins og við fengum!!!!
Erlent | mbl | 22.5.2011 | 13:10

Mikil mótmæli hafa staðið á Spáni undanfarna viku og virðast mótmælendur m.a. sækja innblástur í búsáhaldabyltinguna á Íslandi. Kosningar eru í landinu í dag. Fólk fór út á göturnar með pönnur eins og gert var í Reykjavík á sínum tíma og íslenski fáninn er út um allt," segir Elena. Það er hópur sem heitir Við erum öll Ísland," (Todos somos Islandia) og þeir hafa gert síðu þar sem fólk getur búið til inn eigin íslenska fána til að hengja upp." Meðal helstu slagorða mótmælanna sé Ef þið haldið svona áfram þá gerum við eins og Íslendingar." Þá klifruðu mótmælendur upp á styttu á Spánartorgi á Mallorca í gær, komu þar íslenska fánanum fyrir og kölluðu Íslandstorg líkt og sjá má á þessu myndskeiði hér.
Halda að bankastjórar sitji inni
Elana segir hinsvegar að talsverður misskilningur sé um raunverulega stöðu mála á Íslandi. T.a.m. virðist margir halda að íslensku bankastjórarnir sitji nú allir bak við lás og slá. Einnig sé talsvert rætt um það markmið Íslendinga að almenningur taki þátt í að breyta stjórnarskránni, en lítið sé rætt um vandann sem kom upp í tengslum við stjórnlagaþingskosninguna á Íslandi.
Greinilegt sé samt að Ísland sé fyrirmynd, þó hún sé einfölduð, enda sé ímynd landsins mjög jákvæð, ekki síst eftir að Icesave lögunum var hafnað. Elena segir Spánverja almennt líta svo á að Íslendingar séu eina þjóðin sem hafi spyrnt við fæti og neitað að láta allt yfir sig ganga. Það er fyndið vegna þess að þegar ég flutti til Íslands fann ég ekki einu sinni ferðabók um það. Ég vissi ekkert um landið, en nú er Ísland úti um allt. Mér finnst jákvætt að fólk fái innblástur frá Íslandi um að það sé hægt að gera eitthvað. Því það er ótrúlegt, fólk heldur að við Spánverjar séum ótrúlega skapbráðir, en landið er búið að vera á leið í ruslið undanfarin sex ár og enginn hefur gert neitt fyrr en núna."
Vonast eftir pólitískum breytingum
Þrátt fyrir það segist Elena ekki viss hverju mótmælin munu skila. Hún segir þau fremur stefnulaus og óljóst hvaða pólitík liggi að baki, jafnvel þótt því sé statt og stöðugt haldið fram að enginn flokkur standi að baki þeim. Hún segir þjóðina enn fasta í skotgröfum borgarastyrjaldarinnar og flokkapólitíkin litist af því. Þetta er voðalega erfitt, landið hefur alltaf verið klofið í tvennt, við og hinir. Ég veita að það er ekki hægt að gleyma stríðinu, því margir sem tóku þátt í því eru ennþá lifandi, en enginn flokkur hefur reynt að stappa þjóðinni saman."
Hún segist vona að mótmælin hafi jákvæð áhrif til framíðar en segist þó alls ekki viss um að svo verði. Það er erfitt að segja, það væri að sjálfsögðu gott að hafa fleiri stóra flokka að velja á milli en bara Sósíalista og Lýðflokkinn. Svo er líka spurning hvað gerist á mánudaginn. Ef fólkið hverfur þýðir það að þetta hefur bara verið eitthvað til að hafa áhrif í kosningunum. En ef þau halda áfram að mótmæla þá kannski verða flokkarnir að fara að hlusta á hvað fólkið vill.
En það eitt er víst að Spánverjar eru búnir að fá nóg. Það er enginn flokkur sem maður getur treyst og ekkert sem gengur betur. Við erum ennþá á leið niður og ég held að fólk sé loksins búið að fá nóg, svo ég held að allar breytingar væru góðar breytingar."///svona verða fréttir til sem eru mis goðar að sannleika en samt Spánverjar vilja breytingar það vildum við einnig en ekki þessa komma sem eru að koma okkur á lægsta pan frá því fyrir stríð,Að bankastjórara sitji inni fyrir sinar misgjörðir er því miður ekki rétt og svo margt annað,en annað mikið gott og maður óskar þeim blessuðum Spánverjum als góðs og vona að þessi mótmæli þeirra skili árangri og þeir sjái ljósið og betri Ríkisstjórn sem segir sig frá ESB og standi á eigin fótum,enda eiga þeir að hafa burði til þessa/Halli gamli
![]() |
Spánverjar eru Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innlent | mbl.is | 22.5.2011 | 12:19

Það sér ekki út úr augum. Þetta er eins og það sé nótt. Það er ekkert vit að vera úti, sagði Gunnar. Bændur hafa eðlilega áhyggjur af sínum dýrum, en það er ekki viðlit að smala þeim eins og er. Ef menn fara 100 metra frá bænum er ekki víst að þeir rati til baka þó þeir séu aldir upp á hlaðinu.
Gunnar sagði að aska væri farin að falla í Skaftártungum. Þetta er margfalt verra en það sem við fengum hér í fyrra.
Gunnar sagði ekki vitað um efnainnihald öskunnar. Því miður kemur þetta á þeim tíma þegar lambfé er komið út. Í fyrra hófst gosið áður en sauðburður hófst. Við vitum ekki hvernig fé reiðir af núna.
Gunnar sagði að það sem væri mikilvægast nú væri að koma rennandi vatn til dýranna. Það væri hins vegar ekki hægt við þessar aðstæður. Pollar væru hættulegir því þar safnaðist flúor fyrir. Hann sagði að flúor væri slæmur, sérstaklega fyrir gripi sem væru í örum vexti. Ekki er talið að flúor hafi valdið skyndidauða í búfé hér á landi þó það geti gerst. Langtímaáhrif af flúor eru hins vegar slæm.
Gunnar var spurður hvort ástæða væri til að óttast víðtækan lambadauða hjá bændum. Við vitum það ekki. Ég hef enga reynslu af þessu og við höfum bara söguna til að styðjast við.
Þetta er orðið um eins cm lag af ösku og ekki nokkur leið að halda augum opnum út í þessu. Hér alveg niðdimmt. Enginn skepna er á ferð. Fuglarnir hreyfa sig ekki og hægt er að ganga að þeim ef maður finnur þá. Hér er alveg grafarþögn, sagði Gunnar.
Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal í Mýrdal, reyndi í dag að huga að skepnum í öskufallinu, en hann varð frá að hverfa. Hann sagði bændur algerlega bjargarlausa.////Hugur okkur allra er hjá þessu blessaða fólki og fénaði sem þarna er við þetta að búa og biðja fyrir því að gosið verði ekki langvint og þessu linni fljótt/það er svo gott fyrir okkur að segja þetta og hitt og hafa ekkert sem við getum gert nema biðja/en samt erum við sem eldri erum svolítið vit á að þetta er ömurlegt að lifa við svona aðstæður!!!!/Halli gamli
![]() |
Bændur bíða og vona það besta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2011 | 13:26
Upplýsa viðskiptavini um stöðuna/ það svo að ,þarna eru við kannski að fara framúr okkur að stoppa allt flug????
Innlent | mbl.is | 22.5.2011 | 11:48

Allar ferðir með vélum Icelandair frá Keflavíkur til Evrópu í morgun voru á réttu róli og skv. áætlun. Nú er flugvöllurinn, vegna öskufalls frá Keflavíkurflugvelli, hins vegar lokaður og því alls óvíst með til og frá landinu næstu klukkustundir.
Icelandair vinnur nú að því að upplýsa viðskiptavini um stöðuna og aðstoða vegna breytinga á ferðatilhögun þeirra, meðal annars með því að bóka þá sem eru í tengiflugi milli Evrópu og Norður-Ameríku með öðrum flugfélögum.
Að sögn Guðjóns hafa ekki verið settar upp neinar áætlanir um að flytja áætlunarflugið annað, til dæmis til Akureyrar, eins og gert var í gosinu í Eyjafjallajökli á sl. ári. Ákvarðanir um slíkt verði þó teknar í samræmi við nýjar upplýsingar og stöðuna frá hverjum tíma.//////////Aðgát skjal höfð!!! en ekki bar stoppa allt flug,það er svo að þetta er og hefur mikil áhrif á ferðamennsku ekki spurning og við eigum að gera alt sem hægt er að halda henni,það er að segja með gát,en það er svo að fyrstu viðbrögð eru oft svona og svo átta menn sig,en að er alveg hægt að fljúga eins og er og meðan vindátt er svona er það bara gott að nota Egilstaði og Akureyri/en þetta hlýtur að skoðast fljótt!!!!annars fer illa með allt flug og ferðamennsku!!!/en það er svo að við bregðumst vel við og það gott !!!!
![]() |
Upplýsa viðskiptavini um stöðuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar