Microsoft kaupir Skype/þetta er eitt það þarfasta sem upp hefur komið !!!!

Microsoft kaupir Skype
Viðskipti | mbl.is | 10.5.2011 | 12:16

 Bandaríski hugbúnaðarframleiðandinn Microsoft mun kaupa netsímafélagið Skype fyrir 8,5 milljarða dala, jafnvirði 972 milljarða króna. Fyrirtækin staðfestu þetta nú í hádeginu.

„Skype er mögnuð þjónusta sem milljónir manna um allan heim elska," sagði Steve Ballmer, forstjóri Microsoft í yfirlýsingu. „Saman munum við skapa framtíð rauntímafjarskipta svo fólk geti með auðveldum hætti verið í sambandi við fjölskyldur sínar, vini, viðskiptavini og félaga hvar sem er í heiminum."

Microsoft segir, að Skype verði sérstök deild innan fyrirtækisins og að Tony Bates, forstjóri Skype, verði forstjóri Skypedeildar Microsoft og heyri beint undir Ballmer.

Skype var stofnað árið 2003 en netuppboðsfyrirtækið eBay keypti Skype árið 2005. Fyrirtækið var síðan selt til fjárfestingarfélagsins Silver Lake árið 2009.  Daninn Janus Friis og Svíinn Niklas Zennström, stofnendur Skype, eiga hins vegar enn um 14% hlut í Skype, að sögn vefjar Børsen og er sá hlutur metinn á 6,2 milljarða danskra króna, 136 milljarða íslenskra króna.  

Milljónir manna nota Skype til að tala saman án endurgjalds á netinu. Talið er að með kaupunum sjái Microsoft tækifæri til að endurskapa ímynd sína og ná fótfestu á markaði fyrir svonefnda snjallsíma. 

Fréttastofa Bloomberg hefur eftir heimildarmanni, að Skype sé 3.-4. milljarða dala virði eða innan við helming af því sem Microsoft greiðir.///það er eiginlega sama hvaðan gott kemur!! vona bara að þetta verði ekki til að .þessu frítali verði breitt !! það er dásamlegt að geta talað við fólk hvar sem er og hvenær sem er þarna og vonandi að það haldist og "þá er björninn unnin" eins og sagt er!!! en þetta er mikið þörf að hafa ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Microsoft kaupir Skype
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Vondar fréttir“/við' verðum bara að vona að úr rætist/satt Kristján Loftsson er ekki fyrir að gefast upp!!!

„Vondar fréttir“
Innlent | mbl.is | 10.5.2011 | 14:53

Mynd 536549„Þetta eru vondar fréttir,“ segir Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri Akraness, spurður út í ákvörðun Hvals hf. að fresta hvalveiðum í ár um óákveðinn tíma vegna ástandins í Japan. Um verulega hagsmuni sé að ræða fyrir sveitarfélagið og íbúa þess, enda um mörg störf að ræða.

Tugir Akurnesinga hafi haft atvinnu af hvalveiðum, bæði í Hvalstöðinni í Hvalfirði og í kjötvinnslunni í bænum.

„Í því árferði sem núna er þá munar nú um minna en þetta. Við getum í sjálfu sér ekki gert annað en vonað að úr rætist og óskað Kristjáni [Loftssyni, framkvæmdastjóra Hvals hf.] velfarnaðar í því. Hann er nú reyndur af öðru heldur en að gefast upp,“ segir Árni í samtali við mbl.is.

 

„Við erum ekki búin að reikna út áhrifin, en þau eru neikvæð. Það munar um hvert starf í núverandi árferði,“ bætir hann við.

Aðspurður segir Árni að sveitarfélagið leiti ávallt leiða til að örva atvinnu. Sérstakur starfshópur sinni því verkefni. Þá verði starfsmaður ráðinn í tímabundið starf sem hafi það verkefni að reyna að leita leiða til að hjálpa og styðja við atvinnumálin.

Í sumar verði allmörg atvinnuátaksverkefni í gangi. Vonir standi til þess að hægt verði að bjóða allt að 50 tímabundin störf til að koma til móts við atvinnuleitendur og námsmenn.

„Þó að ýmislegt sé hér erfitt þá hefur Grundartangasvæðið staðið vel og við höfum notið þess. Það eru býsna margir héðan sem þar starfa. Þannig að það gæti verið verra. En Hvalstöðin skiptir máli og þarna hafa verið vel launuð störf fyrir marga. Þannig að þetta kemur býsna illa við töluvert stóran hóp,“ segir Árni að lokum. ////þetta er ekki gott eins og maður sagði fyrr í dag ,þetta er mjög svo slæmt á allavegu atvinnulega og svo að halda hlutunum við til veiða og að Japanir skuli ekki geta keypt þetta kjöt sem er eitt það besta i heimi og holt eftir því,við íslendingar vitum það eina og Japanir,en hvernig væri að við tækjum þátt i að greiða það það niður fyrir þá sem aðstoð, sem ekki veitir af þarna,skoðum málin betur!!!/Halli gamli


mbl.is „Vondar fréttir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Telja meirihluta á þingi fyrir málinu/sá grófi miskilningur að knésetja Útgerðina er ekki i lagi!!!

Telja meirihluta á þingi fyrir málinu
Innlent | mbl | 10.5.2011 | 13:25

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Jóhanna... „Ég held að sú niðurstaða sem fékkst núna á ríkisstjórnarfundi sé ásættanleg. Þetta er auðvitað stórt og erfitt mál og mörg sjónarmið í þessu máli og skoðanir en ég held að niðurstaðan sem hér er fengin sé ásættanleg fyrir okkur hér í ríkisstjórninni,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra
loknum ríkisstjórnarfundi í dag þar sem nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða var samþykkt.

Jóhanna sagði að málið færi til þingflokka stjórnarflokkanna annað hvort síðar í dag eða á morgun þegar endanlega hefði verið gengið frá kostnaðarmati vegna frumvarpsins. Frumvarpið yrði síðan kynnt á lokuðum fundi með hagsmunaaðilum í sjávarútvegi eins og heitið hefði verið í tengslum við nýafstaðnar kjaraviðræður. Að því loknu færi málið til afgreiðslu þingsins.

Aðspurð sögðu Jóhanna og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, að alger samstaða sé um málið í ríkisstjórninni. Þá telja þau að meirihluti verði fyrir málinu á þingi og jafnvel að ekki væri útilokað að stuðningur kæmi við það frá þingmönnum fleiri flokka en stjórnarflokkanna. ///"mey skal að' morgni lofa" segir máltækið,og við skulum ekkert segja fyrr en við sjáum frumvarpið!! en það liggur i orðum Jóhönnu að þetta sé eitthvað rótækt,og það er ýmislegt sem þarna má bæta allir sammála þar!!og það er engin vandi að gera hækka gjaldið fyrir veiðarnar,og svo að viðpurkenna auðlindina sem okkar allra,ekki spurning en að bylta þessu er ekki hægt nema á löngum tíma allt að 30 árum!!!/Halli gamli


mbl.is Telja meirihluta á þingi fyrir málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gerrard: Árangur Man.Utd hvatning fyrir okkur/þetta er gott að þeir taki sig áfram Liverpool !!!

Gerrard: Árangur Man.Utd hvatning fyrir okkur
Íþróttir | mbl.is | 10.5.2011 | 8:03

Steven Gerrard ásamt Raul Meireles samherja sínum hjá Liverpool.Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að sigur Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á þessu vori verði Liverpool enn frekari hvatning til að komast aftur í toppslag deildarinnar á næsta keppnistímabili.

Svo framarlega sem United missir ekki af meistaratitlinum á lokasprettinum í vor verður félagið enskur meistari í 19. skipti og siglir þar með framúr Liverpool sem hefur á þriðja áratug verið sigursælasta lið Englands með 18 meistaratitla á sínum verðlaunalista.

„Þetta er sárt að því leyti að við áttum metið lengi. En við verðum að viðurkenna og virða orðinn hlut, þeir eru komnir framúr okkur sem stendur. Það jákvæða frá okkar sjónarhóli er það að við erum á réttri leið á ný og munum leggja allt í sölurnar til að komast  framúr þeim á ný. Það er e ngin hætta á öðru," sagði Gerrard við The Mirror.

„Það verður okkur mikil hvatning að sjá erkifjendurna fara framúr okkur í unnum meistaratitlum. Við getum áfram fagnað fleiri sigrum í Evrópukeppni en þurfum að leiðrétta stöðuna 19:18. Við munum allir leggja allt í sölurnar til þess," sagði Steven Gerrard sem er að jafna sig af aðgerð og vonast til að vera kominn í gott stand þegar nýtt undirbúningstímabil hefst í sumar////von á að taka þessu og halda því það er komið þarna gott lið, sem getur unnið hvern sem er og það er ekkert sem getur stoppað, að reyna að láta þetta gerast það ert svo að þeir eru komnir vel i það stuð ,að geta tekið þetta næst,en það er gaman að þessu að segjast geta unnið næst ,og vonandi koma þeir vel i slagin,ekki veitir af !!!/Halli gamli


mbl.is Gerrard: Árangur Man.Utd hvatning fyrir okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvótafrumvörp til þingflokka?/menn bíða spenntir!!!,gæti sent allt í uppnám????

Kvótafrumvörp til þingflokka?
Innlent | mbl.is | 10.5.2011 | 12:08

Ögmundur Jónasson. Ríkisstjórnarfundur stendur enn í Stjórnarráðshúsinu en Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, yfirgaf fundinn fyrir skömmu og svaraði þá játandi þegar fréttamenn spurðu hann að því hvort frumvörp um stjórn fiskveiða færu nú til þingflokka. ///menn bíða spenntir ,og ekki að undra það er ekkert sem getur valdi meira uppnámi ef alt verður sett í hasar og .það er eitthvað sem þeim dettur i hug að muni sameina þjóðina um eitthvað sem sátt er um,og það er beðið þess að' það verði ekki,og vinum við það sem legum um að það vanti gjaldeyrir til að við getum staðið við samninga gerða!! en ef allt fer illa er þetta komið i öngstræti ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Kvótafrumvörp til þingflokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferguson: Ekki rétt að vanmeta United/það eru rétt hjá Ferguson að það ber að vanmeta ekki M.U.N.

Ferguson: Ekki rétt að vanmeta United
Íþróttir | mbl.is | 10.5.2011 | 9:34

Alex Ferguson fagnar sigri sinna manna gegn Schalke.Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United telur að ekki rétt fyrir menn að vanmeta lið sitt í baráttunni gegn Spánarmeisturum Barcelona um Evrópumeistaratitilinn en liðin leika til úrslita á Wembley þann 28. þessa mánaðar.

Þessi sömu félög áttust við í úrslitaleik fyrir tveimur árum þar sem Börsungar fóru með sigur af hólmi. Barcelona þykir sigurstranglegra liðið í úrslitarimmunni en Ferguson er hvergi banginn.

,,Það tala allir um hversu frábært lið Barcelona er en Manchester United er í úrslitum. Allir segja að þetta Manchester United sé ekki gott og við séum ekki svona og og svona. En við höfum skorað fleiri mörk en öll önnur lið í deildinni, árangur okkar á heimavelli er stórkostlegur og við höfum ekki tapað leik í Meistaradeildinni. Við er úrslitum í Meistaradeildinni og þurfum eitt stig til viðbótar til að hampa Englandsmeistaratitlinum,“ sagði Ferguson í viðtali við útvarpsstöðina Sirius XM.

,,Síðast þegar við mættum Barcelona í úrslitum þá byrjuðum við leikinn mjög vel en fengum síðan á okkur slæmt mark og eftir það hélt Barcelona boltanum vel innan liðsins eins og það gerir alltaf. Það sem við þurfum að gera er að halda Xavi, Messi og Iniesta í skefjum. Ég tel að við getum vel lagt Barcelona að velli.“////////Rétt hjá Ferguson að það berað virða það að þetta eru tvö góð lið og ekkert sem segir neitt að M.U.N.geti ekki unnið þó svo ég og mínir líkar veðji á Barcelona er það engan vegin öruggt ekki svo að þeir spila mjög ´ólíka knattspyrnu,en það segir ekki allt það eru mörkin sem telja og þar eru báðirA´sama róli en þetta kemur alt i ljós ekki spurning/Halli gamli 


mbl.is Ferguson: Ekki rétt að vanmeta United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herjólfur siglir ekki í hádeginu/sagan endalausa heldur áfram ,þvi miður!!!

Herjólfur siglir ekki í hádeginu
Innlent | mbl.is | 10.5.2011 | 10:01

 Vegna sjólags falla niður ferðir Herjólfs klukkan 11:30 frá Vestmannaeyjum og 13: frá Landeyjahöfn. Kvöldferðirnar klukkan 21 og 22:15 verða farnar samkvæmt áætlun.
///// þetta er að verða sagan endalausa og ekkert lát á þessu og menn bara taka þessu ,og ekkert gerist ,en hvað lengi þetta gengur er ekki vist að  fólk sætti sig við mikið lengur ,ég dásit að fólkinu í Vestmannaeyjum að láta þetta yfir sig ganga/Halli gamli


mbl.is Herjólfur siglir ekki í hádeginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaðveiðum frestað/slæmar frettir þetta,maður hefði haldið að Japanir þyrftu þetta kjöt ???

Hvaðveiðum frestað
Innlent | mbl.is | 10.5.2011 | 11:38

 Hvalveiðar hefjast ekki á hefðbundnum tíma í ár vegna ástandsins í Japan og verður frestað um óákveðinn tíma en staðan verður endurskoðuð í ágúst, að sögn Kristjáns Loftssonar, framkvæmdastjóra Hvals hf.///þetta vekur hjá manni furðu!!heldur að áð sé aldrei meiri þörf fyrir þetta kjöt eftir hamfarir þeirra Japana  sem  voru miklar og ógnvænlegar!!!!,og þetta hlýtur að verða skoðað vel og vendilega hvalurinn er einn besti metur sem þeir gera fengið !!!og við einnig eigum að borða hann meira holt og gott fæði!!!/Halli gamli


mbl.is Hvalveiðum frestað um óákveðinn tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórar hrefnur á land/það þarf að veiða mikið meira af hrefnu og selja ódýrara!!!

Fjórar hrefnur á land
Innlent | mbl.is | 10.5.2011 | 11:17

Hrafnreyður KÓ. Fjórar hrefnur hafa nú veiðst frá því hrefnuveiðimenn fóru fyrst á miðin á Faxaflóa í lok apríl.

Fram kemur á vef Félags hrefnuveiðimanna, að Hrafnreyður KÓ-100 veiddi tvær hrefnur á laugardag. Bæði dýrin voru meðalstór kvendýr. Kjötið af dýrunum var unnið í gær í kjötvinnsluhrefnuveiðimanna og verður dreift í verslanir í vikunni.

Skipverjar á Hrafnreyði fóru út í morgun og ætla að vera við veiðar í dag.///það þarf að veiða mikið meira af hrefnu og gefa okkur kost á að kaupa það ódýrara ekki ,þetta er jafn dýrt og nautkjöt en það er gott og mjög svo heilbrigt að borða og veiðið bara meira ,ekki spurning!!!/Halli gamli


mbl.is Fjórar hrefnur á land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taldi afskipti ráðuneytisins óskiljanleg/Frekja Jóhönnu er með afbryðum !!!!!

Taldi afskipti ráðuneytisins óskiljanleg
Innlent | mbl.is | 9.5.2011 | 14:35

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, taldi það óskiljanlegt hvers vegna forsætisráðuneytið væri að hafa afskipti af málum forsetaembættisins á síðasta ári vegna tillagna um að forsetaembættið setti sér siðareglur.

Þetta kemur fram í svarbréfi forsætisráðuneytisins, sem er dagsett 15. júlí 2010, og er það þriðja bréfið sem ráðuneytið sendi forsetanum vegna málsins. Þau hafa verið birt í heild sinni á Eyjunni.

Þar segir m.a.:

„Bréfið fól í sér beiðni um tilteknar upplýsingar en í því voru hvorki tilskipanir né „rakalaus tilraun til íhlutunar í samskipti forsetaembættisins og Alþingis“ eins og þér haldið fram í bréfi yðar og er ástæða til þess að mótmæla þessari framsetningu af yðar hálfu.“  skírslu s

 

Þann 11. júní 2010 sendi forsætisráðuneytið forsetaembættinu bréf þar sem vísað er til skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Ráðuneytið telji rétt að óska eftir viðhorfum forsetaembættisins til þess hvernig staðið verði að því að setja reglur um hlutverk og verkefni forsetans og samskipti hans við önnur ríki og siðareglur forsetaembættisins.

Í bréfi ráðuneytisins frá 1. júlí er svo beiðnin svo ítrekuð. Þar segir m.a. að skilningur forsætisráðherra á fundi með forseta 25. júní 2010 sé annar en komi fram í svarbréfi forsetaembættisins. Þar hafi komið fram að forsetaembættið myndi koma sjónarmiðum sínum á framfæri með bréflegum hætti.

„Er því ítrekað erindi ráðuneytisins frá 11. júní síðastliðnum þar sem óskað er eftir viðhorfum forsetaembættisins til tillagna er það varða í viðauka 1 við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.“

Mbl.is hefur óskað eftir því að fá afrit af bréfum forsetaembættisins.///maður skilur Ólaf Ragnar  Forseta vorn vel þarna þessi yfirgangur, Forsætisráðherra yfir öllu sem sem hún ætlar að bylta ,er ekki þolandi fyrir okkur sem viljum hafa þetta í lagi!!! samskipti við þessu manneskju er ekki fyrir neinn,frekjan er að gera útaf við hana og afskipti að öllu sem hún ætlar að taka i gegn,allt vegna hrunsins og skírslu rannsóknarnefndar,þetta er svo að þetta hlýtur að enda með skelfingu ekki lætur Ólafur þetta eftir kelllu /Halli gamli


mbl.is Taldi afskipti ráðuneytisins óskiljanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband