Microsoft kaupir Skype/þetta er eitt það þarfasta sem upp hefur komið !!!!

Microsoft kaupir Skype
Viðskipti | mbl.is | 10.5.2011 | 12:16

 Bandaríski hugbúnaðarframleiðandinn Microsoft mun kaupa netsímafélagið Skype fyrir 8,5 milljarða dala, jafnvirði 972 milljarða króna. Fyrirtækin staðfestu þetta nú í hádeginu.

„Skype er mögnuð þjónusta sem milljónir manna um allan heim elska," sagði Steve Ballmer, forstjóri Microsoft í yfirlýsingu. „Saman munum við skapa framtíð rauntímafjarskipta svo fólk geti með auðveldum hætti verið í sambandi við fjölskyldur sínar, vini, viðskiptavini og félaga hvar sem er í heiminum."

Microsoft segir, að Skype verði sérstök deild innan fyrirtækisins og að Tony Bates, forstjóri Skype, verði forstjóri Skypedeildar Microsoft og heyri beint undir Ballmer.

Skype var stofnað árið 2003 en netuppboðsfyrirtækið eBay keypti Skype árið 2005. Fyrirtækið var síðan selt til fjárfestingarfélagsins Silver Lake árið 2009.  Daninn Janus Friis og Svíinn Niklas Zennström, stofnendur Skype, eiga hins vegar enn um 14% hlut í Skype, að sögn vefjar Børsen og er sá hlutur metinn á 6,2 milljarða danskra króna, 136 milljarða íslenskra króna.  

Milljónir manna nota Skype til að tala saman án endurgjalds á netinu. Talið er að með kaupunum sjái Microsoft tækifæri til að endurskapa ímynd sína og ná fótfestu á markaði fyrir svonefnda snjallsíma. 

Fréttastofa Bloomberg hefur eftir heimildarmanni, að Skype sé 3.-4. milljarða dala virði eða innan við helming af því sem Microsoft greiðir.///það er eiginlega sama hvaðan gott kemur!! vona bara að þetta verði ekki til að .þessu frítali verði breitt !! það er dásamlegt að geta talað við fólk hvar sem er og hvenær sem er þarna og vonandi að það haldist og "þá er björninn unnin" eins og sagt er!!! en þetta er mikið þörf að hafa ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Microsoft kaupir Skype
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 1045806

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband