31.1.2010 | 20:32
Arnór: Medalía skiptir öllu fyrir okkur/Við stóðum okkur vel,við stolt þjóð Íslendingar,af okkar mönnum!!!!
Íþróttir | mbl | 31.1.2010 | 20:10

Við fórnuðum okkur algjörlega í leikinn og ég tel að við séum búnir að sýna og sanna að við eigum heima á meðal bestu þjóða heims. Nú þurfum við bara að halda áfram á sömu braut. Sigurinn og bronsið tileinkum við Gunn Magg og fjölskyldu hans, sagði Arnór, sem átti frábæra leiki með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu.///maður er að ná sér fyrst núna eftir þennan spennandi leik sem var mjög svo dramatískur og við unnum og fengum bronsið,Halli gamli
![]() |
Arnór: Medalía skiptir öllu fyrir okkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Innlent | mbl.is | 31.1.2010 | 12:47

Egill Helgason tók viðtal við Keiser í Silfri Egils í dag en Max Keiser hefur fjallað talsvert um Ísland undanfarin ár og lýsti í viðtalinu þegar hann ræddi við starfsmenn erlendra banka á 101 hóteli fyrir nokkrum árum. Þar lýstu þeir því hvernig þeir tækju stöðu gegn krónunni.
Keiser segir eðlilegt að lögsækja bankamennina íslensku sem beri ábyrgð á hruni bankanna. Hann segist von að þeir fái harðari refsingu heldur en þeir fái í Bandaríkjunum.
Hann segir að ef Íslendingar vilji ekki verða skuldaþrælar næstu áratugina þá greiði þeir að sjálfsögðu atkvæði gegn Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni.////horfði á þennan þátt i dag,og þetta sem Max sagði er alveg rétt við sjáum þetta betur dag frá degi hvernig þessa þjóðir ætla að kúga okkur til að borga ,það sem okkur ber ekki,hingað og ekki lengur!!!!Halli gamli
![]() |
Segir Darling og Brown vera hryðjuverkamenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2010 | 21:19
Bjartsýnir eftir fund í Haag/en maður er nú hóflega bjartsýnn ??????
Innlent | mbl.is | 30.1.2010 | 0:35

Hann segir fundinn hafa verið gagnlegan og telur að staðan hafi skýrst. Ekki hafi þó verið um formlegan samningafund að ræða.
Það kom á daginn að það er alveg hægt að ræða við þessa menn, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, eftir fundinn. Hann er bjartsýnn á að hægt verði að semja um betri niðurstöðu. Undir það tekur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.///horfði á fréttir i kvöld og eftir það hóflega bjartsýnn,Bretar og Holendingar segjast vera til viðræðu,bara um hvað látið ykkar álit i ljós,og við skoðum það,og þetta er auðvitað bara utúrsnúningur,maður sér ekkert annað það verður ekkert gefið eftir nema eitthvert orðalag eða kannski vextir,þeir sögðu þið bara borgið/það er málið,þó svo við getum það ekki, alls ekki,það sjá allir sem vilja./Halli gamli
![]() |
Bjartsýnir eftir fund í Haag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2010 | 17:25
„Það er verið að kúga okkur"/Forseti vor tekur á málstaðnum !!!!!
Innlent | mbl.is | 30.1.2010 | 7:41

Ólafur Ragnar segir að ríkin tvö hafi nýtt sér áhrif sín hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum til þess að koma í veg fyrir að sjóðurinn myndi lána Íslandi þá 2 milljarða Bandaríkjadala sem þyrfti til þess að byggja upp landið á ný.
Það er verið að kúga okkur. Bretar og Hollendingar eru að nota áhrif sín hjá AGS til þess að koma í veg fyrir að áætlun AGS haldi áfram," segir í viðtali Richard Quest, fréttamanns CNN við forsetann.
Ólafur Ragnar segir Ísland lítið ríki sem er reiðubúið til að bera sinn hluta af byrðunum en Íslendingar vilja ekki vera settir út í horn á þann hátt að efnahagur landsins næstu tíu árin er í húfi.
Á CNN er farið yfir hvað fellst í Icesave-samkomulaginu og að Ólafur Ragnar hafi neitað að staðfesta lögin sem samþykkt voru 30. desember. Hann tekur í viðtalinu við CNN dæmi af því hve miklar byrðarnar yrðu á hvern Breta ef miðað væri við höfðatölu. Þetta jafnist á við að breskir skattgreiðendur þyrftu að greiða 700 milljarða punda á næstu árum og áratugum.
Vísað er til orða Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á vef CNN þar sem hún ýjar að því að ákvörðun Ólafs Ragnars um að skrifa ekki undir geti tafið efnahagsbatann á Íslandi og að Ísland verði hluti af Evrópusambandinu.
Gert í þágu lýðræðisins
Ólafur Ragnar segir í viðtalinu að ákvörðun hans sé í þágu lýðræðis. Hann hafi farið að vilja þjóðarinnar, að fjórðungur hennar hafi skrifað undir áskorun til hans um að skrifa ekki undir lög sem leggi rúmar 2,2 milljónir króna á hvern íbúa.
Við höfum gleymt að það eru tveir máttarstólpar í vestrænni arfleið sem við erum stolt af. Annar er þróun frjáls markaðar og hinn er lýðræðisþróunin," segir Ólafur Ragnar í viðtali við CNN.
Og það sem ég gerði þegar ég varð að velja á milli fjárhagslegra hagsmuna annars vegar og lýðræðis hins vegar þá valdi ég lýðræðið."
Fjármálaleg hryðjuverkastarfsemi af hálfu Breta
Ólafur Ragnar fer yfir í viðtalinu þegar bresk stjórnvöld settu Ísland á lista yfir þá sem grunaðir eru um hryðjuverk. Þeir settu land mitt á opinberan vef bresku ríkisstjórnarinnar við hlið al-Qaeda og talibana."
Eins þegar Gordon Brown og Alistair Darling, mættu í sjónvarp í október 2008, þar á meðal CNN, og sögðu að Ísland væri gjaldþrota.
Sem var fullkomin þvæla og ekkert annað er fjármálaleg hryðjuverkastarfsemi af þeirra hálfu, að sögn forseta Íslands. Þetta hafði þau áhrif að fyrirtæki alls staðar í heiminum sem áttu í samskiptum við Ísland, lokuðu fyrir þau."
Þetta segir Ólafur Ragnar að hafi haft verulega slæm áhrif á efnahag Íslands og hann því orðið verri en hann hefði þurft að verða./////þetta er frábært hjá Forseta vorum Ó.R.G. og hafi ekki aðrir sagt þetta betur og það gott að láta þessu menn heyra það sem þeir hafa gjört okkar þjóð!!!Orð i tíma töluð og ekkert af skafið og er maður mikið hrifin af þessu og hann spilar þarna stórt hlutverk/Halli gamli
![]() |
Það er verið að kúga okkur" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2010 | 16:34
Guðmundur: Byrjunin í seinni hálfleik var hræðileg/ekki nein neikvæðni vinna á morgun Brons!!!!
Íþróttir | mbl | 30.1.2010 | 15:28

Ég veit ekki hvort menn hafi verið of fljótir að gefast upp en strákarnir byrjuðu seinni hálfleikinn óvenju dauft og það voru mikil vonbrigði.
Aron Pálmarsson átti frábæra innkomu í fyrri hálfleik og skoraði 6 mörk á síðasta korterinu. Hvers vegna var hann ekki látinn hefja seinni hálfleikinn?
,,Um daginn létum við hann byrja seinni hálfleikinn og það gekk ekki. Nú hugsuðum við að láta hann koma inná eftir 6-7 mínútur. Það er auðvelt að segja eftir á, hefðum við átt að gera eitthvað annað? Það veit enginn og ómögulegt að velta sér upp úr því. Ég treysti þeim mönnum sem eru inná í hvert skipti.
,,Ég var nokkuð sáttur við varnarleikinn og markvörsluna en það sem ég var óánægður með voru hlaupin til baka og hraðaupphlaupin.
,,Við höfum áður lent í áföllum í keppninni og höfum rifið okkur upp úr þeim. Ég er sannfærður um að menn mæti grimmir á morgun. Það er mikill munur á þriðja og fjórða sætinu og við stefnum svo sannarlega //////ekki gráta Björn bónda heldur safna liði,og að gerum við betra liðið vann og við töppuðum fyrir sterku liði Frakka kannski aðeins of stórt/en við snúum okkur að leiknum a morgun og vinnum bronsið vonandi /Halli gamli
![]() |
Guðmundur: Byrjunin í seinni hálfleik var hræðileg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | mbl.is | 30.1.2010 | 12:39

![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2010 | 12:41
Fjórmenningar lausir úr haldi/var ekkert hald í þessu/eða bara stormur i vatnsglasi!!!!
Innlent | mbl.is | 30.1.2010 | 11:04

Íslensk lögregluyfirvöld njóta aðstoðar sænsku lögreglunnar við rannsókn málsins. Sænska félagið Aserta AB gegndi lykilhlutverki við að kaupa íslenskar krónur fyrir gjaldeyri á aflandsmarkaði á miklu lægra gengi en gilti hér á landi. Mennirnir fjórir eru taldir vera raunverulegir stjórnendur Aserta AB./////var þetta bara stormur i vatnglasi eða hvað'??? Blaðamannafundur og alles og menirnir saklausir aða hvað????þetta er eitthvað fljótskrift að mínu mati en vonandi að þetta komi i ljós/Halli gamli
![]() |
Fjórmenningar lausir úr haldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | mbl | 29.1.2010 | 10:41

![]() |
EM: Þrjár þjóðir taplausar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2010 | 17:47
Fundi lokið í Haag/Auðvitað gerist ekkert,þeir Bretar og Hollendingar standa á sínu!!!!
Innlent | mbl.is | 29.1.2010 | 15:58

Aðilar munu nú meta stöðuna en á þessu stigi hefur ekki verið tekin ákvörðun um frekari fundi," segir í tilkynningu.///vitanlega skeður ekkert annað en verið að draga okkur á asnaeyrunum,að mínu meti,þeir standa fast á sinu þessir Bretar og Hollendingar!!!! það er ekkert annað i stöðunni en að kjósa og fella og svo ef ekkert skeður bara dómstóla,ekkert annað ,það vilja allir innst inni ,fá úr þessu skorið þar ,svo allir verði við að una/Halli gamli
![]() |
Fundi lokið í Haag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2010 | 17:07
Eiður spilar ekki á morgun/hlakka til að fá að sjá hann takast á í Bresku úrvaldeildinni!!!!
Íþróttir | mbl.is | 29.1.2010 | 16:41

Eiður mætti á sína fyrstu æfingu hjá Tottenham um hádegið en Redknapp sagði að það væri of snemmt að setja hann beint í leik með liðinu. Hann ætlaði að gefa Eiði viku til að æfa og komast inní hlutina hjá félaginu áður en hann myndi spila fyrsta leikinn.///það er gaman að þetta er frágengið og vonum að hann standi sig drengurinn !!!!!,þarna á hann heima,og við hlökkum til að horfa á næstu leiki með honum/áfram Íslendingar/Halli gamli
![]() |
Eiður spilar ekki á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.5.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 48
- Frá upphafi: 1047700
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar