Jóhanna: Vextir lækka en óvissa eykst/Bölmóður Forsætisráðherra !!!!!!

Jóhanna: Vextir lækka en óvissa eykst
Innlent | mbl.is | 29.1.2010 | 14:26

Jóhanna Sigurðardóttir. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í ávarpi á fundi Sóknaráætlunar 20/20 á Hótel Sögu í gær að verðbólga og vextir héldu áfram að lækka en um leið væri ljóst að óvissa í efnahagsmálum hefði aukist vegna frestunar á því að leysa deiluna um bætur til innistæðueigenda útibúa Landsbankans erlendis.

Vaxtalækkun nú hefði orðið mun meiri en 0,5% ef Icesave hefði verið afgreitt.

„Við erum að glata dýrmætum tíma og tafir á framkvæmd efnahagsáætlunar Íslands og AGS, frestun á áætlun um afnám gjaldeyrishafta og takmarkanir á aðgengi Íslands að alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum munu verða okkur afar dýrkeypt ef fram heldur sem horfir", sagði forsætisráðherra, samkvæmt fréttatilkynningu.

„Meðan efnahagslíf á heimsvísu er á leið upp úr öldudalnum eigum við á hættu að keyrast enn lengra niður í öldudalinn. Seðlabankinn varar við því að linni óvissunni ekki á næstu vikum séu horfur á því að fjárfesting taki seinna við sér og samdráttur landsframleiðslu og atvinnuleysi verði meiri en nú er spáð. Í þessu sambandi verður að muna að við eigum gífurlega mikið undir því að stýring á skuldum ríkisins takist vel á næstu árum og hægt verði að halda utanum skuldirnar á viðráðanlegum kjörum."

Forsætisráðherra sagði að þrátt fyrir mikla erfiðleika hefði samt miðað áfram á mörgum sviðum og þar nefndi hún  sérstaklega að bankarnir ættu nú að vera í stakk búnir til þess að endurskipuleggja fjárhag lífvænlegra fyrirtækja í landinu.

„Það skiptir og miklu máli upp á atvinnustigið í landinu að stór verkefni komist í gang í byggingageiranum vegna þess að hann hrundi þegar þenslunni lauk. Það er hins vegar eðli stórframkvæmda að þar er um flókin ferli að ræða sem við ríkjandi aðstæður í efnahagsmálum er þrautin þyngri að ráða fram úr. Öll þau verkefni sem fjallað er um í Stöðugleikasáttmálanum, hvort sem um er að ræða endurnýjun í Straumsvík, undirbúning álvers í Helguvík, gagnaver Verne Holding, nýjan Landspítala og Samgöngumiðstöð og samgönguframkvæmdir þokast þó áfram en afar brýnt er þau nái fram að ganga. Með úrskurði umhverfisráðherra vegna Suðvesturlínu er enn einni óvissunni eytt í þessum efnum," samkvæmt tilkynningu./////það eru 15 mánuður síðan kreppan skall á,og enn er þessu skuld Icesave að gera okkur þennan sama grikk,við en að rífast um að borga skuldir einkabanka,sem ennþá er ekki er ekki komið á hreint hvort b við eigum að gera samkvæmt lögum eða ólögum sem verða að kallast,því fáir vissu að þessu grein í samningu EES væri svona ,sem er náturlega mjög umdeilt og þarf að fara fyrir dóm,um það erum við sennilega öll sammála að sitthverju leyti,en þetta með hana Jóhönnu blessaða og fl.þar er það þessi árátta að blanda þessu saman við ESB það sem hún og meirihluti samfylkingar vill koma okkur vill ekki stykkja þessa þjóðir sem allar verða að viðurkenna okkur inn /þar i lyggur hundurinn grafin að nokkru,svo eru þessa hótanir AGS og ESB og sagt er allra ,sem hafa þessi áhrif,maður getur ekki sagt að það sé auðvelt að stjórna svona,en það veður að gersat þetta gengur ekki lengur svona,við sjáum til hvað kemur þara út hja´Steingrími og Bjarna Ben. og Sigmundi,þeir ræða við Breta og Hollendinga um koma aftur i kvöld,en svona það sem maður heldur ,er ekkert annað en að kjósa og svo byrja uppá nýtt og semja eða malaferli!!!! en við getum ekki beðið eftir þvi að koma hjólum okkar atvinnu af stað það verður að ske strax.Jóhanna snúðu þér að því!!!!!


mbl.is Jóhanna: Vextir lækka en óvissa eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feður sem greiða ekki meðlag afhjúpaðir/er þess ekki þörf einnig á Íslandi ?????

Feður sem greiða ekki meðlag afhjúpaðir
Erlent | AFP | 29.1.2010 | 11:43

Frá Tallin í Eistlandi Eftir harða gagnrýni þess efnis að þau hafi brugðist við innheimtu meðlags til einstæðra foreldra hafa eistnesk yfirvöld gripið til aðgerða. Sett hefur verið af stað átak á internetinu þar sem feður sem vanrækja að borga meðlag eru opinberaðir, í tilraun til að þvinga þá til að greiða vegna skammar.
Markmið þess að hafa opna vefsíðu er að hvetja fjarlæga foreldra til að borga skuldir sínar," segir dómsmálaráðherrann Marko Aavik. „Allir, ekki bara vinir þeirra og félagar, geta séð og lesið upplýsingarnar um þá núna."

Síðan var opnuð í dag undir heimasíðu dómsmálaráðuneytis Eistlands og eru þegar 13 nöfn komin á listann, en búast má við því að á næstu vikum verði þau orðin nokkur hundruð. Við hlið nafnanna er kennitala mannanna og skrá yfir bæturnar sem þeir hafa vanrækt að greiða en þær nema allt að tveimur milljónum króna.

Nöfnin verða fjarlægð 10 dögum eftir að viðkomandi hefur gert upp skuld sína, en þau eru ekki birt yfirhöfuð nema með samþykki þess foreldris sem elur barnið upp. Að sögn ráðuneytisins er vitað til um 4.700 foreldra sem hafa svikist undan dómsúrskurði um að greiða meðlag. Þeir séu hinsvegar margfalt fleiri en skráin segi til um því hitt foreldrið kjósi oft að kæra ekki.

Málefnið hefur lengi verið til umræðu í fjölmiðlum og meðal almennings en illa hefur gengið að uppræta vandann fram til þessa. „Ég styð þetta algjörlega, þetta gæti þvingað þá sem hegða sér eins og asnar, til dæmis með því að hafa efni á því að borga fyrir nýjan bíl en ekki fyrir sitt eigið barn, til að borga loksins sinn skerf," hefur AFP eftir embættismanninum Reet Roos sem lengi hefur barist fyrir umbótum í málum einstæðra foreldra.///  er ekki komin tími til þessa aðferða einnig á Íslandi,þá  finnst manni  i-og hefir alltaf fundist !!!!!,annar verðum við skattþegna þessu lands að gera það,manni hefur alltaf fundist þetta þurfa/Halli Gamli


mbl.is Feður sem greiða ekki meðlag afhjúpaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

906 fyrirtæki í þrot/hvað verða þau mörg 2010??????

Innlent | mbl.is | 29.1.2010 | 9:01
Flest gjaldþrot verða í byggingarstarfsemi og... Í desember 2009 voru 80 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 75 fyrirtæki í desember 2008, sem jafngildir tæplega 7% fjölgun milli ára. Árið 2009 er heildarfjöldi gjaldþrota því 906 samanborið við 748 gjaldþrot árið 2008 sem jafngildir rúmlega 21% aukningu milli ára. ///// og enn harðnar á dalnum og hváð skildu þau verða mörg 2010 ef eftir gengur verða þau mörg,þetta segir okkur að það muni aukast mjög,hvaðan eiga skattarnir að koma engin atvinna????/Halli gamli


mbl.is 906 fyrirtæki í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland tryggði sér sæti á HM 2011/Blóð sviti og tár,og árangur!!!!

Ísland tryggði sér sæti á HM 2011
Íþróttir | mbl.is | 28.1.2010 | 21:19

Guðjón Valur Sigurðsson fagnar sigrinum gegn Noregi í kvöld. Íslendingar tryggðu sér sæti á heimsmeistaramótinu í handknattleik í dag sem fram fer í Svíþjóð í janúar á næsta ári. Þrjú efstu liðin á EM tryggja sér sjálfkrafa þátttökurétt en heimsmeistaralið Frakka var búið að tryggja sér sæti á HM eftir sigurinn á HM í Króatíu árið 2009. Ísland, Pólland og Króatía eru því gulltryggð með sæti á HM árið 2011, hvernig sem fer um helgina í undanúrslitaleikjunum.///það er svo" við uppskerum sem við sáum" segir málatækið og það sannast þarna strákarnir eiga þetta skilið og allir sem að því standa ,og við Íslendingar erum stoltir,!!!!!!/Halli gamli 
mbl.is Ísland tryggði sér sæti á HM 2011
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir sig úr þingmannanefnd/maður af meiri,"batnandi mönnum er best að lifa" segir máltækið!!!

Segir sig úr þingmannanefnd
Innlent | mbl.is | 28.1.2010 | 17:45

Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur sagt sig úr 9 manna þingmannanefnd, sem kosin var á Alþingi til að fjalla um væntanlega skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Ásbjörn viðurkenndi í vikunni í Kastljósi, að hafa greitt sér út ólöglegan arð úr útgerðarfyrirtæki sínu Nesveri fyrir árið 2006.

Fram kom í Kastljósinu, að Ásbjörn hefði endurgreitt arðinn, 20 milljónir króna, fyrir skömmu eftir að fréttamenn spurðu hann um málið. Sagðist hann ekki hafa vitað fyrr en þá, að arðgreiðslan hefði verið ólögleg þar sem eiginfjárstaða fyrirtækisins var neikvæð á þessum tíma.

Yfirlýsing Ásbjörns er eftirfarandi:

 

Undir lok síðasta árs tók ég sæti í níu manna þingmannanefnd sem fjalla á um skýrslu nefndar sem vinnur nú að rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða.

Tilgangur nefndarinnar er að vinna úr þeim upplýsingum sem fram koma í skýrslu rannsóknarnefndarinnar, þannig að læra megi af þeim mistökum sem gerð voru í aðdraganda falls bankanna. Það er von mín að þar verði stigið mikilvægt skref til uppbyggingar og endurreisnar trausts í íslensku viðskiptalífi, sem og samfélaginu öllu.

Að undanförnu hafa mál er mér tengjast verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Ég hef gert skilmerkilega grein fyrir því hvernig þeim málum var háttað og gert allt sem í mínu valdi stendur til að leiðrétta þau mistök sem gerð voru. Ég hef nú ákveðið að segja mig frá störfum í nefndinni, til að tryggja að friður ríki um störf hennar. Þau mál sem hún mun hafa til umfjöllunar eru þess eðlis að ekkert má verða til að draga athyglina frá þeirri mikilvægu vinnu sem nefndinni er ætlað að inna af hendi, þar með talin persónuleg mál einstakra nefndarmanna.///maður var nokkuð harðorður hér áður um þetta enn,þetta er sennilega rétta að segja bara af sér nefndarstörfum,en halda áfram  Þingstörfum,en við verðum að vera harðir við okkar menn sem gera svona þó það sé ekki með vilja gert/þetta var lögbrot og ekkert annað/Halli gamli

 


mbl.is Segir sig úr þingmannanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurganga okkur heldur áfram/unnum Norðmenn með 1 marks mun!!!!!!

Sigurganga okkur heldur áfram unnum Norðmenn með 2 mörkum yfir og erum taplausir á mótinu,það segir okkur að við getum á goðum degi  leikið til úrslita,lengra vill maður ekki fara að sinni en spyr að leikslokum //'áfram Ísland !!!!/Halli gamli


Fara utan til funda vegna Icesave/ekki samningar heldur skoðurskipti????

Fara utan til funda vegna Icesave
Innlent | mbl.is | 28.1.2010 | 16:50

Frá fyrri fundi formanna og talsmanna stjórnmálaflokkanna á...Forystumenn stjórnmálaflokkanna eru á leið utan til fundar við Hollendinga og Breta vegna Icesave-deilunnar. Morgunblaðið hefur staðfestar heimildir fyrir því að með í för séu formenn VG, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks en ekki hefur fengist staðfest hverjir fóru frá Samfylkingunni og Hreyfingunni.

Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er ekki um beinar samningaviðræður að ræða heldur meira upplýsingafundi. Munu forystumennirnir koma aftur til landsins á morgun, en þá kemur Alþingi saman að nýju. Meðal þeirra sem til stóð að hitta er viðskiptaráðherra Hollendinga. Forystumenn flokkanna komu saman til fundar í gær, og þar mun þessi ferð hafa verið ákveðin, herma heimildir blaðsins.////maður verður að segja frá mínu bæjardyrum séð,er þetta ekki gott,það að Bretar og Hollendingar ráði ferð er ekki það sem við erum að pæla i þá verður þetta bara svo áfram,en skoðun málin og sjáum hvað kemur þarna ut/Halli gamli


mbl.is Utan til funda vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obama setur vinnumarkaðinn í forgang/þetta verðum við að gera einnig!!!!!!

Obama setur vinnumarkaðinn í forgang
Erlent | mbl.is | 28.1.2010 | 7:22

Barack Obama.Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði í ávarpi sínu til bandarísku þjóðarinnar í gær að helsta forgangsefnið nú væri að skapa störf. Obama ávarpaði þjóðina í s.k. „state of the union" ræðu sem forseti heldur árlega í byrjun árs þar sem hann fer yfir stöðu lands og þjóðarvar í fyrsta skipti sem Obama heldur þessa ræðu og hóf hann hana með því að segja að Bandaríkin yrðu að „svara kalli sögunnar.“Hann sagðist hafa tekið við embætti og tveimur stríðum um leið, efnahag sem skekinn hefði verið af alvarlegri kreppu, fjármálakerfi á barmi hruns og við ríkisstjórn sem væri skuldum vafin.

Hann sagði m.a. að hann myndi halda áfram tilraunum sínum til að bæta heilbrigðistryggingakerfið og varði auk þess stefnu sína við björgun bankanna, sem hann sagði hafa bjargað mörgum störfum.

„Eyðileggingin er enn til staðar," sagði hann. „Einn af hverjum tíu Bandaríkjamönnum fær ekki vinnu. Mörg fyrirtæki hafa misst fótanna. Heimilin hafa hrunið í verði. Litlir bæir og sveitarfélög hafa orðið sérstaklega illa úti. Þeir sem þegar þekktu fátækt á eigin skinni búa nú við enn harðari kjör en áður. Ég veit af þessum vandamálum sem hrjá okkur. Þau eru ekki ný af nálinni. Þessi vandamál eru ástæða þess að ég bauð mig fram sem forseta."

Hann sagði jafnframt að vinnumarkaðurinn yrði algjört forgangsatriði á árinu 2010 og að hann krefðist þess að nýtt lagafrumvarp um vinnumarkaðinn yrði samþykkt í öldungadeildinni.

 

Þá tilkynnti Obama að hann myndi láta verða af því á þessu ári að afnema umdeild lög sem banna samkynhneigðum að gegna herþjónustu, en það var eitt kosningaloforða hansþetta er bara hár rétt hjá Óbama,og við  eigum að´gera þetta einnig og vel það,þetta a´að hafa forgang meðfram Bönkunum og heilsugæslunni,ekkert grín þetta,b við að,hækka skatta sem er ekki fhægt vegna  samdráttar/serra bara meira niður þar sem ekki er þessa þörf að spreða/Halli gamli


mbl.is Obama setur vinnumarkaðinn í forgang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

jón Ásgeir og bakkabræður Björgulfar og fleiri og fleiri skulda mikið :talaðum þetta!!!!!en heimilin að hrinja og ekkert gert af minm mönnum tila að hjálpa þeim!!!!

Taka þessu kalla og setja i fangelsli ,og látta þá borga og siðan, að snúa ser að  bjarga því sem bjargað verður af heimilum sem eru að missa  sitt og koma fyrirtækjum i vinnu,þetta hefðum  minir menn, þurtf að gera srax,,,,þessi stjórn gerir ekkert

/Halli gamli


.Arfleiddi söfn, félög og stofnanir að öllumeigum sínum/þetta er gott að geima i Stálsmiðju og slipp felaginu!!!!

Arfleiddi söfn, félög og stofnanir að öllum eigum sínum
Innlent | Morgunblaðið | 28.1.2010 | 5:30

Hjálmar við Magna, fyrsta stálskipið sem smíðað var á Íslandi. Hjálmar R. Bárðarson, fyrrverandi siglingamálastjóri, sem lést í fyrra, arfleiddi sex stofnanir og félög að öllum eigum sínum. Um er að ræða eitt af stærri dánarbúum sem ánafnað hefur verið.

Hjálmar arfleiddi Byggðasafn Ísafjarðar, Þjóðminjasafn Íslands, Landgræðslusjóð, Landgræðslu ríkisins, Sjóminjasafnið í Reykjavík og Fuglaverndarfélag Íslands að öllum eignum sínum. Ekki er búið að gera upp dánarbúið og ekki vitað hversu arfurinn er stór, en giskað er á að hann gæti verið 170 milljónir.

Eiríkur Páll Jörundsson, forstöðumaður Sjóminjasafnsins, segir það muna miklu fyrir safnið að fá þessa höfðinglegu gjöf. Fjármunirnir hafi verið notaðir til að gera endurbætur á safninu, en þar hefur verið komið upp Hjálmarsstofu, og til að gera endurbætur á dráttarbátnum Magna sem Hjálmar teiknaði./////þetta varður kannski tit að eiga eitthvað að þessu löglegum fyrirækjum og geima  þar þetta safn Slippalagið í Rvík stífnað 1902   annað hlutafélag i landinu sem var stofnað og segir útgerðasögu okkar,einnig stálsmiðjan það er hún stofnuð stuttu seina,þarna vann Hjalmar sem verkfræðingur ljósmyndari og fuglasafnari,þetta bara frábær maður ,maður lendi i því að  vinna með honum vann  þarna frá  1949,en ef þetta að eyðileggja er það mkiil, ljóður i sögu okkar útgerðara/og bara skömm,"!!!!manni finnst ot þekkir samt í broddi fylkingar mínir menn eins og Júlíus Vifill  sem er in hafnarstjorn,ekki vilja nema slátra þessu og það skömm/Halli Gamli 


mbl.is Arfleiddi söfn, félög og stofnanir að öllum eigum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1047700

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband