Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

53% af Icesave greiðist í ár og á næsta ári/hvað er að þarna hjá þessum sjálfsætðísþingmönnum og foringum flokisins,er klofingur í gangi við grarótina og fleiri

% af Icesave greiðist í ár og á næsta ári
Innlent | mbl.is | 29.3.2011 | 15:29

Tryggvi Þór Herbertsson alþingismaður.Meira en helmingur af Icesave-skuldinni verður greiddur á þessu og næsta ár. Þetta sagði Tryggvi Þór Herbertsson, alþingismaður sjalfstæðisflokksins, á Alþingi i dag. 

Tryggvi Þór sagði að kosningarnar um Icesave 9. apríl snerust ekki um að borga það sem í samningunum fælist, ef það þyrfti að borga eitthvað, eða borga ekki. Við myndum ekki sleppa undan þessu máli með því að segja nei.

Tryggvi Þór sagði að Icesave-krafan hljóðaði upp á 670-680 milljarða. „Það er talið að þrotabú Landsbankans muni borga 40% af þessari kröfu á þessu ári og 13% á næsta ári o.s.frv. Um 3/4 af því sem þarf að borga á þessu ári er til í beinhörðum peningum.“/////ekki er maður að rengja skoðanir þessara manna personulega állit!!! enn við sem erum á móti þessu og viljum ekki samþykkja samningin erum i meirihluta i flokknum ekki spurning og á að fara a´skjön við það ,það er bara skelfilegt að menn skuli haga sér svona að mínu mati og sennilega meirihluta flokksins,það sem á að þjappa okkur saman sundrar,er Formaðurinn okkar blessaður heldur sig ver að að gera rétt,er það hann mal og leggur hann mikið undir,meir en hann er maður til að mínu álíti,og svig þeir ja´menn hafa sigur hvað svo????Ríkisstjornin sem er að ger allt vitlaust festist i sessi og allt verður vittlaust/Halli gamli


mbl.is 53% af Icesave greiðist í ár og á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar höfðu betur gegn enskum/verðskuldaður sigur þeirra !!!!!

Íslendingar höfðu betur gegn enskum
Íþróttir | mbl.is | 28.3.2011 | 20:47

Alfreð Finnbogason og félagar í íslenska landsliðinu náðu...Ísland gerði sér lítið fyrir og vann England, 2:1, í vináttuleik U21 árs landsliða í knattspyrnu í Preston á Englandi í kvöld, með mörkum frá Arnóri Smárasyni og Hólmari Erni Eyjólfssyni. Nathan Delfouneso skoraði mark Englendinga. Frábær sigur íslenska liðsins í síðasta leik þess fyrir Evrópumótið í Danmörku í sumar.

Í marki Englendinga slapp Delfouneso einn í gegn eftir stungusendingu frá Danny Rose og kom boltanum framhjá Haraldi Björnssyni markverði Íslands. Íslendingar jöfnuðu hinsvegar metin þremur mínútum fyrir lok hálfleiksins. Alfreð Finnbogason besti maður Íslands í leiknum, vann þá boltann á miðjum vellinum og sendi stungusendingu á markaskorarann, Arnór Smárason.

Sigurmarkið kom svo eftir hornspyrnu á 66. mínútu. Hólmar Örn Eyjólfsson stökk hæst allra í teignum og skoraði með skalla í stöngina og inn eftir hornspyrnu frá Arnóri Smárasyni, glæsilegt og staðan því 2:1.//////glæsæsilegt gegn sterkum Bretum því þeir voru og eru það!!en við vorum einfaldlega sterkari nú að skora og þa´gerpi gæfumunninn,þetta er mikið afrek og er fært til bókar og vel það!!!! en ei og ég hefi sagt er það mikið mal að hafa einnig góðan þjálfara það er það sem vantar i Landsliðið okkar  aðal,en kannski þeir sjái það núna ,við eigum þarna fanta gott lið/Halli gamli


mbl.is Íslendingar höfðu betur gegn enskum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verið að grafa undan vægi SÞ/þessu er maður ekki sammála,það er of seinvirkt!!!!

Verið að grafa undan vægi SÞ
Innlent | mbl.is | 28.3.2011 | 17:53

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra tekur undir með Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra og formanni VG, að Vinstri grænir styðji ekki þá ákvörðun að NATO taki við stjórn aðgerða í Líbíu.
Verið sé að grafa undan vægi Sameinuðu þjóðanna með því að nýta „loðnar yfirlýsingar“ Öryggisráðsins til hernaðaraðgerða.

„Í fyrstu virðist hinn fjarlægi veruleiki vera óskaplega einfaldur en þegar betur er að gáð er nú myndin flóknari en svo að það sé hægt að lækna öll mein með hernaðarárás. Ég tel það vera mjög vafasamt að hernaðarbandalagið NATO taki sér þetta vald," sagði Ögmundur við mbl.is.

Hann segir sér ekki hafa verið kunnugt um að fulltrúi Íslands innan NATO myndi samþykkja þá ákvörðun að bandalagið tæki að sér stjórnun aðgerða í Líbíu.

„Ég hef ekki setið neinn fund þar sem þetta var rætt með þessum hætti," segir Ögmundur sem býst við að málið verði rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í fyrramálið.

Utanríkismálanefnd Alþingis hefur verið boðuð til fundar kl. 20:30 í kvöld þar sem málefni Líbíu verða rædd og aðkoma NATO í aðgerðum þar.///enn og aftur eru V.G. að sina bara á móti öllu sem er hernaður sama hvaða hlutverki hann þjónar!!" Ísland úr NATO og herinn burt" kannast einhver við það kommar eru alltaf á.móti nema það þjóni .þeim sjálfum,en þetta er svona og verur ekki stoppað frekar en svo margt annað sem að heiminum snýr sem betur fer að maður má segja verður oft að beita valdi og vopnum til að bjarga mannlífum sem kost þau auðvitað einnig,ef það yrði ekki gert hvað þá,svo kjaftæði i Steingrími Ögmundi og Árna Þór hlutum við ekki á/Halli gamli


mbl.is Verið að grafa undan vægi SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja lækka eldsneytisgjald/ þetta verður að gera !!það mun bara koma meira inn í kassan!!!

Vilja lækka eldsneytisgjald
Innlent | mbl.is | 28.3.2011 | 17:02

Tölurnar á skjám olíufélaganna hafa hækkað stöðugt undanfarna mánuði. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp á Alþingi um að skattar á eldsneyti verði lækkaðir umtalsvert til áramóta.

Leggja þingmennirnir til, að krónutöluskattar á eldsneyti verði lækkaðir tímabundið, um 19,86 krónur á lítra af bensíni og 19,88 krónur á lítra af dísilolíu. Þetta muni leiða beint til hækkunar ráðstöfunartekna, einkaneyslu og hagvaxtar. Þá muni vísitala neysluverðs lækka um 0,8-0,9% sem leiði beint til lækkunar vísitölu neysluverðs sem aftur lækkar höfuðstól verðtryggðra lána heimila og fyrirtækja og afborganir af þeim. 

„Áhrif aðgerðarinnar bein og óbein væru veruleg og mundu leiða til jákvæðra áhrifa á hagvöxt. Framundan er mesti álagstími ferðaiðnaðarins og lækkun eldsneytis mundi virka eins og vítamínsprauta á greinina, hafa jákvæð áhrif á landsbyggðina sem og landið allt og styrkja innviði greinarinnar," segir í greinargerð með frumvarpinu./////Þetta er nauðsin að gera og það sem fyrst ,það mundi skila mikið eiri pening í ríkiskassann ekki spurning svo og að láta dísilinn vera mynnst 10 krónum ódýrari en bensínið það er vegna mynni mengunar,það er svo að þetta gengur einfaldlega ekki upp að allt hækki þegar eldsneyti hækkar,það er svo að lán og allar vörur hækka þessa vegna/Halli gamli


mbl.is Vilja lækka eldsneytisgjald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja ekki lána Orkuveitunni/eftir þvi sem kom fram i fréttum,sagði Jon Gnarr borgasrtjóri það að O.R. væri gjadþrota opinberlaga ,flígur fiskisagðan!!!!

Vilja ekki lána Orkuveitunni
Innlent | mbl.is | 28.3.2011 | 12:30

Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. Norræni fjárfestingarbankinn telur ekki koma til greina að veita Orkuveitu Reykjavíkur lán miðað við núverandi lánshæfismatseinkun fyrirtækisins. Þetta kemur fram í minnisblaði forstjóra OR, sem Útvarpið vitnaði til.

Fram kom að í minnisblaðinu sé fjallað um viðræður stjórnenda fyrirtækisins við erlenda banka, þar á meðal lánardrottna, frá byrjun árs 2010. Þar segir að  helstu lánastofnanir hafi verið tregar til að lána OR og á árinu 2011 hafi komið í ljós að þær lánastofnanir sem hafa verið helstu bakhjarlar OR hafi algerlega tekið fyrir lánveitingar til OR á komandi misserum.////þessi Boragarstjórnanefana er að verða okkur dýrkeyptur mjög!!!!! og þó svo fólkið hans é að bera i bætifláka fyrir hann, er þetta ekki hægt,maðurin er óhæfur og er löngu búin að sína okkur það svart á hvítu,þetta gengur ekki lengur!!!!/Halli gamli


mbl.is Vilja ekki lána Orkuveitunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosið á sjúkrahúsum frá 29. mars/ekki buiðað byrta yfirlysingu beggja "JÁogNEI "hvenær kemur bæklingurin inn um lúguna???

Kosið á sjúkrahúsum frá 29. mars
Innlent | mbl.is | 28.3.2011 | 8:33

Mynd úr myndasafni.Gefnar hafa verið út dag- og tímasetningar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum, sem eru á vegum sýslumannnsins í Reykjavík, vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 9 Apríl.

luKosið verður frá 29. mars til 8. apríl.//////Hverju skiptir þessi bæklingur ef margir kjósa áður en hann kemur út 3-4 Apríl og kosið 9 apríl,er þetta ekki vitavert ,að er ekkert gert þarna nema í því að maður heldur svona á gráu svæði að mans mati!! það heldur áfram og ekki nýtt!! en svo maður tali nú alvarlega um þessi mál er þetta ekki gott liðin skiptast arð segja Nei og Já og það er svona hja´sumum út i hött,bar að losna við málin segja já  menn og þeir eru því miður ennþá kannski i meirihluta,en svo hlutdrægur ég er ekki i vafa um að fólkið sér fyrir rest i gegnum þetta ,við græð'um ekkert á að semja,við eigum ekki að borga og það er nóg að þeir hirði eiggnir Landsbanka og allt að ytra og það og ekkert meira ,þeir fara þá bara i mál og tapa því!!! ekki spurning,fólk á ekki að trúa þessum hræðsluáróðri sem yfir okkur gengur daglega,og við eigum ekki fyrir þessu als ekki,það er svo mikið að borga ein og þið vitið ef þið bara kynnið ykkur það að það fyllir mælirinn alveg/Segjum NEI við Icesave og fellum þetta frumvarp!!!!/Halli gamli P/S Ég verð að taka aftur orð mín um Formann minn og Tryggva að efir hafi byrt þetta i Mogga ,það var gert án þeirra vitundar !!! /sami


mbl.is Kosið á sjúkrahúsum frá 29. mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lendingar er vænst í vikunni/það er ekki að manni finnst ,ef persóuafsláttur hækkar ekki ???

Lendingar er vænst í vikunni
Innlent | Morgunblaðið | 28.3.2011 | 5:30

Margir fundir eru að baki.„Viðræðurnar eru í ágætum farvegi og ég vænti þess að við náum lendingu núna í vikunni,“ segir Vilhjámur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Fulltrúar samtaka vinnumarkaðarins hafa fundað stíft að undanförnu um gerð nýrra kjarasamninga og nú telja menn sig hafa landsýn í málinu.

Ekki ber mikið í milli hvað varðar launaþáttinn en gengið er út frá því að launþegar fái væna eingreiðslu strax auk annarra hækkana á síðari stigum.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að lagt er upp með að kjarasamningarnir gildi frá 15. júní næstkomandi og fram á árið 2014. Náist samkomulag í vikunni yrði það nokkurs konar aðfarasamningur, en gildistaka um miðjan júní er undirorpin því að samkomulag náist við ríkisvaldið um ýmis mál. Ef ekki gildi samningurinn aðeins til hausts.

Þau mál sem deilt er um milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins eru krafa um lækkun tryggingagjalds á fyrirtæki, breytingar á skattakerfinu, átak í atvinnumálum og jöfnun lífeyrisréttinda starfsmanna ríkisins og þeirra sem á almenna markaðnum vinna. Einnig að lausn fáist í mál sem snúa að fiskveiðistjórnun./////númer eitt er að hækka persónuafsláttin um helming fyrr er kki hægt að ganga frá               samningum,það er málið fyrir á sem lægstu launin hafa og þeir eru margir mjög margir ,svo eru atvinna að auka hana  númer tvö svo auðvitað skattar sem eru að drepa fólkið og fyrirtækin,það er ekki bara heldur prósentan sem á að vera heldur krónutalan sem nanni finnst einmitt eigi að gylta svo má  skoða hitt næst/Halli gamli


mbl.is Lendingar er vænst í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með tæpar 23 milljónir í laun/en og aftur há laun sem við ekki skiljum,þetta er ekki til að gera okkur ánægð sem rett lifum þetta af!!!!!

Með tæpar 23 milljónir í laun
Viðskipti | mbl.is | 28.3.2011 | 10:42

Frá vinnslusal SS á Hvolsvelli. Árslaun Steinþórs Skúlasonar, forstjóra SS, námu 22,8 milljónum króna á síðasta ári, 1,9 milljónum króna á mánuði, að því er kemur fram í ársskýrslu fyrirtækisins.

Þá námu árslaun þriggja forstöðumanna megindeilda Sláturfélagsins og Reykjagarðs  43,6 milljónum króna samtals.

Laun Hallfreðs Vilhjálmssonar, stjórnarformanns SS, námu rúmri milljón króna á síðasta ári og  aðrir stjórnarmenn fengu á bilinu 523 þúsund til 591 þúsund krónur.///við hin sem erum búin að þjóna þþessu þjóðfelagi i allan okkur aldur höfum ekki og viljum ekki skilja svona mismuná launum,svo er kjarabarátta hjá öllum og verið að tala um krónur og aura  ,það er vona að það sé ánægja i þessu þjóðfélagi!!!!Halli gamli


mbl.is Með tæpar 23 milljónir í laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tæpar 22 milljónir í árslaun/þetta er svona og kannki ekkert mikið á heimsmælkvarða en okkur sem 10% af þessu í eftirlaun ofbíður!!!

Tæpar 22 milljónir í árslaun
Viðskipti | mbl.is | 28.3.2011 | 10:48

 Árslaun Þórðar Sverrissonar, forstjóra Nýherja, námu tæplega 22 milljónum króna á síðasta ári, eða sem svarar til 1,83 milljónum króna á mánuði.

Fram kemur í ársskýrslu félagsins, að árslaun Kristins Þórs Geirssonar, aðstoðarforstjóra, námu rúmum 15,7 milljónum, árslaun Friðriks Þórs Snorrasonar, framkvæmdastjóra Skyggnis, námu 12 milljónum og laun Henriks R. Möllers, framkvæmdastjóra Applicon, rúmum 28 milljónum króna. 

Laun Benedikts Jóhannssonar, stjórnarformanns, námu 2,55 milljónum á síðasta ári en stjórnarmenn fengu 850 þúsund krónur.///þetta er bara gott að einkageirin borgi góða laun !!!!,en þetta náturulega setur okkur sem höfum bara 10 af þessu við gamlingjar i eftirlaun á ári,það er nú ekki mikið að manni finnst að jafna þetta dálitið er það ekki sanngjarnt/Halli gamli  


mbl.is Tæpar 22 milljónir í árslaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OR kynnir áætlun fljótlega/það má ekki kom hækkur aftur,við erum orðin svo fátæk mörk!!!!

OR kynnir áætlun fljótlega
Innlent | Morgunblaðið | 28.3.2011 | 5:30

Höfuðstöðvar Orkuveitunnar.Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir að áætlun vegna skuldavanda fyrirtækisins sé í vinnslu og verði vonandi kynnt fljótlega. Hann vill þó lítið tjá sig um málið.

„Við erum að vinna að áætlun til þess að leysa vandann, en hún er ekki tilbúin en verður það vonandi sem allra fyrst.“

Aðspurður hvort segja þurfi upp fólki eða hækka gjaldskrár segist Bjarni ekki geta farið út í þá sálma. „Það er ekki hægt að segja til um það fyrr en búið er að klára áætlunina.“/////við vonum bar i lengstu lög að það komi þekki hækkanir á heimilin ,það er ekki fyrir okkur allavega sem mynna höfum og gamlingja að borga meira en i dag,það þykir nóg og vel það,að far að hafa þetta eins og i Evrópusambandinu að fólk deyi heim úrr kulda vegna þessa að það getur ekki kynt, viljum við ekki sjá hér nóg er nu samt/Halli gamli


mbl.is OR kynnir áætlun fljótlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband