Bjarni: Allt of hart gengið að Þorgerði!!!!!!!

Bjarni: Allt of hart gengið að Þorgerði
Innlent | mbl.is | 17.4.2010 | 10:25

Bjarni Benediktsson, formaðu Sjálfstæðisflokksins, ávarpaði...Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að gagnrýni á hendur Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformann flokksins, hafi gengið allt of langt að undanförnu. Þetta koma fram á flokksráðs-, formanna- og frambjóðendafundi Sjálfstæðisflokksins sem fram fer í Stapa í Reykjanesbæ í dag 

Undanfarna daga, eða alveg frá því að rannsóknarnefnd Alþingis kynnti skýrslu sína sl. mánudag, hefur umræða innan Sjálfstæðisflokksins verið um það, hvort ekki sé rétt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður flokksins og þingmaður Suðvesturkjördæmis víki.

Málið varðar lán tengd Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, varaformanni Sjálfstæðisflokksins, nema nærri 1,7 milljörðum króna, eins og staða þeirra var 30. september 2008. Eru öll veruleg lán tengd eiginmanni Þorgerðar, Kristjáni Arasyni, sem þá var framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi. 

Landsfundi verði flýtt

 

Bjarni mun leggja til við miðstjórn flokksins, að næsta landsfundi Sjálfstæðisflokksins verði flýtt eins og kostur sé til þess að marka nýja stefnu í þjóðmálum á grundvelli þeirra hugmynda, sem fram komi hjá grasrótinni í flokknum á næstu mánuðum og í ljósi þeirra alvarlegu veikleika á þjóðfélagsgerð okkar, sem skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis hafi leitt í ljós.

 „Sá landsfundur mun jafnframt gefa flokksmönnum tækifæri til að veita kjörnum forystumönnum Sjálfstæðisflokksins endurnýjað umboð eða kjósa nýtt fólk til þeirra starfa.
 
Slík innri endurnýjun Sjálfstæðisflokksins byggir á því, að allt sé opið, allt sé sagt sem segja þarf, öll gagnrýni komi upp á yfirborðið. Í stuttu máli sagt: að við gerum hreint fyrir okkar dyrum,“ segir Bjarni.

Ræddi ábyrgð Sjálfstæðisflokksins

 

Bjarni ræddi jafnframt hvernig Sjálfstæðisflokkurinn ætli að gera upp sinn hlut í kjölfar birtingu rannsóknarskýrslunnar.

„Við verðum að horfast í augu við þann veruleika að okkur var svo mikið í mun að losa um öll höft í atvinnu- og viðskiptalífi Íslendinga að við gættum þess ekki, að frelsi verður að fylgja aðhald.
 
Við verðum að horfast í augu við þann veruleika, að við trúðum um of á, að markaðurinn leysti sín vandamál sjálfur í stað þess að viðurkenna, að markaðurinn virkar ekki án eftirlits.
 
Við verðum að horfast í augu við þann veruleika að flokkurinn, sem ætlaði að ryðja bákninu burt lét það viðgangast að báknið blés út ár eftir ár.
 
Við verðum að horfast í augu við þann veruleika, að við einkavæddum án þess að við efldum eftirlitsstofnanir samfélagins nægilega mikið til þess að þær gætu fylgt einkavæðingunni eftir.
 
Við verðum að horfast í augu við þann veruleika, að flokkur okkar og forystumenn létu bankana og peningana taka völdin í landinu á þess að veita þeim það pólitíska aðhald, sem þeir þurftu að fá.
 
Við verðum að horfast í augu við þann veruleika, að við hurfum frá stefnumörkun okkar um dreifða eignaraðild þegar við einkavæddum bankana.
 
Við verðum að horfast í augu við þann veruleika, að við hefðum aldrei átt að aðskilja seðlabankann og fjármálaeftirlitið með þeim hætti sem gert var,“ sagði Bjarni.////þarna er maður sammála Bjarna ,það var alltof mikið og hart gegnið gegn Þorgerði,og þessi mótmæli við heimili hennar skömm og ekkert annað,en þetta allt vonandi kemur i ljós og batnandi mönnum er best að lifa ,helda ð það eigi við alla flokka og stjórnmalamenn yfirleitt/Halli gamli


mbl.is Bjarni: Allt of hart gengið að Þorgerði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í ljósi þess að þetta voru bara 1.700 milljónir sem þau hjónin tóku að láni og munu ekki borga til baka, þá var þetta allt of hörð atlaga að þeim.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 17.4.2010 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045689

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband