Verulegur sparnaður hjá borginni/það er gott og eru vinnubrögð Hönnu Birnu !!!!

Verulegur sparnaður hjá borginni
Innlent | mbl.is | 11.6.2010 | 13:03

Ráðhúsið í Reykjavík. Borgaryfirvöld segja að verulegur árangur hafi náðst í sparnaði í innkaupum á vegum aðalsjóðs Reykjavíkurborgar milli áranna 2008 og 2009. Á árinu 2008 hafi verið keyptar vörur og þjónusta fyrir 6.555.000 og hafi sú tala lækkað í 5.648.000 á árinu 2009.
Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Jafnframt hefur orðið veruleg aukning á viðskiptum sem eiga sér stað í gegnum skilgreinda innkaupaferla. Þetta kemur fram í minnisblaði innkaupastjóra Reykjavíkurborgar sem lagt var fram í borgarráði í gær.

Árið 2008 voru birgjar aðalsjóðs rúmlega 7 þúsund talsins og mikið um smærri viðskipti. Innkaup aðalsjóðs árið 2008 sem eru í skilgreindum innkaupaferlum nema um 2,8 milljörðum króna. Árið 2009 voru sambærileg innkaup aðalsjóðs í skilgreindum innkaupaferlum um 3,3 milljarðar króna og birgjar um 5.500 talsins,“ segir í tilkynningu.

 

Haft er eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra að það sé ánægjulegt að sjá þann árangur sem hafi náðst í innkaupamálum.

„Það er ánægjulegt að sjá lækkun kostnaðar á milli ára auk þess sem vel hefur gengið að formgera betur alla innkaupaferla. Markmiðið er að gera innkaup borgarinnar gagnsærri, auka aðgengi birgja að borginni og lækka kostnað vegna innkaupa. Þetta eru góð skref í þá átt og halda verður áfram á sömu braut,“ segir Hanna Birna í tilkynningunni.///////þetta gott fyrir Borgina og vonandi verður gert áfram og það vel,vorum að frétta að Jon Gnarr hefði talað við Hönnu Birnu og boðið henni formannstöðu Borgarsstjórnar kannski vitkast liðið og hefur þarna samvinnu eins og ætti að vera/Halli gamli 


mbl.is Verulegur sparnaður hjá borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband