Hlunnindi hjá OR munu breytast/þessu þarf að breita hjá öllum opinberum stofnunum!!!!

Hlunnindi hjá OR munu breytast
Innlent | mbl.is | 11.6.2010 | 16:40

Orkuveita ReykjavíkurHjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að hlunnindi starfsmanna fyrirtækisins muni verða tekin til skoðunar og þeim breytt. Hann segir að hlunnindi á borð sjö milljón króna bifreið fjármálastjóra OR orki tvímælis og ákveðið hafi verið að taka þau til endurskoðunar.

Að sögn Hjörleifs njóta sex starfsmenm nú svokallaðra fullra hlunninda sem fela meðal annars í sér bifreið til einkaafnota á kostnað OR. Segir hann allan gang á því hvernig bifreiðir sé um að ræða þó hann segi að þær séu allar „í betri kantinum.“ Sjálfur segist hann njóta fullra hlunninda og hafa til umráða Land Cruiser-jeppa.

Auðvitað orkar þetta tvímælis,“ segir Hjörleifur en bendir á að hlunnindin séu hluti af ráðningarsamningi þeirra sem njóta þeirra og því þurfi starfsmenn að sæta skerðingu á umsömdum kjörum. Því þurfi að stíga varlega til jarðar og hafa samráð við starfsfólk og yfirmenn.

„Til skamms tíma voru það ellefu starfsmenn sem nutu fullra hlunninda,“ segir Hjörleifur. Að undanförnu hafi þeim sem hafa bíl til einkanota verið fækkað um fimm. Það sé liður í frekari aðgerðum að ganga enn lengra en í kjölfar umræðunnar sem skapast hefur um bifreið fjármálastjóra OR hafi hann ákvðið að hlunnindin yrðu tekin til endurskoðunar og þeim breytt.

Ekki liggur þó fyrir hvenær málið verði tekið fyrir en fundað verður um það með stjórnarformanni OR þegar ný borgarstjórn Reykjavíkurhefur kosið hann. Hjörleifur leggur þó áherslu á að ákvörðun um endurskoðun hafi verið tekin. Hún hafi þegar verið tilkynnt starfsmönnum OR.///////auðvitað ber að breyta þessu strax og ekkert múður með það,svona samningar tiðkuðust her fyrir kreppu i einkageiranum svo fóru opinberfyrirtækin að ger slíkt hið sama til að halda i góða menn?? en svo er ekki það sem við viljum með peningana okkar alls ekki svona ,er þetta og verður að breytast menn bara fá sín laun og keyra sína eigin bila/Halli gamli



mbl.is Hlunnindi hjá OR munu breytast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045635

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband