Fjármálafyrirtækjalög samþykkt/ganga bara ekki nógu langt,en skref i rétta átt!!!!

Fjármálafyrirtækjalög samþykkt
Innlent | mbl.is | 12.6.2010 | 11:04

Alþingi. Frumvarp til laga um fjármálafyrirtæki var samþykkt á Alþingi rétt í þessu. Voru allar breytingatillögur minnihlutans felldar. Pétur H. Blöndal kallaði frumvarpið hænuskref í rétta átt.

Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, sagði í ræðu sinni við upphaf þingfundar fyrir skemmstu að engan veginn væri nógu langt gengið með frumvarpi til laga sem felur í sér hertar reglur fyrir fjármálafyrirtæki. Stærsti hluti umbóta í umhverfi fjármálafyrirtækja væru eftir. Hann gat þess þó að meirihlutinn hefði komið að nokkru til móts við tillögur minnihlutans og kvað Sjálfstæðismenn myndu greiða atkvæði með frumvarpinu. Hann varaði við að fólk teldi að nóg væri að gerð.

Var frumvarpið samþykkt með breytingartillögum meirihlutans með 49 samhljóða atkvæðum.

Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðisflokki, kallaði frumvarpið eitt hænuskref í rétta átt. Stjórnin hefði enga framtíðarsýn fyrir fyrirtæki og banka, hún sæi hreinlega ekki út vikuna. Sagði hann að farið væri á mis við gullið tækifæri til að gera umbætur á þessu sviði. Hann sagðist þó myndu samþykkja frumvarpið.

Eygló Harðardóttir, Framsóknarflokki, sagði hænuskrefin vera af hinu góða og með frumvarpinu væru nokkur slík tekin. Sagðist hún telja að aðgerðir stjórnarinnar hingað til hafi aðallega beinst að því að endurreisa það fjármálakerfi sem áður var hér á landi. Um þetta sagðist hún hafa efasemdir.

Magnús Orri Schram, Samfylkingu, kallaði frumvarpið gott og mikilvægt skref inn í framtíðina og Lilja Mósesdóttir, Vinstri Grænum, sagði að ekki væri gengið lengra vegna viðvarana OECD um að fara varlega í að aðskilja fjárfestingastarfsemi og viðskiptabankastarfsemi.

Tryggvi Þór Herbertsson, Sjálfstæðisflokki, kallaði frumvarpið bútasaum og kallaði eftir frekari breytingum á því en lýsti ánægju með þær breytingar sem á frumvarpinu hafa orðið í meðförum þingsins.//////þetta er stórt mal og viðarmikið og vonandi að þessu sé ekki lokið og staðið við að halda þarna áfram með þessi mal sem eru mál málana eftir þessa kreppu og Bankafall,það veitir sko ekki af að taka þetta i gegn og þ.að vel,það er svo margt þar  eftir en samt er þetta skef i rétta átt en ekki nærri komið á það sem  við viljum um bankastarfsemi/en það kemur ????/Halli gamli


mbl.is Fjármálafyrirtækjalög samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1045731

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband