Samstaða meðal eigenda OR/vorum við spurðir???,nei það vorum við ekki!!!!

Samstaða meðal eigenda OR
Innlent | mbl.is | 1.7.2010 | 20:01

Orkuveita Reykjavíkur Eigendur Orkuveitu Reykjavíkur samþykktu einróma að stjórnarformaður fyrirtækisins skyldi vera tímabundið í fullu starfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heiðu Kristínu Helgadóttur, aðstoðarmanni Jóns Gnarr borgarstjóra. Heiða sendi tilkynninguna í tilefni spurninga á fundi í borgarráði í dag.
Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur leggur höfuð áherslu á það veganesti sem lagt var fyrir nýja stjórn Orkuveitunnar á eigendafundi síðast liðinn föstudag. Þar kemur meðal annars fram að nýting auðlinda Reykjavíkurborgar skuli fara fram með þrennum hætti.

Í fyrsta lagi skuli auðlindir vera nýttar með þeim hætti að ekki sé gengið á framtíðarmöguleika til nýtingar þeirra. Í öðru lagi skuli allar ákvarðanir um nýtingu auðlinda og öll framkvæmd nýtingar einkennast af ást og virðingu fyrir umhverfinu. Í þriðja lagi er lög rík áhersla á að borgarbúar, sem eru eigendur Orkuveitunnar, njóti öruggrar þjónustu frá traustum aðilum og hafi upplýsingar um störf og stöðu fyrirtækisins.
 í tilkyninguni segir orðrett:
Starf stjórnarformanns Orkuveitunnar felst meðal annars í því að innleiða og tryggja að þessu veganesti eigendanna sé fylgt eftir.  Hlutverk stjórnarformanns OR er skilgreint í lögum um OR, reglugerð um OR, sameignarsamningi eigenda OR og síðast en ekki síst í starfreglum stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.
Hann er í fullu starfi þar sem reglubundin verkefni hans verða fyrirsjáanlega umfangsmeiri á næstunni en áður í sögu fyrirtækisins.

Hann hefur sömu vinnuaðstöðu og fyrirrennarar hans.

Stjórnarformaður OR og öll stjórn fyrirtækisins lýtur valdi eigendafunda fyrirtækisins, sem lögum samkvæmt ákvarða jafnframt þóknun til þeirra.

Þóknun stjórnarformanns í fullu starfi tekur mið af launum sviðsstjóra hjá Reykjavíkurborg án fríðinda. Það þótti eigendum hæfilegt miðað við umfang starfsins og ábyrgð.

Eigendur OR samþykktu einróma að stjórnarformaður skyldi vera tímabundið í fullu starfi. Þeir hafa á engan hátt falið núverandi stjórnarformanni önnur verkefni en hin lögboðnu.“///////hvað er að ske þarna þessi maður settur þarna Haraldur Flosi og á fullum launum sem stjórnarformaður og á að setja allt á annan endann,af honum eru ekki sagðar fallegar sögur,hvort þær eru sannar veit maður ekki en ljótt ef satt er,svo þessi maður einráður að marki taka þetta allt i gegn og svo hækka sennilega rafmagn og hita upp ur öllu valdi ,til að hafa þetta fyrir mjólkurkýr þeirra sem borgin stýra nú og vanta pening fyrir gæluverkefni sín/nei segjum við sem  þetta eigum við báðum bara um að taka bruðlið burt !!!! og það er engin vandi!!!!! ,bara gera það og ekkert annað !!!!,reka þetta svo skynsamlega/Halli gamli 


mbl.is Samstaða meðal eigenda OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það tók ekki Bestaflokkinn langan tíma að uppgötva valdið. EIGENDURNIR ÁKVÁÐU, hljómar dálítið eins og RÍKIÐ ÞAÐ ER ÉG.

Hélt einhver að annars konar pólitík hefði séð dagsins ljós?

Ragnhildur Kolka, 1.7.2010 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband