Íslandsbanki fer að tilmælunum/þetta spor i rétta átt !!!!

Íslandsbanki fer að tilmælunum
Innlent | mbl.is | 1.7.2010 | 12:07

Íslandsbanki Íslandsbanki mun fara að tilmælum Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands við útreikning á bílalánum og kaupleigusamningum. Í kjölfarið verður reiknuð út ný staða slíkra lána og samninga sem gildir þar til Hæstiréttur hefur skorið nánar úr um hvaða vextir skuli gilda á samningunum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.

„og Seðlabanki Íslands gáfu í gær út tilmæli um hvernig fjármálafyrirtæki skuli vaxtareikna lán sem innhalda óskuldbindandi gengistryggingarákvæði þar til mál skýrast endanlega fyrir dómstólum.

Þegar Hæstiréttur kvað upp úrskurð í málum er vörðuðu gengistryggð bílalán þann 16. júní sl. lýsti Íslandsbanki því yfir að bankinn myndi hlíta niðurstöðu dómanna og aðgerða stjórnvalda ef til þeirra kæmi. Ljóst er að bílalán og kaupleigusamningar hjá Íslandsbanka Fjármögnun falla undir tilmæli FME og Seðlabanka og því mun í framhaldinu verða reiknuð út ný staða slíkra lána og samninga sem gildir þar til Hæstiréttur hefur skorið nánar úr um hvaða vextir skuli gilda á samningunum," segir í tilkynningu frá Íslandsbanka.

Íslandsbanki Fjármögnun hefur þegar ákveðið að fresta útsendingu greiðsluseðla vegna bílalána og kaupleigusamninga í erlendum myntum fyrir júlímánuð og hefur ákveðið að sama gildi með gjalddaga fyrir ágústmánuð. Hinsvegar verður ný staða reiknuð á slíkum lánum og mun afborgun þann 1. september næstkomandi miðast við þá stöðu.

Þá hefur tímabundið verið hætt öllum innheimtuaðgerðum vegna gengistryggðra kaupleigusamninga og  bílalána til einstaklinga.

„Enda þótt ekki séu sendir út greiðsluseðlar geta viðskiptamenn greitt inn á lán sín og verður að sjálfsögðu tekið tillit til slíkra innborgana við endurútreikning lánanna. Fjölmörgum spurningum er ósvarað um álitamál sem rísa vegna eigendaskipta, uppgreiðslu og annarra þátta er snerta lán sem hafa að geyma óskuldbindandi gengistryggingarákvæði. Leitast verður við að  leysa úr þeim málum með eins skjótum og skýrum hætti og kostur er," segir í tilkynningu frá Íslandsbanka.

Innan Íslandsbanka er nú verið að fara yfir öll lán í erlendum gjaldmiðlum í því skyni að leggja mat á hvort þau hafi að geyma óskuldbindandi gengistryggingarákvæði. 

„Leiði sú yfirferð í ljós að aðrar tegundir lána en kaupleigusamningar og bílalán til einstaklinga bankans falli undir tilmæli FME og Seðlabanka og/eða aðra niðurstöðu dómstóla verður að sjálfsögðu tekið tillit til greiðslna afborgana og vaxta inn á slík lán við endurútreikning og uppgjör, ef til kemur, og tryggt að viðskiptavinir njóti betri réttar. 

Íslandsbanki vill þakka viðskiptavinum sínum fyrir sýnda þolinmæði undanfarna daga. Jafnframt þykir bankanum miður sú óvissa sem ríkt hefur og þau óþægindi sem málið í heild sinni hefur haft fyrir viðskiptavini," segir ennfremur í tilkynningu frá bankanum.////////þetta er þó spor i retta átt að mínu áliti og gott að ger þetta svona til að byrja með og vonandi gert svo upp þegar og ef dómstólar gera þetta upp,sem hlýtur að vera gert með flýti ef vit er i þessu en ekki geymt til haustsins ,það  eiga aðrir bankar að gera þetta einnig til að byrja með uppgjör fer svo fram að loknum dómi,, en það þarf einnig að gera þetta við hina sem skulda innlend vertryggð lán/Halli gamli 


mbl.is Íslandsbanki fer að tilmælunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Þarna er ég sammála þér Halli Kveðja.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 1.7.2010 kl. 13:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1045786

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband