Vopn sem nýta skal í Icesave-baráttunni/en Steingrímur vill borga,og fleiri þarna i ríkisstjórn !!!!

Vopn sem nýta skal í Icesave-baráttunni
Innlent | Morgunblaðið | 26.8.2010 | 10:30

Frá umræðum á Alþingi um Icesave-samningana. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að það hafi aldrei nokkur maður haldið því fram að ríkið beri ábyrgð á Tryg fyrradag var viðskiptanefnd kynnt minnisblað Áslaugar Árnadóttur lögfræðings, sem er fyrrverandi stjórnarformaður sjóðsins, þar sem m.a. kemur fram að ríkið beri enga ábyrgð á sjóðnum samkvæmt íslenskum lögum.

Steingrímur segir Icesave-deiluna aldrei hafa snúist um þetta lagalega álitamál. „Þetta mál hefur aldrei snúist um það og aldrei verið rekið á þeim forsendum. Ég lít þó auðvitað á þetta eins og öll önnur gögn. Sú meginniðurstaða hefur þó lengið legið fyrir,“ segir Steingrímur sem kveður álitið breyta litlu í Icesave-málinu.

Lilja Mósesdóttir sagði í Morgunblaðinu í gær að túlka mætti álitið á þann hátt að andstæðingar Icesave-samningsins, sem gerður var á síðasta ári, hefðu haft rétt fyrir sér.

„Ég myndi nú ekki treysta mér til að setja mig í það dómarasæti að einhverjir tilteknir hafi haft rétt fyrir sér og aðrir rangt fyrir sér í flóknu máli af þessu tagi. Þannig orðalag mundi ég nú aldrei nota. Menn hafa mismunandi sjónarmið og leggja mismunandi mat á þessa hluti og færa einhver rök fyrir því eins og gengur en það er nú nálgun í þessu máli sem ég kann illa við að sýna fram á að eitt sjónarmið sé rétt og annað rangt. Við skulum spyrja að leikslokum,“ segir Steingrímur.

 

Ekkert lagalegt gildi

Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, kveður nefndina alltaf hafa haldið því fram að ríkið beri enga ábyrgð á sjóðnum og segir nefndina hafa mörg lögfræðiálit þess efnis undir höndum. „Það er alveg klárt að það er engin lagaleg skylda að tryggja innstæður en það eru fullyrðingar stjórnvalda að þau muni gera það með líkum hætti og Geir H. Haarde gaf á sínum tíma. Svo geta menn deilt um hið lagalega gildi slíkra yfirlýsinga,“ segir Guðbjartur en í minnisblaðinu kemur afdráttarlaust fram að yfirlýsing ríkisstjórnarinnar hefur ekkert lagalegt gildi og er þannig einungis yfirlýsing um vilja hennar.

 

„Þessi fullyrðing hefur vakað yfir allan tímann en þjóðin hefur trúað þessu og fékk innstæðurnar greiddar, þ.e.a.s. allir sem áttu innstæður í íslensku bönkunum á Íslandi fengu innstæðurnar greiddar. Eini hópurinn sem skilinn var eftir eru þeir sem voru ekki í útibúum í Neskaupstað heldur í útibúum í London og Hollandi. Við skulum þannig nýta okkur öll þau vopn sem okkur berast í því að berjast gegn því að greiða Icesave en það er ljóst að við þurfum einhvern tímann að ljúka þessu máli.“

Minnisblaðið
» Viðskiptanefnd var kynnt minnisblað þess efnis að ríkið bæri enga ábyrgð á Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta.
» Fjármálaráðherra segir niðurstöðu minnisblaðsins engar fréttir.
» Formaður fjárlaganefndar segir að nýta megi minnisblaðið sem vopn í baráttunni gegn greiðslu á Icesave.gingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta.//////þetta er ekki heilbrigt hjá Steingrími og c/o að halda að vi verum að borga þetta ,bara alls ekki heldur láta þetta fara i dóm ekki spurning okkur ber ekki að borga skuldir óreiðumanna,og það gerum við bara ekki,svo eimfalt er þetta og menn eru almennt komnir á þá skoðun ,ekki bara eitthver fjöldi heldur margfaldur meirihluti/við eigum ekki að setja okkur endanlega á Hausinn með þesssum aðgerðu mað borga þetta þegjandiog mögglunarlaust,eins og Steingrímur og c/o vill/Halli gamli


mbl.is Vopn sem nýta skal í Icesave-baráttunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband