Hanna Birna: Íbúar geta ekki tekið meira á sig/en það þarf smá hækkun ekki meira,þetta eru erlend lán og þau hljóta að lækka,er það ekki???

Hanna Birna: Íbúar geta ekki tekið meira á sig
Innlent | mbl.is | 26.8.2010 | 10:38

Hanna Birna Kristjánsdóttir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir að íbúar borgarinnar geti einfaldlega ekki bætt við sig þeim tugþúsunda útgjöldum sem það þýðir fyrir meðalfjölskyldu í Reykjavík að hækka á einu bretti gjaldskrár Orkuveitunnar um tugi prósentna.
grein sem Hanna Birna ritar í Morgunblaðið í dag segir hún að  stefna borgarstjórnar hafi verið skýr varðandi Orkuveitu Reykjavíkur. Hún hafi falist í því að leysa skammtímavanda fyrirtækisins með umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum, en hófstilltum og sanngjörnum gjaldskrárhækkunum sem dreift yrði á næstu 3 - 5 ár. 

„ Af samtölum við lánveitendur Orkuveitunnar vissu bæði stjórnendur fyrirtækisins og Reykjavíkur að slík áætlun fullnægði óskum þeirra og þeir hefðu skilning á þeirri afstöðu eigenda að íbúar gætu ekki einir og sér tekið að sér að leysa skammtímavanda fyrirtækisins með hækkun um tugi prósentna sem öll tæki gildi á sama tíma.  

 Jafnframt var öllum ljóst að langtímavandi fyrirtækisins yrði leystur með því einu að eigendur komi sér saman um að minnka efnahagsreikning Orkuveitunnar og þar með draga úr umsvifum fyrirtækisins.  Að reyna að teja íbúum nú trú um það að lausnin felist í einhliða hækkun um tugi prósentna er því ekki aðeins ósanngjörn gagnvart íbúum vegna þess hvaða áhrif það hefur á þeirra fjárhag heldur einnig vegna þess að þeir eiga skilið varanlegri lausnir af hálfu kjörinna fulltrúa."

Hanna Birna hvetur núverandi meirihluta til að hraða vinnu sinni, vanda til verka og horfast strax í augu við það að íbúar geta einfaldlega ekki bætt við sig þeim tugþúsunda útgjöldum sem það þýðir fyrir meðalfjölskyldu í Reykjavík að hækka á einu bretti gjaldskrár Orkuveitunnar um tugi prósentna.

„Þeir geta heldur ekki bætt í heimilisbókhaldið tugþúsundahækkun vegna hækkana á öðrum gjaldskrám, svo ekki sé nú talað um hækkun skatta."/////þetta er rétt hjá Hönnu Birnu þarna verður að spara og gera breytingar að miklu leiti,og svo hækka bara litið og það i 2 áföngunum,það ber að taka þarna til og vel það,lækka þessi ofurlaun og fækka mannskap ekki spurning setaklaga i hærri stöðum og það vel,ekki stoppa að vinna rafmagsnsfraleiðslu,það er málið þetta kemur að við fáum lán/en númer eitt er að Borgarfulltrúar starfi þarna saman en ekki sundur,að þessum malum eins og Hanna Birna vill,og það mun svo skila árangri er það ekki i!!!,en ekki að vera eylíft að rífast um hverjum er að kenna að svon fór"!!!!/Halli gamli


mbl.is Hanna Birna: Íbúar geta ekki tekið meira á sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 1045696

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband