Farþegum tilkynnt að vélin væri að hrapa/svona gera flugfélög ekki,þetta verður að lækna algjörlega!!!!

Farþegum tilkynnt að vélin væri að hrapa
Veröld/Fólk | mbl.is | 27.8.2010 | 10:14

Boeing 747 flugvélar frá British Airways. Skelfingu lostnir farþegar í flugvél, sem var á leið frá Lundúnum til Hong Kong, bjuggu sig undir brotlendingu eftir að flugstjóri vélarinnar tilkynnti í hátalarakerfið að neyðarástand ríkti um borð og vélin væri um það bil að lenda á sjónum.

Að sögn breska blaðsins Sun í dag heyrðu 275 farþegar í Boeing 747 flugvél British Airways eftirfarandi tilkynningu. „Það er neyðarástand. Við kunnum innan skamms að þurfa að nauðlenda á sjó." 

Flugvélin var yfir Norðursjónum og farþegar byrjuðu að búa sig undir það versta þar til flugfreyjur komu hlaupandi eftir flugvélarganginum og hrópuðu að tilkynningin hefði verið lesin fyrir mistök.  

British Airways sagði, að um væri að ræða sjálfvirka tilkynningu á segulbandi, sem tölva hefði sett af stað. /////svona hélt maður að ekki gæti gerst !!!!,manni fallast hendur við svona og það er 2010 að þetta getir gerst er ekki i lagi, þetta atvik hlýtur að verða það fyrsta og síðasta ekki hægt að gera fólki þetta ,gæti orsakað hjartaáfall og svo eftirköst sem eru hættuleg mjög/Vonandi að þetta verði gert að alvöru viðvörun/Halli gamli


mbl.is Farþegum tilkynnt að vélin væri að hrapa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

"Eigum við ekki bara vera þakklát fyrir að þetta var ekki sjálvirk tilkynning um að Rússar hefðu skotið öllum kjarnorkurakettum sem þeir ættu, á USA?"

Sjálfsagt til fullt af svona undarlegum tilkynningum á segulbandspólum um allan heim sem gæti skapað slysaleg viðbrögð...

Óskar Arnórsson, 27.8.2010 kl. 14:33

2 Smámynd: Erna Hákonardóttir Pomrenke

óskemmtilegt að lenda í svona

Erna Hákonardóttir Pomrenke, 27.8.2010 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045812

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband