Krefjast úrbóta í vegamálum/gleymdu Vestfyrðirnir,er það viljandi ???,bara göng í umdæmi ráðherra!!!!

Krefjast úrbóta í vegamálum
Innlent | mbl.is | 27.8.2010 | 15:09

VestfirðirBæjarstjórn Vesturbyggðar skorar í ályktun á ríkisstjórn Íslands og þingmenn kjördæmisins að tryggja fjármagn til vegamála á sunnanverðum Vestfjörðum. Óásættanlegt sé að ríkið krefjist frekari samvinnu sveitarfélaga á Vestfjörðum þegar svæðið væri einangrað vegn

Eftirfarandi er ályktunin sem samþykkt var í gær:

 

„Bættar samgöngur eru nauðsynlegar forsendur fyrir hagkvæmt atvinnulíf og viðunandi afkomu heimila og fyrirtækja. Víða um landið hafa orðið miklar vegabætur síðustu ár, en betur má ef duga skal.

 

Á sunnanverðum Vestfjörðum er staðan sú að úrbætur í samgöngumálum hafa ekki þróast eins og í öðrum landshlutum. Vegurinn um Barðastrandasýslu er í hörmulegu ástandi og öryggi vegfarenda fyrir borð borið. Áætluðum vegabótum á þeirri leið hefur síendurtekið verið slegið á frest vegna tafa og kærumála og samfélaginu þannig haldið í gíslingu vegna úrræðaleysis stjórnvalda.

 

Leiðin um Dynjandis-og Hrafnseyrarheiðar eru lokaðar stóran hluta ársins vegna snjóa og nú í sumar hefur ástand þeirra vega farið snarversnandi og vart bjóðandi hvorki íbúum né ferðamönnum í siðmenntuðu þjóðfélagi á 21.

öld, ekki síst í ljósi þeirra staðreynda að lögð hefur verið aukin áhersla á uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu. Sú atvinnugrein nær engan veginn að verða sá vaxtarbroddur sem mögulegt er við núverandi ástand samgangna á svæðinu.

 

Í því ljósi gerir bæjarstjórn Vesturbyggðar kröfu til þess að við endurskoðun Samgönguáætlunar verði fullt tillit tekið til þessara staðreynda. Það er algjörlega óásættanlegt að ríkisvaldið ætlist til frekara samstarfs milli sveitarfélaganna á Vestfjörðum á meðan sunnanverðir Vestfirðir eru einangraðir vegna takmarkaðra samgangna. Slíku samstarfi verður ekki komið á miðað við núverandi aðstæður í vegakerfinu.

 

Bæjarstjórn Vesturbyggðar krefst þess að ríkisstjórn Íslands og þingmenn Norðvesturkjördæmis tryggi strax fjármagn til viðhalds og nýframkvæmda á svæðinu."a takmarkaðra samgangna/////það væri hægt að skrifa heila bók um vegamal a vestfjörð'um hver hefur ekki ekið þessa vegi eða vegleysur og gefið því komast sem ekki er hægt jafnvel að hafa eftir,meir að segja Forseti vor sagði um árið að þetta væri ekki, vegur heldur vegleysa,og fékk bátt fyrir!!! en svona i alvöru er þetta ekki hægt lengur,Þarna sjá allir!!!! en ekkert er gert,og málið er látið dunka,Ráðherra vegamála gerir bara það sem hægt er fyrir sitt kjördæmi ein og hann getur,segist gera svo jafnt fyrir alla,það er ekki satt þarna eru vegir oft mjög illa farnir jafnvel ofærir löngum og ekki gert neitt i því/en það er mál að linni,nú þegar peningar lifeyrissjóðanna eru tilkomnir i þessa aðgerð,!!! er það ekki betra en kaupa fyrirtæki sem eru á´haustunum/það er komin tími til að vakan þarna!!!/Halli gamli


mbl.is Krefjast úrbóta í vegamálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Sæll halli minn, það er skelfilegt að þarna sé vegakerfið eins og það er.

En Kristján möller kemur frá Sigló en Siglufjörður er ekki leingur í þessu kjördæmi heldur þar sem akureyri og eigilsstaðir eru:)

Brynjar Þór Guðmundsson, 27.8.2010 kl. 16:23

2 Smámynd: Sigurður Jón Hreinsson

Það er merkilegt að fólk þurfi að borga fulla skatta þegar það býr við þessa þjónustu!  Reyndar er rétt að mynna á það að Vestfirðingar eiga inni ein göng sem talin voru forsenda einnar sameiningar sveitarfélaga.  Þau göng áttu að vera tilbúin árið 2000.

Brynjar, þú misskilur Halla.  Ráðherra hugsar fyrst og fremst um sitt kjördæmi.  Þau göng sem eru inn á vegaáætlun, eru Vaðlaheiðargöng og Norðfjarðargöng, bæði í kjördæmi ráðherra.

Ef ekki væri fyrir kröftug mótmæli, hefðu Dýrafjarðargöng ekki verið nefnd í umræddri áætlun.

Sigurður Jón Hreinsson, 27.8.2010 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1045742

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband