Hornsteinn lagður að nýbyggingu HR/ þetta var mikið umdeilt á sýnum tíma,er staðreind í dag!!!

Hornsteinn lagður að nýbyggingu HR
Innlent | mbl.is | 11.11.2010 | 17:48

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands flutti ávarp við... Háskólinn í Reykjavík hefur nú flutt alla starfsemi sína undir eitt þak að Menntavegi 1 í Nauthólsvík og var nýbyggingin vígð og hornsteinn lagður að henni nú síðdegis.

Hornsteinninn, sem er 5 kílóa loftsteinn sem lenti á jörðinni fyrir 4.000 árum, var lagður af menntamálaráðherra og formanni studentafélagi H.R. samkvæmt tilkynningu.

Rétt rúm 3 ár eru síðan fyrsta skóflustungan var tekin að byggingu HR í Nauthólsvík. Nú þremur árum síðan stunda 3.000 nemendur nám í skólanum og við hann starfa um 270 manns.

Vill sjá kirsuberjatré í Öskjuhlíðinni

Jón Gnarr borgarstjóri flutti ávarp þar sem hann lýsti mikilli persónulegri ánægju með að risinn væri háskóli í Öskjuhlíðinni. Hann kynnti ennfremur fyrirhugað samstarf Reykjavíkurborgar, HR og Skógræktarfélags Íslands um uppbyggingu Öskjuhlíðarinnar.

„Við ætlum að taka höndum saman um að byggja upp aðstöðu til almennrar útiveru, samveru og almenningsíþrótta. Við munum heldur ekki gleyma gróðrinum. Ég hef sjálfur brennandi áhuga á hvers kyns gróðurrækt og vil sjá hér blómstrandi rósir, berjarunna og kirsuberjatré í Öskjuhlíðinni. Og fullt af „allskonar“ glöðum borgurum.”

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, lýsti sérstakri ánægju sinni með vilja Reykjavíkurborgar til samstarfs. Hann segir það alla tíð hafa verið markmið stjórnenda HR að hlúa að og rækta umhverfi skólans í Nauthólsvík.

„Það umhverfi sem við höfum hér í Nauthólsvíkinni, við rætur Öskjuhlíðar, er einstakt. Það er einlægur vilji okkar og markmið að bygging HR verði viðbót við svæðið sem styður við það og eykur við tækifæri fólks til að njóta þess. Í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg og Skógræktarfélag Íslands höfum við nú tækifæri til að gera Öskjuhlíðina að einstakri útivistarperlu, landsmönnum öllum til gleði og ánægju,“ er haft eftir Ara Kristni í tilkynningu.  ///maður verður að óska þeim  til hamingju ekki spurning .þó svo þessi staðsetning hafi verið mjög svo umdeild á sinum tíma !! en svona for og það bara gott að hafa menntasetur á góðum stað sem hæfir því,og vonandi að það verði svo i framtíðinni, En þessir háskólar eru að verða of margir og það ber að sameina eitthvað af þeim ekki spurning,við berum þetta ekki þessi litla þjóð als ekki,en það er gott að fólkið læri sem mest og við í leiðinni komum því til vinnu við lærdómi ekki bara til að flytja fólkið út fyrir aðra til að njóta góðs af,það er málið einnig,svo um umhverfið það er gott ef það yrði gert af góðu fyrr sem flesta og við getum eftir sem áður átt þarna goðar stundir i Öskjuhliðina,þaðan hefur maður góðar myningar !!!/Halli gamli


mbl.is Hornsteinn lagður að nýbyggingu HR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 1045632

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband