Fullkomin þyrla í heimsókn/svona Þyrlu þurfum við ekki spurning!!!!!

Fullkomin þyrla í heimsókn
Innlent | mbl.is | 22.11.2010 | 14:52

Danski herinn lét útbúa EH101 þyrlurnar sérstaklega fyrir...Agusta Westland EH101, þyrla danska flughersins, er væntanleg í heimsókn til Landhelgisgæslunnar á morgun. Hún er talin vera ein fullkomnasta þyrlan sem nú er í notkun á Norður-Atlantshafi, að sögn Landhelgisgæslunnar.
Þyrlan er á æfingaferðalagi dönsku þyrluflugdeildarinnar  ESK722
sem hófst þann 15. nóvember í Norður-Noregi. Leiðangurinn ber vinnuheitið NAVINORD (Long-Range Navigation Exercise) og hefur áhöfn þyrlunnar verið við æfingar ásamt samstarfsaðilum nágrannaþjóðanna.

Næstkomandi miðvikudag er áætluð æfing með stjórnstöð, flugdeild og varðskipi Landhelgisgæslunnar á Faxaflóa. Að æfingu lokinni heldur þyrlan EH101 áfram för sinni en æfingaferðinni lýkur á Grænlandi þann 26. nóvember.

Fyrsta þyrlan af tegundinni EH101 var afhent danska flughernum árið 2005. Er tegundin afar öflug  og nútímaleg, búin ýmsum búnaði o.s.frv. sem margur hver hefur ekki verið til staðar í eldri tegundum af björgunarþyrlum.

Danski flugherinn á 14 þyrlur sömu tegundar, 8 þeirra eru notaðar við
leitar- og björgunarstörf en sex þyrlur eru notaðar m.a. til flutninga á
starfsmönnum danska hersins.  Þessar tvær útgáfur eru eins í grunninn en innréttingar og tæknilegar útfærslur ólíkar.

Björgunarþyrlurnar sem notaðar eru til leitar- og björgunarverkefna á sjó og landi, eru útbúnar sem fljúgandi bráðamóttökur. Eru þær, eins og Landhelgisgæslan með lækni í áhöfn sem tryggir sjúklingum aðstoð eins fljótt og mögulegt er.

Þyrlan Agusta Westland  EH101 er um 20 metrar að lengd  og getur borið allt að 15.600 kg. Til samanburðar má nefna að Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar er um 16 metrar að lengd og getur borið allt að 8.600 kg. Þyrlan EH101 er búin þremur mótorum sem hefur mikil áhrif á hversu hátt þyrlan getur flogið, sem og snerpu hennar.

Getur hún auk þess flogið í ísingu eins og þyrlur Landhelgisgæslunnar. Þyrla danska flughersins er búin rampi að aftan sem auðveldar göngu til og frá borði, bæði þegar um að ræða sjúklinga á börum og fjölda farþega,“ segir m.a. í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.////svona þyrlu þurfum við við þessar aðstæður her,ekki spurning um það,einnig langflug og burðarþol svo mikið,við eigum ekki að spara þarna Mannslífin er dýr og við viljum bjarga þeim kvað sem  það kostar er það ekki??svona 2 þyrlur með hinni kæmu okkur í þann standast sem við þurfum á að halda til sjós og lands sem er erfitt yfirferðar eins og veðurfarlega,það er málið en ekki snobb og strípur,!!!/Halli gamli


mbl.is Fullkomin þyrla í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Tvær þyrlur og enga Hörpu ekki flókið er það nokkuð?

Sigurður Haraldsson, 22.11.2010 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband