Ekki um fyrirfram aðlögun að ræða/trúm við þessu,vonandi rétt samt???

Ekki um fyrirfram aðlögun að ræða
Innlent | mbl.is | 22.11.2010 | 15:50

Steingrímur J. Sigfússon. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði á Alþingi í dag að stjórnvöld teldu sig hafa fullvissu um að ekki þurfi að vera um að ræða fyrirfram aðlögun Íslendinga að Evrópusambandinu

Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Steingrím um niðurstöður flokksráðsfundar Vinstri grænna um helgina. Sagði Bjarni, að einn stjórnarliða, sem sat fundinn, hefði túlkað niðurstöðu fundarins þannig, að hún kallaði á nýja nálgun í öllu viðræðuferlinu við Evrópusambandið.

Þá spurði Bjarni hvort það væri undir því komið hvor stjórnarflokkurinn stýrði einstökum ráðuneytum,  hvort viðkomandi ráðuneyti taki við svonefndum IPA styrkjum frá ESB, sem ætlað væri að undirbúa stjórnsýsluna hér á landi undir ESB-aðild.

Steingrímur sagði, að það væri  Íslendingum algerlega í sjálfs vald sett hvort og þá hvenær og hvernig tekið væri við umræddum styrkjum og til hvaða verkefna. 

Bjarni sagði, að Evrópusambandið gengi út frá því, að umsóknarríki hefðu áhuga á að komast í sambandið og ekki væri gert ráð fyrir því fyrirkomulagi, sem íslenska ríkisstjórnin byði upp á, að að menn sækist eftir aðild án þess að neitt sé með því meint, eins og skýrt komi fram í ályktunum flokksráðsfundar VG.

Steingrímur sagði, að þótt ESB gangi út frá því að umsóknarríki vilji komast í sambandið geri það sér væntanlega grein fyrir því að það sé háð þeim samningum, sem nást um aðild. 

Þá vísaði til þess, að norsk minnihlutastjórn hefði á sínum tíma sótt um aðild að Evrópusambandinu og það án þess að samstaða væri um umsóknina innan stjórnarflokkanna.//Hvernig sem málið er finnst manni að þegar sótt er um inngöngu að það sé vilji til að ganga inn,en svona er svarið hjá Steingrími Norðmenn gerðu þetta í minnihluta en svo afgreitt í atkvæðagreiðslu ,en þar hefur það verið skírt tekið fram að þjóðaratkvæðagreiðslan yrði marktæk,en her höfum við ekki vissu fyrir því eftir því sem Jóhanna segir!!! svo við erum ekki bjartsýn því miður/Halli gamli


mbl.is Ekki um fyrirfram aðlögun að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045660

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband