Goðafoss strandaði við Noreg/gott að allt er í lagi með skipsverja !!!!!!

Goðafoss strandaði við Noreg
Innlent | mbl.is | 17.2.2011 | 20:57

 Goðafoss á siglingu. Goðafoss, gámaskip Eimskips, strandaði í kvöld við Hvaleyjar í Østfold suður af Ósló í Noregi. Benedikt Elísson, forstöðumaður trygginga- og tjónamála hjá Eimskip, segir að sléttur sjór sé og engin hætta á ferðum. Engin slys hafi orðið á fólki en lítill olíuleki hafi komið að skipinu.

Norska strandgæslan segir, að olía leki úr skipinu en ekki sé vitað hve lekinn er mikill.  Fjórtán manns eru um borð í Goðafossi en enginn hefur verið fluttur frá borði. Hafnsögumaður var nýfarinn frá borði þegar skipið strandaði. 

Dagbladet hefur eftir sjónarvotti, Ragnar Bjørck, sem býr skammt frá strandstaðnum, að hann hafi heyrt hávaða þegar skipið tók niðri.  Hann segist ekki sjá neina olíubrák á sjónum en leki olía úr skipinu kunni það að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir lífríkið í Óslófirði.

Skipið var á leið frá Fredrikstad til Helsingborg í Svíþjóð þegar það strandaði. Hvaleyjar, eða Hvaler, var sögusvið samnefndra sjónvarpsþátta sem sýndir voru nýlega í Sjónvarpinu.///Númer eitt er að allir eru heilir og engin hætta!! það gleður okkur öll,við erum sem betur fer ekki að fa´svona fréttir oft og það berað fara varlega með þær ,en við gleðjumst með fólkinu þeirra og þeim sjalfum,með von um að allt fari vel!!!/Halli gamli  


mbl.is Goðafoss strandaði við Noreg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

þetta er hverju orði sannara Halli minn. Mannslífin verða aldrei metin til fjár. M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.2.2011 kl. 21:39

2 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Það er auðvitað fyrir mestu Haraldur ! að mannskapurinn er heill á húfi, vonum einnig að ekki leki mikið úr skipinu, þetta er nefnilega þjóðgarður þarna kring um "Hvaler" eyjarnar, mikil náttúruperla.

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 17.2.2011 kl. 21:41

3 identicon

Ætli hafi verið kannað, hvort skipstjórinn hafi verið drukkinn eða á lyfjum? Kínverskt flutningaskip strandaði á svipuðum slóðum fyrir 2 árum og olli miklum skaða.

Steini (IP-tala skráð) 17.2.2011 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 13
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 1045777

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband