Fylgishrun hjá Besta flokknum/hefði samt haldið að það yrði meira!!!!!!!!!!!!!!!!

Fylgishrun hjá Besta flokknum
Innlent | mbl.is | 2.4.2011 | 18:16

Meirihlutinn er fallinn miðað við niðurstöður Gallups. Besti flokkurinn nýtur 19% fylgis. Ef kosið væri nú fengi flokkurinn helmingi færri borgarfulltrúa en hann fékk í sveitastjórnarkosningunum á síðasta ári, að því er fram kemur í nýrri Gallupkönnun. Greint var frá þessu í kvöldfréttum RÚV.

Besti flokkurinn hlaut 35% fylgi í kosningunum og er því óhætt að tala um fylgishrun.

Þá segir að fylgi Samfylkingarinnar hafi aukist um tvö prósentustig frá kosningunum og er nú 21%. Þetta þýði að meirihlutinn haldi ekki velli. Hvor flokkur fengi þrjá fulltrúa, en Besti flokkurinn fékk sex fulltrúa eftir síðustu kosningar.

Þá segir að bæði Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn sæki í sig veðrið. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hafi aukist um fimm prósentustig og mælist nú 40%. Flokkurinn fái því sjö menn inn í borgarstjórn og muni litlu að hann nái hreinum meirihluta.

VG er með 13% fylgi nú en var með 7% í kosningunum í fyrravor.

Könnunin, sem var netkönnun, var gerð dagana 28 febrúar til 31. mars. Í úrtakinu voru 1.800 Reykvíkingar en svarhlutfallið var rúm 60 prósent./////maður er samt hissa á  að þetta skuli ekki vera meir tap,og það hlytur að verða meira engin spurning um það!! en svona er komið fyrir þessu framboði en var að lesa eftir ein þeirra þarna i Besta að þetta væri bara um stund á meðan tekið væri á málunum sem yrði að gera en þetta mundi breytast??? eru þetta ekki dæmigerð orð þeirra blessaðra sem eru að koma Borginni á skallann algjörlega/Halli gamli


mbl.is Fylgishrun hjá Besta flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045689

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband