Jörð skelfur við Kötlu/engin óskar þess,en svo er þetta,og við verðum við öllu búinn !!!!

Jörð skelfur við Kötlu
Innlent | mbl.is | 6.9.2011 | 14:48
Mýrdalsjökull. Katla er í baksýn. Jörð hefur skolfið í kringum Kötlu undanfarna daga og virðist lítið lát á skjálftavirkni. Ein skjálftahrinan reið yfir nú í hádeginu og stóð í um hálftíma. Skjálftarnir eru þó flestir litlir að sögn Hjörleifs Sveinbjörnssonar, jarðfræðings hjá Veðurstofunni.
og voru um 20 mínútur frá síðasta skjálfta þegar mbl.is ræddi við hann.

Hann segir Kötlu óútreiknanlega þegar kemur að því að spá fyrir um gos en skjálftavirkni hafi aukist gríðarlega eftir hlaupið í Múlakvísl í sumar. Í ár hafi mælst um 800 skjálftar á móti 300 yfir allt síðasta ár. Meiri virkni sé nú innan öskjunnar en alla jafna. Það þurfi þó ekki að þýða að það fari að gjósa.

Sé virknin nú borin saman við hlaup í Múlakvísl árið 1955 þá hafi virknin á þeim tíma verið vegna kvikuinnskots sem hafi valdið meiri jarðhita, brætt af sér ís og valdið hlaupinu. Þá hafi Katla ekki gosið. Innskot gæti verið að valda þessum breytingum nú en það sé þó erfitt að segja nákvæmlega hvað sé að gerast.

Hjörleifur segir vel fylgst með Kötlu og búið sé að koma fyrir fleiri skjálftamælum og búnaði til að fylgjast með á svæðinu. Aukin skjálftavirkni þurfi ekki að vera ávísun á eldgos, þar þurfi fleiri breytur að spila saman.

AP-fréttastofan hefur eftir Páli Einarssyni við Háskóla Íslands að vel sé fylgst með Kötlu, þar sem hún sé það eldfjall sem fólk óttist helst. Hins vegar sé eðlilegt að skjálftavirkni mælist við Kötlu. Það sé þó óvenjulegt að sjá hrinur smærri jarðskjálfta með allt niður í tíu mínútna millibili.
//þetta er náturlega há alvarlegt mál að eiga þetta yfir höfði sér ,hvenær sem það verður,og það er svo að manni hrís hugur við slíku gosi sem hefur slæma sögu,við bara óskum þessa að að það verði ekki á næstunni nóg er samt!!!!/Halli gamli


mbl.is Jörð skelfur við Kötlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

það hefur aukist leiðni í Múlakvísl núnna þegar leið á daginn,við erum í vondum málum hér út í Eyjum ef Katla fer á stað, mér eldri menn (ég fæddur í stríðs byrjun)segja  að það sé skamt í Kötlu gömlu.þeir segja að það sé margt í nátturinni sem bendir til þess...

Vilhjálmur Stefánsson, 6.9.2011 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045814

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband