Heimilt að fjölga aðstoðarmönnum /hvað er í gangi þarna,er allt orðið brjálað????

Heimilt að fjölga aðstoðarmönnum
Innlent | mbl.is | 6.9.2011 | 17:25
Hver ráðherra getur í dag ráðið sér einn aðstoðarmann. Meirihluti allsherjarnefndar leggur til í breytingartillögum við stjórnarráðsfrumvarpið að ráðherrum verði heimilt að hafa tvo aðstoðarmenn og jafnframt verði heimilt samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar að ráða þrjá til viðbótar ef þörf krefur.

Í nefndaráliti meirihluta nefndarinnar kemur fram að ákvæði frumvarpsins um aðstoðarmenn og ráðgjafa ráðherra séu ekki fullnægjandi. Telur meirihlutinn brýnt „að skapað verði aukið svigrúm fyrir ráðherra til að ráða til sín pólitíska aðstoðarmenn þannig að þeir fái með eðlilegum hætti sinnt pólitískri stefnumótun innan ráðuneyta sinna,“ segir í nefndarálitinu.

Í rökstuðningi meirihluta nefndarinnar með tillögu um breytingu á fjölda aðstoðarmanna sem að með þessu móti megi tryggja eðlilega skiptingu á fjölda aðstoðarmanna m.a. með hliðsjón af stærð ráðuneyta og fjölda málaflokka sem undir þau heyra.

„Þá verður auk þess unnt að bregðast við auknu álagi í einstökum ráðuneytum með því að nýta þessa heimild. Meiri hlutinn leggur til að hið nýja aðstoðarmannakerfi komist til framkvæmda þegar við gildistöku laganna enda brýnt nú sem fyrr að efla hina pólitísku krifstofu ráðherra,“ segir þar ennfremur.

Fram kemur að áliti meirihluta allsherjarnefndar að óheppilegt sé að aðstoðarmenn ráðherra semji beint um kjör sín við ráðherra. Leggur meiri hlutinn því jafnframt til að ákvörðunarvald um launakjör aðstoðarmanna verði felld undir kjarráð.////hvað er í gangi þarna á Alþingi .það er talað um að minka ráherraræðið, en svo þetta ,að fjölga aðstoðarmönnum,þetta er hvílík steypa að það hálfa væri nóg,við Íslendingar erum bara 320 þus og þurfum við að eyða í þetta þegar allt er á vonarvöl og sparnaður i hámarki,þessu fólki er ekki sjalfrátt,og að er sko komin tími á að það yfirgefi sviðið/*Halli gamli


mbl.is Heimilt að fjölga aðstoðarmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta fólk er löngu komið út fyrir síðasta söludag og úr takti við samfélagið, hvernig losar maður sig við lýs?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.9.2011 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045812

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband