Hugsanlegur flóttabíll fundinn/ á þetta að heita alvöru rán?????

„Get down, get down“

 

Franch Michelsen úrsmíðameistari í verslun sinni í desember síðastliðnum. Verslunin var rænd í morgun. Eggert Jóhannesson

„Það kemur maður inn með skammbyssu og beinir henni beint í andlitið á mér og segir á ensku: Get down, get down (leggstu niður),“ sagði Franch Michelsen, úrsmíðameistari, en verslun hans við Laugaveg var rænd í morgun.

„Ég sat við vinnuborð og var að gera við úr, rétt innan við þil innan við dyrnar. Inni á kaffistofu sat sonur minn að vinna í tölvunni og svo var afgreiðslustúlka að vinna þarna. Við vorum þrjú í búðinni,“ sagði Franch.

Þau voru nýbúin að opna búðina klukkan 10.00 í morgun þegar ræningjarnir ruddust inn um 15-20 mínútum síðar. Franch sagði það ekkert grín að verða fyrir svona lífsreynslu. Þetta hafi gerst snöggt og ef til vill átti maður sig ekki á þessu fyrr en síðar.

Franch sagðist hafa haldið í fyrstu að þetta væri eitthvað grín, en þegar hann leit upp sá hann að maðurinn var með hulið andlit og sást bara í augun á honum. „Þá vissi ég að það var alvara á ferðum því það kom annar á eftir honum. Ég leggst á gólfið og segi starfsfólki mínu að leggjast niður líka og gera allt sem þeir segja,“ sagði Franch.

Ræningjanum þótti Franch ekki bregðast nógu fljótt við og öskraði aftur á hann að leggjast niður. Skömmu síðar hljóp af skot. Franch sagði að maðurinn hafi alltaf ávarpað hann á ensku, en með hreim. En létu ræningjarnir eins og þeir væru kunnugir staðháttum?

„Þeir voru kunnugir. Þeir gengu beint að skápunum sem Rolex-úrin voru í,“ sagði Franch. „Þeir tóku Rolex, Tudor og Michelsen úr.“ Rolex úrin eru dýrust, Tudor er kallað „litli bróðir Rolex“ og framleiðir Rolex merkið en úrin kosta um helming af því sem Rolex úr kosta. Michelsen úrin voru úti í glugga og voru tekin með.

En höfðu þau orðið vör við að það kæmu njósnarar í búðina fyrir ránið?

„Þegar við hugsum til baka þá getum við alveg hugsað okkur það - að það hafi verið hérna einn á laugardaginn og svo einn í vikunni síðustu. En þetta er ekkert sem við vorum að hugsa um þá. Þetta var bara ósköp venjulegur mánudagsmorgunn í morgun,“ sagði Franch.

Hugsanlegur flóttabíll fundinn
Innlent | mbl.is | 17.10.2011 | 13:12
Bílinn, sem fannst í gangi í miðborginni í dag.Bíll, sem stóð í gangi við stöðumæli skammt fyrir ofan skartgripaverslun Michelsen, er hugsanlega talinn tengjast ráni, sem framið var í versluninni í morgun.
morgun.

Samkvæmt upplýsingum mbl.is var tilkynnt um helgina, að þessum bíl hefði verið stolið.

Bíllinn var við Vegamótastíg aðeins nokkrum tugum metra frá skartgripaversluninni en vegfarandi veitti því athygli um hádegisbil í dag að bíllinn hafði staðið þar lengi og var vélin í gangi. Búið var að setja stöðumælasekt á bílinn.

Vopnað rán var framið í úraverslunnni Michelsen á ellefta tímanum í morgun. Ræningjarnir komust undan og er þeirra nú leitað. Þeir voru vopnaðir byssum og hafa tvær þeirra fundust, en um eftirlíkingar er að ræða. ////manni dettur i hag að þetta eigi að heita alvöru rán?? en það kemur i ljós fyrr en seinna,þetta er svo skrítið á voru landi að það sé raunin,en vinandi er kemst þetta upp og það fljótt,manni hrís hugur við öðru/Halli gamli 


mbl.is Hugsanlegur flóttabíll fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1045704

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband