Rysjótt í kvöld og nótt/við eigum að taka þetta alverlega og vera sem mynst á ferðinni!!!!

Rysjótt í kvöld og nótt
Innlent | mbl.is | 17.10.2011 | 20:09
Spáð er leiðindaveðri víða um land. Myndin er úr myndasafni. Veður fer versnandi norðaustanlands og síðar austanlands, hríðarveður á fjallvegum ofan 400 metra og krapi þar fyrir neðan. Þó rigning víðast á láglendi. Vindur norðanstæður, yfirleitt 18-20 m/s til fjalla og skyggni mjög takmarkað. Þetta kemur fram í ábendingu veðurfræðings hjá Vegagerðinni

Með kvöldinu dregur úr snjókomu og éljum á Vestfjörðum, í Dölum og eins vestantil á Norðurlandi, en ekki fyrr en í nótt eða snemma í fyrramálið norðaustan- og austanlands.

Vaxandi veðurhæð er spáð suðaustanlands. Á svæðinu frá Suðursveit austur í Berufjörð er spáð N- og NV-átt, byljóttum vindi og vindhviðum yfir 30 m/s frá því í kvöld um kl. 21 til 22.

Vindur gengur hins vegar mikið niður vestanlands í kvöld, en gert er ráð fyrir hviðum 30-40 m/s á Kjalarnesi og í Staðarsveit fram undir kl. 20 til 21.///"Kapp er best með forsjá segir máltækið " og ber okkur að hafa það i huga þegar veðurspá er svona og fara varlega og vera ekki á ferð nema nauðsyn krefji það er málið/Halli gamli


mbl.is Rysjótt í kvöld og nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég hef það bara notalegt hér inni, nýbúin að horfa á dönsku fréttirnar og svo Lewis lögregluforingja.  Þeir eyddu miklu púðri í ESB og ræddu við marga, fóru m.a. til Finnlands, Grikklands og Þýskalands til að ræða við almenning, ég gat ekki betur heyrt en það væru allir þar sem rætt var við á móti Evrunni og þessu samkrulli.  Spilling stjórnvalda kom oft fram. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.10.2011 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 1045746

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband