Wenger: Helmingurinn vildi fara/auðvitða en það verður að spila úr þesu sem er og kaupa fleiri næst,þeir eiga peninga!!

: Helmingurinn vildi fara
Íþróttir | mbl.is | 18.10.2011 | 8:35
Arsene Wenger hefur haft um margt að hugsa í haust.Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að erfiða byrjun liðsins á keppnistímabilinu megi rekja til þess að helmingur leikmannanna hefðu viljað fara frá félaginu í sumar.

Tveir lykilmenn, Cesc Fabregas og Samir Nasri, hurfu á braut til Barcelona og Manchester City og Wenger segir að ástandið hafi verið erfitt, ekki síst vegna þess að til viðbótar meiddist Jack Wilshere og er lengi frá keppni.

„Sumarið var afskaplega erfitt vegna þess að helmingur leikmannanna vildi fara. Við vorum að undirbúa tímabilið en vissum ekki hverjir myndu fara eða koma og leikmennirnir spurðu sjálfa sig hvað gengi á í félaginu. Þetta var einstaklega erfitt. Það sem bjargaði okkur er hve gífurlega traust og sameinað þetta félag er. Sum önnur hefðu hreinlega hrunið við þessar aðstæður," sagði Wenger í viðtali við frönsku útvarpsstöðina RTL.

„Fólk gleymir því að við misstum þrjá lykilmenn, vegna þess að við misstum líka Wilshere. Hann, Fabregas og Nasri báru uppi miðjuna hjá okkur í fyrra. Við höfum þurft að endurskipuleggja hana algjörlega því Wilshere spilar ekki aftur fyrr en í janúar. En við erum samt vonsviknir yfir þessari byrjun á tímabilinu, væntingarnar til okkar eru mun meiri en þetta, en vandamálið er að það tekur tíma að klifra upp töfluna. Það er ekki svo langt í fjórða sætið en við erum of langt á eftir tveimur efstu liðum," sagði Wenger.

Hann viðurkenndi að það væri alfarið vegna launanna sem leikmenn hefðu viljað yfirgefa Arsenal. „Málið er ekki að fara til að vinna titla. Ef menn bera saman það sem Manchester City og Arsenal hafa unnið, þá er ljóst að menn fara ekki til Manchester City til að vinna titla. Menn fara til Manchester City vegna þess að þar eru greidd mun hærri laun en hjá Arsenal. Þeir eru mikið veldi vegna gífurlegs fjármagns sem þeir hafa yfir að ráða svo staða þeirra kemur ekki á óvart," sagði Wenger.///það þýðir ekki að vera að væla núna,þetta var fyrirséð að menn voru óánægðir og hann átti að kaupa fleiri og verður að gera það næst þegar opnar,Arsenal ánóga peninga og er eitt sterkasta liðið þannig!! en hann kallin verður að,taka sig á og koma sterkari inn með það sem hann á þar til,við heimtum það Arsenal aðdáendur/Halli Gamli


mbl.is Wenger: Helmingurinn vildi fara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband