„Þingmennirnir komnir fram“Það gott fyrir Vestmanneyjar og suðurland!!!

„Þingmennirnir komnir fram“
Innlent | mbl.is | 25.10.2011 | 13:22
Þann 6. október sl. mætti fjölmenni á Básaskersbryggju til... Þingmenn Suðurkjördæmis munu funda eftir helgi með bæjarfulltrúum í Vestmannaeyjum og íbúum sem vilja stuðla að bættum samgöngum til og frá Eyjum. Fundurinn verður lokaður.

Nýverið auglýsti áhugafólk um bættar samgöngur eftir öllum 12 þingmönnum kjördæmisins vegna neyðarástands í samgöngumálum í bæjarfélaginu. Í heilsíðuauglýsingu, sem birtist í Morgunblaðinu, var sagt að þingmennirnir væru týndir.

Þá mætti fjölmenni á samstöðufund um samgöngumál á milli lands og Eyja sem haldinn var á Básaskersbryggju í byrjun október.

„Þeir [þingmennirnir] hafa sem betur fer komið fram. Þetta virðist hafa haft áhrif,“ segir Sigmundur Einarsson, sem rekur Viking Tours í Vestmannaeyjum, í samtali við mbl.is, en hann er einn þeirra sem stóð fyrir samstöðufundinum.

Staðan óviðunandi

Sigmundur segir að annar hópur hafi staðið að auglýsingunni en hóparnir, sem yfir 700 manns standi á bak við, hafi síðan tekið höndum saman og ætli að mæta á fundinn, sem verður haldinn í Eyjum nk. mánudag.

„Við viljum fá þessa aðila sem sjá um samgöngumál til Eyja með okkur í að lagfæra hluti. Þetta eru einfaldar kröfur. Við viljum samgöngur í lag til Eyja. Við viljum að Landeyjahöfn sé opin allt árið,“ segir Sigmundur og bætir við að hóparnir vilji jafnframt fá ferju sem geti siglt á milli lands og Eyja allt árið.

Núverandi ástand sé óviðunandi og samgöngumál Eyjamanna í dag séu í raun svipuð því sem hafi verið uppi á teningnum fyrir 40 árum.

Aðspurður segir Sigmundur að von sé á öllum 12 þingmönnum Suðurkjördæmis á fundinn///það er gott að þessir 12 Alþingismenn eru fundnir,ég man einu sinni eftir því að það var auglýst eftir Alþingismönnum R,vikur og þyrfti að gera einnig oftar!! en þetta er gott og vonandi að þetta leysi einkver mál þarna/Halli gamli


mbl.is „Þingmennirnir komnir fram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Þeir hljóta að hafa sópað vel út í öll horn til að finna þessa 12 þingmenn.  Mér er nefnilega ekki kunnugt um að Suðurkjördæmi hafi nema 10 þingmenn (sjá hér: http://www.kosning.is/althingiskosningar/)

Sigríður Jósefsdóttir, 25.10.2011 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045743

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband