Sendiráðið skuldar 1320 pund //vonandi að þetta komi ekki til hér í Islandi!!!

Sendiráðið skuldar 1320 pund
Innlent | mbl.is | 25.10.2011 | 14:23
Frá Lundúnum. Íslenska sendiráðið í Lundúnum skuldar borginni 1320 pund, 242 þúsund krónur, vegna þess að bílar sendiráðsins hafa ekið inn á greiðslusvæði í miðborginni án þess að greiða tilskilin 10 pund í hvert skipti.

Þetta kemur fram á vef danska ríkisútvarpsins, DR. Ástæða umfjöllunar DR er að danska sendiráðið í borginni skuldar heil 264.560 pund, jafnvirði 48,5 milljóna íslenskra króna, af sömu ástæðu.

Gjaldskyldan í miðborginni var tekin upp árið 2003 og er ætlað að draga úr bílaumferð og þar með loftmengun. DR segir, að ástæðan fyrir þessum háa reikningi danska sendiráðsins sé að sektir hafi með tímanum bæst við upphæðina vegna þess að reikningarnir voru ekki borgaðir.

DR segir, að bresk stjórnvöld segi, að gjaldið sé ekki skattur heldur þóknun og því verði allir að greiða, líka erlendir sendimenn. Um tveir þriðju hlutar sendiráða í Lundúnum greiðir þetta gjald reglulega en um þriðjungur þrjóskast við. 

Bandaríska sendiráðið hefur safnað stærstu skuldinni eða 5.760.900 pundum eða rúmum milljarði króna. Sendiráðið segist líta á þetta gjald sem breska skattlagningu sem bandarískir sendimenn eigi að vera undanþegnir. Þessu eru bresk stjórnvöld ósammála.

Þýska sendiráðið skuldar 3,6 milljónir punda og það japanska 3,9 milljónir. Þá skuldar rússneska sendiráðið nærri 4,6 milljónir punda.

Finnska sendiráðið skuldar 124.160 pund samkvæmt skrám borgaryfirvalda í Lundúnum. Sendiráð Noregs og Svíþjóðar hafa hins vegar valið að greiða gjaldið og skulda því ekkert.  ///þetta er skiljanlegt i milljóna Borgum,en samt þarna a´GRÁU svæði með því að þetta er bara skattur!! en í denn!!! vera talað um þetta af R-listans í Borginni hér að fara að gera þetta!! en vonum að það sé ekki inní myndinni/Halli gamli


mbl.is Sendiráðið skuldar 1320 pund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 1045653

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband