ASÍ: Doði blasir við í hagkerfinu// "bragð er að þá barnið finnur" segir máltækið>!!er ríkisstjórnin óvinurin???

ASÍ: Doði blasir við í hagkerfinu
Innlent | mbl.is | 25.10.2011 | 15:18
 Ný hagspá hagdeildar ASÍ gerir ráð fyrir að verstu afleiðingar hrunsins séu nú að baki og framundan sé hægur bati í efnahagslífinu. Áhyggjuefni sé hins vegar að efnahagsbatinn framundan sé svo veikur að við blasi doði í hagkerfinu. ASÍ spáir 2,4% hagvexti á þessu ári og 1% á næsta ári.

Þetta kemur meðal annars fram í nýrri spá hagdeildar ASÍ um horfur í efnahagsmálum á árunum 2011-2014. Hagdeildin spáir því að landsframleiðsla aukist hægt á næstu árum, hagvöxtur verði  2,4% á yfirstandandi ári, um 1% á næsta ári, 2,7% á árinu 2013 og um 1,5% á árinu 2014.

ASÍ gerir ráð fyrir að hagur heimilanna vænkist heldur á næstu misserum þótt víða verði áfram þröngt í búi og atvinnuleysi áfram mikið. Samkvæmt spánni dregur úr atvinnuleysi á tímabilinu en það verður enn um 5% í lok spátímans.

Útlit er fyrir litlar fjárfestingar í hagkerfinu á spátímanum. Mikil óvissa ríkir um framkvæmdir við álver í Helguvík og innanríkisráðherra hefur slegið út af borðinu allar áætlanir um að gera átak í vegamálum á Suðvesturlandi með sérstakri fjármögnun. Það er því ekki gert ráð fyrir þessum framkvæmdum í spánni. Þá valda erfiðleikar á erlendum fjármálamörkuðum aukinni óvissu varðandi fjárfestingar.

ASÍ segir, að takist að nýta þau tækifæri sem felist t.d í framkvæmdum í Helguvík og orku- og iðjuverum á Norðurlandi muni það auka hagvöxt áranna 2012-2014 um 3 prósentur sem sé ekki lítill ávinningur. Árleg verðmætasköpun yrði þá um 55 milljörðum meiri árið 2014 en ella auk þess sem það hefði veruleg jákvæð áhrifa á atvinnustigið.///"svo bregðast krosstré sem önnur tré" segir máltækið og það er svo að ASÍ sem hefur allatíð þótt vinstri sinniuð er búin að fá nóg og vel það!! það er ekki spurning að þetta stopp á uppsveiflu mun  hafa áhrif langt fram i tíman og engin hagvöxtur næst ár ef svo heldur sem horfir,við eru búin að fá nog  öll nema 13-20% sem heldur en við líminu/Halli gamli


mbl.is ASÍ: Doði blasir við í hagkerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 1045654

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband