Ísland í 12. sæti eftir sigur Brasilíu////Mjög góð framistaða stúlknanan í fyrsta H.M. móti þeirra,var ekki búin að ósaka þeim til hamingju blessuðum!!!

Ísland í 12. sæti eftir sigur Brasilíu Íþróttir | mbl.is | 12.12.2011 | 23:46 Ísland hafnaði í 12. sætinu á HM kvenna í handknattleik en það var endanlega staðfest fyrir nokkrum mínútum þegar Brasilía vann Fílabeinsströndina, 35:22, í síðasta leiknum í 16-liða úrslitum keppninnar. Fyrir leiki kvöldsins hefði Ísland getað sigið niður í 15. sætið, en til þess hefðu Fílabeinsströndin, Japan og Rúmenía þurft að sigra mótherja sína í 16-liða úrslitunum. Þau töpuðu öll að lokum og enda þar með öll fyrir neðan Ísland. Annars hefðu Brasilía, Danmörk og Króatía setið eftir, öll með betri árangur en Ísland og hvert þeirra um sig hefði því verið ofar í töflunni. Minnstu munaði hjá Dönum sem þurftu framlengingu til að knýja fram sigur á Japan, 23:22. Króatar sluppu líka fyrir horn með því að sigra Rúmena, 28:27. Frakkar unnu Svía fyrr í kvöld, 26:23. Úrslit um neðri sætin réðust líka í kvöld. Þýskaland vann Túnis 33:25 í leik um 17. sætið, Kasakstan vann Úrúgvæ 31:22 í leik um 19. sætið, Kína vann Kúbu 30:29 í leik um 21. sætið og Argentína vann Ástralíu 30:12 í leik um 23. sætið. Þar með liggur röð liðanna í 9.-24. sæti keppninnar endanlega fyrir og hún er þannig: 9. Svíþjóð 10. Svartfjallaland 11. Suður-Kórea 12. Ísland 13. Rúmenía 14. Japan 15. Holland 16. Fílabeinsströndin 17. Þýskaland 18. Túnis 19. Kasakstan 20. Úrúgvæ 21. Kína 22. Kúba 23. Argentína 24. Ástralía Í 8-liða úrslitum mætast: Rússland - Frakkland Danmörk - Angóla Brasilía - Spánn Króatía - Noregur ///þeytta frábær áranagur , á fyrsta móti sínu i HM og það bara hefði getað farið ver,en við óskum þeim stúkum til hamingju !!!og okkar öllum bara,og vonum að það verði gert eitthvað betur við þær fjarhagslega blessaðar/Halli gamli

mbl.is Ísland í 12. sæti eftir sigur Brasilíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband