Ræða frestun Norðfjarðagangna//það er svo að það má bæta vegi fyrir þetta vegafé,og koma í veg fyrir slys!!!fé

Ræða frestun Norðfjarðagangna Innlent | mbl.is | 13.12.2011 | 7:26 Samgöngunefnd Alþingis ræðir um að fresta framkvæmdum við Norðfjarðargöng til áranna 2015-2018, en núverandi samgönguáætlun gerir ráð fyrir að þær hefjist á næsta ári. Framsóknarfélag Fjarðabyggðar hefur sent frá sér ályktun þar sem þessari fyrirhuguðu frestun er harðlega mótmælt. „Ef af verður er um að ræða stórfelld svik á loforðum sem gefin voru af hálfu ríkisvaldsins í aðdraganda sameiningar sveitarfélaganna sem mynda FjarðabyggAlþingi mun í vetur fjalla um endurskoðun samgönguáætlunar. ð. Norðfjarðargöng eru algjör forsenda fyrir eðlilegri íbúaþróun og þjónustusókn íbúa sveitarfélagsins og í raun Austfirðinga allra, sem þurfa að fara yfir hættulegan fjallveg til að sækja lífsnauðsynlega þjónustu. Jafnframt minnir Framsóknarfélag Fjarðabyggðar á að ríflega fjórðungur útfluttra verðmæta frá Íslandi á uppruna sinn í Fjarðabyggð.“//þetta er auðvitað hitamal ,fyrir margan en er ekki rét svona á meðan pening vantar að laga heldur vegina sem til eru, og minka slysin!!það er svo að engar framkvæmdir eru sem skila arði í bili það vilja ekki þessir sem stjórna//Halli gamli
mbl.is Ræða frestun Norðfjarðargangna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll, það er sjúkrahús og verkmenntaskóli á Nesk. og eitt stærsta útgerðafélag landsins + sækir talsverður fjjöldi fólks vinnu við álverið á Reyðarfirði og þarna er búið að vera ófært og þungbúið síðustu daga!!! nefndu ekki ógrátandi grjóthrunið og stíflurnar sem myndast í gamla gatinu.

Þolir enga bið Hlli gamli :)

Óskar (IP-tala skráð) 13.12.2011 kl. 08:20

2 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Halli gamli NEI

Einar Bragi Bragason., 13.12.2011 kl. 11:06

3 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Það er ekki hægt að bæta þessa leið. Bara að leggja hana niður og byrja á nýjum göngum strax. Áður en það verður stórslys.

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 13.12.2011 kl. 11:11

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halli. Ég er sammála þér. Það er ekki til of mikill peningur í ríkiskassanum, eða svo er sagt, og spurning um forgangsröðun á þessum erfiðu tímum.

Því er haldið fram að veggjöld standi undir kostnaði við gerð þessara gangna. Það eru ekki allir á sama máli um þá útreikninga, enda útilokað að reikna nokkurn skapaðan hlut rétt út á svona breytingartímum. Ef þessar framkvæmdir fara fram úr áætluðum útreikningum, þá þarf að vita hvar á að skera niður annarstaðar til að fá upp í þann kostnað, eða er það ekki? 

Hvað með sunnanverða Vestfirði? Þarf ekki að koma útflutningsvörum og sjúklingum um það svæði líka? Er ekki of oft ófært þar? Þar má byggja brýr og virkja sjávarföllin samtímis. Er ekki neinn vilji fyrir slíkri fjölvirkri lausn á þeim slóðum, sem samtímis skapar orku upp í kostnaðinn? Verfræðingur hefur mælt með notagildi sjávarfalls-virkjunar hér á Mogga-blogginu. Sveinn Sigurbjörnsson held ég að hann heiti, er samt ekki alveg viss um að ég muni nafnið rétt.

Það þarf að ræða lausnarmiðuð arðbær þarfaverk, eða er það ekki rétt hjá mér?

Hvað ræður forgangsröðuninni í vegaframkvæmdum og virkjunum á Íslandi?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.12.2011 kl. 11:23

5 identicon

Ég varð bara orðlaus við að lesa þetta.... Að gera við veginn er örugglega meiri kostnaður heldur en að grafa ný göng og leggja nýjan veg... Það þyrfti að gera við gömlu göngin einnig sem er farið að hrynja grjóthnullungar úr... Það er siginn vegur að hluta öðrumeginn á veginum og ef bíll fer útaf þá er nánast 80% líkur á að hann velti og farþegar slasist... Fjórðungsjúkrahúsið er á neskaupstað stór hluti útflutningstekna landsins sem þýðir að um þennan fjallveg þurfa vöruflutningabílar að keyra á þessum þungubílum þennan ónýta fjallveg... Held að þú ættir að geta ímyndað þèr hvað gerist ef þessir bílar fara á flakk á veginum... Það er virkileg þörf á nýjum veg og göngum....

Þórfríður (IP-tala skráð) 13.12.2011 kl. 12:51

6 Smámynd: Haraldur Haraldsson

engan vil ég særa alls ekki !!!!.það er full þörf á þessum göngum bæði á Aus-tfjörðum og Vetstfjörðum,ef við ættlum að halda þessu i byggð,og það ber auðvitað að hafa heilsugeiran þarna i lagi einnig sem skorin er niður við trog!!!/kveðja

Haraldur Haraldsson, 13.12.2011 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband