Ástþór segir kosningarnar ólöglegar/Karlin ekki af baki dottin ????

Ástþór segir kosningarnar ólöglegar Innlent | mbl.is | 29.6.2012 | 10:40 Ástþór Magnússon telur forsetakosningarnar sem fara eiga fram á morgun ólöglegar. Ekki hafi verið lagastoð fyrir því að ógilda framboð haÁstþór Magnússon.ns á forsendum innanríkisráðuneytisins og enn liggi engar sannanir fyrir fölsunum á meðmælendalistum .

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ástþóri. Hann segist þann 26. júní sl. lagt inn um bréfalúgu hjá Hæstarétti Íslands afrit af stjórnsýslukæru með móttökustimpli frá innanríkisráðuneytinu. Í kærunni komi fram að hann telji kosningarnar á morgun ólögmætar. Áður hafi Hæstarétti borist erindi frá kjósendum sem telja að brotið hafi verið á honum sem frambjóðanda og á þeim sem kjósendum.

Ásakanir um falsanir undirskrifta á meðmælendalistum gangi þvert á yfirlýsingar undirskriftarsafnara í fjölmiðlum sem segist engin nöfn hafa falsað. „Þótt fleiri vikur séu nú liðnar síðan þetta mál kom upp hefur samkvæmt upplýsingum frá embætti Lögreglustjórans í Reykjavík engin yfirheyrsla farið fram og meintur falsari gengur laus,“ segir Ástþór m.a. í yfirlýsingunni.

Þá bætir hann því við að innanríkisráðuneytið hafi ekki svarað fyrirspurnum hans um bókun á fundi í ráðuneytinu með frambjóðendum þar sem óskað var að meðmælendalistar annarra frambjóðenda yrðu einnig rannsakaðir. Á fundinum hafi verið bent á lista frá framboði Þóru Arnórsdóttur sem höfðu svipað yfirbragð og þeir listar sem sagðir voru falsaðir. „Eftir því sem tíminn líður er að afhjúpast meiri og meiri pólitískur þefur kringum þetta mál.

Vinnubrögð innanríkisráðuneytisins og meðförin á framboði mínu er á skjön við góða stjórnsýsluhætti, meðalhófsreglu og eðlileg vinnubrögð í réttarríki lýðræðisþjóðfélags.

Forsetakosningar við slíkar aðstæður samrýmast ekki reglum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Íslendingar sem þátttakendur í ÖSE hafa verið gjarnir á að deila á lögmæti kosninga í öðrum löndum sem farið hafa fram með slíku misferli sem nú er að gerast í forsetakosningum hérlendis. Innanríkisráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurnum mínum um hvort stjórnsýslan hafi upplýst kosningaeftirlit ÖSE um málið,“ segir Ástþór að lokum.///////Þetta er svona karlin er ekki af baki dottin gerir  sínar athugsasemditr og virðist ættla að fylgja Þvi eftit,sem er nátturlega sjalsækt að eitt skuli yfir alla ganga þarna ,ekki spurning ,hver hefur sinn rétt,og það ber að virð!!!Halli gamli

Eg sjálfur 1955
mbl.is Ástþór segir kosningarnar ólöglegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ástþór.

Þú varst frægur í 5 mín.

Láttu það nægja. Allt venjulegt fólk er orðið þreytt á þvæluni í þér.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 29.6.2012 kl. 11:19

2 identicon

Hann er ekki hættur frekar en venjulega...

Skúli (IP-tala skráð) 29.6.2012 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband