Hagnaður Haga 628 milljónir/Þarna sjáum við hvort ekki hefði verið betra að láta þá sem áttu reka þetta áfram og borga skuldir!!!

Hagnaður Haga 628 milljónir Viðskipti | mbl.is | 29.6.2012 | 10:52 Hagnaður Haga nam 628 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi rekstrarársins, en það svarar til 3,6% af veltu. Verið er að skoða hvort fjölga eigi BónuBónus og Hagkaup eru í eigu Haga sverslunum keðjunnar en ekki hafa verið teknar ákvarðanir um stórar fjárfestingar eða fjölgun verslana. Verið er að skoða hvort fjölga eigi Bónusverslunum keðjunnar en ekki hafa verið teknar ákvarðanir um stórar fjárfestingar eða fjölgun verslana. Vörusala nam 17.364 milljónum króna, samanborið við 16.498 milljónum króna fyrir sama tímabil árið áður. Söluaukning félagsins er því 5,2% milli ára. Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta nam 1.137 milljónum króna, samanborið við 1.037 milljónir króna árið áður. Framlegð félagsins er 4.185 milljónir króna samanborið við 3.879 milljónir króna árið áður eða 24,1% samanborið við 23,5%. Annar rekstrarkostnaður er nokkuð sambærilegur milli ára sem hlutfall af veltu, eða 17,7% samanborið við 17,4% í fyrra. Kostnaðarhækkanir milli ára skýrast að mest öllu leyti af vísitölutengdum kostnaðarhækkunum og kjarasamningshækkunum launa, segir í tilkynningu frá Högum. Hagnaður rekstrarársins fyrir skatta nam 797 milljónum króna, samanborið við 696 milljónir króna árið áður. Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 24.636 milljónum króna. Fastafjármunir voru 12.493 milljónir króna og veltufjármunir 12.143 milljónir króna. Birgðir hafa aukist á tímabilinu en það er nokkuð eðlilegt í rekstri félagsins þar sem birgðir ná yfirleitt lágmarki í lok febrúar og hækka svo aftur þegar nær dregur sumri. Eiginfjárhlutfallið 28% Eigið fé félagsins var 6.897 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 28,0%. Eiginfjárhlutfall í lok síðasta rekstrarárs var 26,6%. Heildarskuldir samstæðunnar voru 17.739 milljónir króna, þar af eru langtímaskuldir 9.963 milljónir króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins í lok tímabilsins voru 7.150 milljónir króna en í apríl nýtti félagið heimild sína til aukalegrar innborgunar á lán félagsins eða að upphæð 500 milljónir króna. Innra virði hlutafjár í lok tímabilsins er 5,88 samanborið við 5,31 í lok síðasta rekstrarárs. Handbært fé frá rekstri í lok tímabilsins var 1.347 milljónir króna samanborið við 391 milljón króna á sama tíma í fyrra. Handbært fé í lok tímabilsins var 2.773 milljónir króna samanborið við 1.204 milljónir króna árið áður. Gert er ráð fyrir að rekstur Haga á árinu verði sambærilegur niðurstöðu síðasta árs. Það er þó ljóst að enn er nokkur óvissa í efnahagslífinu sem hefur áhrif á hag heimilanna, sem eru stærsti viðskiptavinur Haga. Auk þess hefur samkeppnin á matvörumarkaði ávallt verið mikil og líkur á að svo verði áfram, segir í tilkynningu.//////Eg hefi alltaf sagt aðþað hefði verið betra að láta þá sem ráku þetta og borga upp skuldir heldur en að afskrifa milljarða!! ekki spurning ,þetta er svipað dæmi og með Hafskip í gamla daga ,þagar þvi var komið á Hausinn vegna óskammfeilni og Eimskip þar stór í sniðum,þetta er athugavert að skoða og það vel,það er ekki sama hvort áð er Jón eða séra Jón þarna!!!!Mínir menn eru þarna í mikilli sök!!!/Halli gamli
mbl.is Hagnaður Haga 628 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband