Frétt af mbl.is Verðbólgan 4,5%///Þessi verðbólga á eftir að koma okkur um koll!!

VerðbólVerð á dagvöru hækkaði í nóvembergan 4,5% Viðskipti | mbl.is | 28.11.2012 | 9:01 Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,32% í nóvember frá fyrra mánuði og er það einkum hækkun á verði dagvöru og flugfargjöldum sem hafði áhrif til hækkunar í mánuðinum á meðan verð á eldsneyti lækkaði.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,5%. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,32% í nóvember frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,37% frá október.

Er það við hærri mörk sem greiningardeildir höfðu spáð. Verð á bensíni og dísilolíu lækkaði um 2,9% (vísitöluáhrif -0,17%) en verð á dagvörum hækkaði um 0,8% (0,13%) og verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 8,3% (0,13).

Innlegndar vörur og grænmeti hafa hækkað um 6,6% Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,5% og vísitalan án húsnæðis um 5,2%. Hefur verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili ekki verið jafn mikil síðan í júlí er hún mældist 4,6%.

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,4% sem jafngildir 5,6% verðbólgu á ári (7,5% verðbólgu á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis), segir í frétt á vef Hagstofu Íslands. Undanfarna tólf mánuði hafa búvörur og grænmeti hækkað um 7,1% í verði og innlendar vörur og grænmeti hafa hækkað um 6,6%.

Innlendar vörur án búvöru hækkuðu um 6,2% síðasta árið en innfluttar vörur hafa hækkað um 3,6% síðstliðna tólf mánuði. Hækkun dagvöru á sama tímabili nemur 6,1%.

Verðbólgan nú er í samræmi við spár markaðsaðila en þeir reikna með að verðbólga á fjórða fjórðungi þessa árs verði 4,5% og 4,2% á fyrsta fjórðungi næsta árs, samkvæmt væntingakönnun Seðlabanka Íslands sem var birt þann 19. nóvember sl.//////////Fólk getur ekki þolað þetta öllu lengur nógu dýrt er að borga vöruna en það eru lánin sem hækka daglega og endar hvar að allir sem eitthvað skulda fara á hausinn,það geturekki öðru vísi farið,hvað segja stjórnvöld við þessu.bara ganga í ESB og málinu reddað??? eða hvað þessi vístala er ekki hægt lengur að allt sem hækkar hækki lánin,það er svona ð við þolum ekki endalaust að lifa við þetta//Halli gamli


mbl.is Verðbólgan 4,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045634

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband