Rangt að draga ESB á asnaeyrunum/ Mikið rétt!!!stoppum þetta strax!!!!

Rangt að draga ESB á asnaeyrunum Innlent | mbl.is | 6.1.2013 | 17:47 „Það heimskulegasta sem við ÍslendinRagnar Arnalds, fyrrverandi fjármálaráðherra.gar getum gert er að draga ráðamenn í Brussel á asnaeyrunum árum saman, telja þeim trú um að Íslendingar séu í þann veginn að ganga í ESB og láta valdamenn í 27 aðildarríkjum atast í því að gera flókna samninga við íslensku þjóðina sem gefur svo skít í allt saman þegar þar að kemur.

“ Þetta segir Ragnar Arnalds, fyrrverandi fjármálaráðherra og áhrifamaður innan Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, á vefsíðunni Vinstrivaktin í dag.

Hann segir að reynslan sýni að þjóð sem hafni formlega samningi um inngöngu í Evrópusambandið njóti lítils skilnings í Brussel næstu ár á eftir og vísar þar í reynslu Norðmanna sem tvisvar hafa hafnað samningi um inngöngu í sambandið.

„Það er því mjög til tjóns fyrir málstað Íslendinga til frambúðar að reynt sé undir forystu Samfylkingarinnar að troða Íslendingum inn í ESB með góðu eða illu, þótt vitað sé að þjóðin vill ekki ganga þar inn,“ segir Ragnar og bætir því við að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hafi nú fengið heilt kjörtímabil til þess að sýna hvað sé í boði af hálfu Evrópusambandsins.

Fyrir liggi hins vegar að hagsmunum Íslendinga í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum yrði eki borgið innan sambandsins. „Vitneskjan um þessar staðreyndir nægir.

Við eigum því að draga okkur út úr aðildarviðræðunum hávaðalaust og láta þar við sitja. Því getur VG ráðið.

Forystumenn VG verða nú að taka af skarið, enda bætist það ofan á allt annað hjá þeim að framtíð flokksins, framtíð VG, er bersýnilega í húfi,“ segir hann ennfremur./////////////////Þarna sjáum við svart á hvítu ,hvað  þetta mun þíða fyrir okkur,heift og hatur þessa 27 ríkja ef það fer eins og með Norðmenn!!við eigum skilyrðislaust að hætta þessu meðan hægt er!!!eins og Ragnar segir eru Norðmenn vondu karlarnir í Brussel og við yrðum það einnig þar fyrir barðinu!!! en erum ekki eins vel stæðir til að standa uppí á móti þeim í bissins,en þessi Samfylking er búin að gera okkur óleik,og V.G. með og þetta gengur ekki lengur!!!/Halli gamli 


mbl.is Rangt að draga ESB á asnaeyrunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband