Helgi í Góu: Tengist ekki sölu á páskaeggjum//satt orðið þetta er framúrstefnu maður fyrir okkur Eldri Borgaga!!

HelgHelgi Vilhjálmsson.i í Góu: Tengist ekki sölu á páskaeggjum Innlent | mbl.is | 22.3.2013 | 11:00 Helgi Vilhjálmsson, Helgi íGóu, segir það ekki rétt sem haldið hafi verið fram í fjölmiðlum að auglýsing sem hann birti í dagblöðum um aðbúnað aldraðra, tengist sölu á páskaeggjum. Því fari víðsfjarri.

Í auglýsingunni var m.a. birt úrklippa af frétt DV um þær aðstæður sem Páll Bergþórsson og kona hans voru í er hún fékk pláss á hjúkrunarheimili en Páll gat ekki búið þar með henni. Páll hefur gagnrýnt þessa auglýsingu.

„Sú úrklippa var birt með leyfi DV sem skrifaði þá frétt,“ segir í yfirlýsingu Helga. „Sú frétt var birt í kjölfar þess að Páll benti fjölmiðlum á það óréttlæti sem í því felst að aðskilja þau hjónin.

Fór hann á þeim tíma í blaðaviðtöl og sjónvarpsviðtal. Í þessu máli kristallast það vandamál sem undirritaður hefur ítrekað bent á undanfarin ár og þó svo að Páll hafi með því að vekja athygli á sínu máli fengið lausn sinna mála, hefur lausn fyrir fjöldann ekki enn komið í ljós.

Lausn fyrir Pál og hans konu ber að fagna og best væri ef allir í þeirra stöðu gætu einnig fagnað. Á það er ég að benda og mun halda áfram að gera þar til athygli ráðamanna og lífeyrissjóða beinist að því að leysa það mál.

Það ætti einnig að vera markmið Páls enda hefur hann upplifað þetta ranglæti.“ Í niðurlagi yfirlýsingarinnar segir svo: „Samkvæmt frétt Fréttablaðsins er þessi aðgerð mín tengd við sölu á páskaeggjum en þar fer víðsfjarri og þykir mér ómaklegt að tala um þá baráttu sem ég hef staðið í undanfarin ár á þann hátt að ég hafi verið að reyna að selja nokkur páskaegg.

Kosningar eru á vorin og það eru páskar líka. Þessi barátta mun halda áfram eftir að páskum lýkur.“////////////////Þetta er bara til að hrósa þessum manni Helga i Góu sem segir auðvitað satt um að hver á að byggja fyrir okkur gamla fólkið ef ekki lífeyrasjóðirnir bara setum ný lög gerum þetta lífeyrissjóðirnir fá þetta aftur ekki spurning!!!þetta er það sem við vitum öll en þröngsýni manna er afbrigðileg,við eigum að styðja Halda og hann keniningar/Halli gamli


mbl.is Helgi í Góu: Tengist ekki sölu á páskaeggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045680

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband