Krafan er góð áminning:Steingrímur og Jóhanna auðvitað glöð?????


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra.
Krafan er góð áminning Innlent | mbl.is | 10.2.2014 | 16:17 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. Krafa Hollenska seðlabankans og breska innistæðusjóðsins á hendur Tryggingasjóði innistæðueigenda er fyrst og fremst áminning um mikilvægi þess að ekki var fallist á upphaflegar kröfur þessara aðila í Icesave-málinu. Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
 
Krafan nemur um 556 milljörðum króna og felur í sér lágmarkstryggingu fyrir hvern innistæðueiganda Icesave-reikninga í þessum tveimur löndum, auk vaxta og kostnaðar. „Fyrst og fremst er þetta áminning um hversu miklir hagsmunir voru undir fyrir Íslendinga og mikilvægi þess að þeir skyldu ekki fallast á það á sínum tíma að setja þessar ábyrgðir yfir á ríkið.
 
Krafa Hollenska seðlabankans og breska innistæðusjóðsins á hendur Tryggingasjóði innistæðueigenda er fyrst og fremst áminning ... Krafa Hollenska seðlabankans og breska innistæðusjóðsins á hendur Tryggingasjóði innistæðueigenda er fyrst og fremst áminning um mikilvægi þess að ekki var fallist á upphaflegar kröfur þessara aðila í Icesave-málinu.
 
Þetta segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. Ómar Óskarsson Því þá væri ekki um ræða kröfur á þennan sjóð, heldur á íslenska ríkið og skattgreiðendur,“ segir Sigmundur Davíð. „Þetta er góð áminning um hvað við erum í miklu betri stöðu nú, en við gætum verið ella.“
 
Hann minnir á að innistæðutryggingasjóðurinn hafi boðist til að greiða út til þessara aðila á sínum tíma, árið 2011. „En þeir féllust ekki á að taka við greiðslu á þeim tíma, en freista þess nú að fá sem mest úr þessum sjóði. En nú liggur fyrir að á honum er ekki ríkisábyrgð, þannig að það er alveg klárt að þetta mun aldrei lenda á íslenskum skattgreiðendum.“
 
Segir kröfuna hafa verið í farvatninu um hríð En hvers vegna vilja þeir núna fá greitt úr þessum sjóði, en þáðu það ekki áður? „Hugsanlega hafa þeir talið það veikja stöðu sína að taka við greiðslum úr sjóðnum á meðan þeir voru að reyna að knýja íslenskan almenning til að taka þessar skuldir á sig.
 
En núna, þegar það er ljóst að á þessu er ekki ríkisábyrgð, þá snúa þeir sér aftur að sjóðnum.“ Sigmundur Davíð segir kröfuna hafa verið í farvatninu um hríð eftir að niðurstaða EFTA-dómstólsins lá fyrir.
 
Spurður um hvort öllum Icesave-málarekstri verði lokið eftir að dómur hefur fallið í þessu máli segir hann svo vera.
 
„Já og það ætti að vera ljóst að hvernig svo sem þetta mál fer, þá er ljóst að það er ekki ríkisábyrgð á bak við þetta.“ ////////////////////Þetta er með eindæmum að taka svona á málum.að lögsækja innstæðutryggingasjóðinn er bara,það sem hægt er engin ríkisábyrgð á því og ekkert að hafa,ef við skiljum lögin rétt,en það er fagnað víðar en í  Hollandi og Bretlandi,Steingrímur og c/o +Samfylking eru eð því að þetta hafi verið í spilunum og nú fáum við að blæða,ljótt en satt!!!!Hvert samsærið eltir annað hjá þessum kommum Hanna Birna lak einhverju eða ráðuneyti hennar,svo biður þetta fólk um samvinnu,svei því aftan!!!Við höfum haldið að í þessu fólki væri mannlegar tilfyrningar,en það er borin von,ég seigi bara Dagblaðið hvað?????Þetta er forkastanlegt og við vitum að samvinna við þetta fólk er ekki inn í málunum,Alþingi er ekkert afapilt als ekki,leynt og ljóst er verið að sverta meirihluta Alþingis sem reynt er öll meðul til að koma á höggi,sem ekkert er innifyrrir///Halli gamli 

mbl.is Krafan er góð áminning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 1045632

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband